Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands í gær námu 7,6 milljörðum
króna og þar af voru viðskipti með
hlutabréf fyrir 1,6 milljarða.
Úrvalsvísitala Aðallista Kauphall-
arinnar lækkaði um 0,1% í við-
skiptum gærdagsins og er nú 5.310
stig. Mest viðskipti voru með hluta-
bréf KB banka, eða fyrir um 530
milljónir og hækkaði gengi þeirra um
0,1%. Bréf Actavis hækkuðu um
1,2% og bréf SÍF um 0,7%. Bréf Öss-
urar lækkuðu hins vegar um 1,3% og
bréf Dagsbrúnar um 1,1%.
Úrvalsvísitalan
lækkar lítillega
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
STJÓRN Sparisjóðs vélstjóra samþykkti á fundi sínum í
gær að heimila sölu á tæplega 5% stofnfjárhluta í sjóðn-
um til MP Fjárfestingarbanka. Bankinn hefur að und-
anförnu gert stofnfjáreigendum í SPV tilboð í stofnfjár-
hluti þeirra á genginu 24, samkvæmt upplýsingum frá
Sigurði Valtýssyni, framkvæmdastjóra MP Fjárfesting-
arbanka.
Í lögum um fjármálafyrirtæki er kveðið á um það að
sala eða annað framsal stofnfjárhlutar í sparisjóði sé
óheimil nema með samþykki sparisjóðsstjórnar.
Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður SPV, segir
að salan hafi verið samþykkt einróma á stjórnarfundi í
gær. Hann segir að fyrir sitt leyti sé það jákvætt að þessi
viðskipti hafi farið fram.
Hluturinn á 936 þúsund
Uppreiknað nafnverð stofnfjárhlutar í SPV er nú um
39 þúsund krónur. Miðað við gengið 24 hefur MP Fjár-
festingarbanki því boðist til að kaupa hvern stofnfjárhlut
á 936 þúsund krónur.
Stofnfé SPV skiptist í 3.205 hluti. Tæplega 5% eru ná-
lægt 160 hlutum. Heildarkaupverð þeirra stofnfjárhluta
sem stjórn SPV hefur samþykkt að MP Fjárfestingar-
banki geti keypt er því tæplega 150 milljónir króna.
Atkvæðavægi innan við 0,2%
Á aðalfundi SPV síðastliðið vor var lögð fram tillaga
þess efnis að stofnfjáreigendum væri heimilt að fara með
allt að 5% af heildaratkvæðamagni í sjóðnum, eins og
kveðið er á um í lögum um fjármálafyrirtæki. Tillagan
hlaut ekki tvo þriðju hluta atkvæða eins og þörf er á. Í
samþykktum fyrir SPV segir hins vegar að eitt atkvæði
fylgi hverjum stofnfjárhlut. Sá sem á yfir 6 hluti hefur því
einungis atkvæðisrétt miðað við 6 hluti af 3.205, eða
0,19% af heildinni.
Hafa átt gott samstarf
Sigurður Valtýsson segir að MP Fjárfestingarbanki
vilji eignast 5-10% hlut í Sparisjóði vélstjóra. „Við höfum
átt mjög gott samstarf við sparisjóðinn sem er einn af
stærstu hluthöfunum í MP Fjárfestingarbanka. Og við
höfum nú þegar upplýst Fjármálaeftirlitið um þessi
kaup,“ segir hann.
SPV á tæplega 15% hlut í MP Fjárfestingarbanka.
MP kaupir tæp 5%
stofnfjárbréfa í SPV
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
KAUPHÖLL Íslands hefur áminnt
Íslandsbanka opinberlega fyrir brot
á aðildarreglum NOREX.
Í tilkynningu frá Kauphöllinni
segir að við venjubundið eftirlit hafi
komið í ljós að starfsmaður bankans,
sem ekki hefur leyfi til að miðla, not-
aði notendaauðkenni miðlara bank-
ans í SAXESS-viðskiptakerfinu og
átti viðskipti á því auðkenni.
Starfsmaðurinn viðurkenndi brot-
ið og hætti notkun auðkennisins.
Einnig kom í ljós að annar miðlari
átti viðskipti á auðkenninu, en sam-
tals voru nærri 70 viðskipti fram-
kvæmd á því af öðrum en þeim miðl-
ara sem skráður er fyrir því.
Í tilkynningunni segir að Íslands-
banki hafi gefið þær skýringar, að
það hefði verið ákvörðun bankans að
láta miðlara eiga viðskipti undir öðru
auðkenni en sínu eigin og að miðl-
arinn hafi því verið beðinn um að
lána auðkenni sitt. Jafnframt hafi
verið tilgreindar tæknilegar ástæður
sem þegar var hafist handa við að
ráða bót á.
Kauphöllin hefur áminnt miðlar-
ann, sem lánaði notendaauðkenni
sitt, óopinberlega.
Mikilvægt að virða reglur
Þórður Fiðjónsson, forstjóri
Kauphallarinnar, segir að það sé
skýrt brot á aðildarreglum NOREX
að einhver annar en sá sem á auð-
kenni í SAXESS-viðskiptakerfinu
noti það. „Við teljum að það sé mjög
mikilvægt að kauphallaraðilar virði
þessar reglur. Það er sérstaklega
mikilvægt ef eitthvað kemur upp,
sem afskipti þarf að hafa af.“
Þórður segir að Kauphöllin hafi
veitt töluvert margar áminningar.
„Við erum hins vegar ekki sérstak-
lega refsiglöð. En það kemur alltaf
öðru hverju fyrir að við veitum op-
inberar áminningar,“ segir Þóður.
Endurtekur sig ekki
Í tilkynningu frá Íslandsbanka til
Morgunblaðsins vegna þessa máls
segir: „Verklag við afleysingar í við-
skiptum fjárstýringar með ríkis-
skuldabréf var í þrjá daga með þeim
hætti að starfsmaður bankans átti
viðskipti á auðkenni annars starfs-
manns sem fór í fæðingarorlof. Farið
hefur verið yfir verklag og tryggt að
slíkt geti ekki endurtekið sig.“
Kauphöllin áminnir
Íslandsbanka
● GREINING Ís-
landsbanka spáir
því að vísitala
neysluverðs
hækki um 0,2% á
milli desember og
janúar. Greining-
ardeild KB banka
spáir því hins veg-
ar að vísitalan
muni lækka um
0,1% í janúar, og
0,35% án hús-
næðis. Áður hefur greiningardeild
Landsbankans spáð 0,2% lækkun
vísitölunnar.
Ef spá Greiningar Íslandsbanka
gengur eftir mun tólf mánaða verð-
bólga mælast 4,3%. Það er hækkun
frá síðustu mælingu Hagstofu Ís-
lands, sem birt var fyrr í þessum
mánuði, sem var 4,1% verðbólga.
Verðbólgan verður því samkvæmt
spá Greiningar Íslandsbanka áfram
yfir efri þolmörkum í markmiði
Seðlabankans, sem eru 4,0%, og
langt yfir 2,5% verðbólgumarkmiði
hans. Þá spáir deildin því að verð-
bólgan yfir árið 2006 verði 6,8%.
Ef spá greiningardeildar KB banka
gengur eftir muni tólf mánaða verð-
bólgan fara úr 4,1% niður í 3,9%.
Bæði Greining Íslandsbanka og
greiningardeild KB banka taka fram
að spárnar einkennist af talsverðri
óvissu.
ÍSB spáir aukinni
verðbólgu en KB
banki ekki
Skilmálar skuldabréfanna
Skuldabréfin eru verðtryggð til 5 ára með
einni greiðslu höfuðsstóls þann 15.
september 2009. Af höfuðstól skuldarinnar
eins og hann er á hverjum tíma ber að
greiða 5,00% vexti árlega.
Skráningardagur
Kauphöll Íslands hf. tekur bréfin á skrá
þann 21. desember 2005, enda uppfylli þau
skilyrði skráningar.
Umsjón með sölu og skráningu í Kauphöll Íslands hf. hefur Fyrirtækjasvið MP
Fjárfestingarbanka hf., Skipholti 50d., 105 Reykjavík.
Skráningarlýsingarnar og önnur gögn sem vitnað er til í lýsingunum er hægt að nálgast
hjá MP Fjárfestingarbanka hf. og á heimasíðu félagsins www.mp.is
Auðkenni Útgáfudagur Gjalddagi Heildarnafnverð
MPB 06 0110 10.10.2005 10.01.2006 2.000.000.000 kr.
MPB 06 0210 10.11.2005 10.02.2006 1.000.000.000 kr.
Auðkenni Útgáfudagur Gjalddagi Útgefið og selt Heildarstærð flokks
MPB 04 1 15.09.2004 15.09.2009 3.015.000.000 kr. allt að 4.000.000.000 kr.
Skráning skuldabréfa og víxla
MP Fjárfestingarbanka hf.
í Kauphöll Íslands hf.
Skuldabréfaflokkur MPB 04 1 – 3.015.000.000 kr.
Víxlar árið 2005 – 3.000.000.000 kr.
Skipholti 50d | 105 Reykjavík | sími 540 3200 | www.mp.is
Skilmálar víxlanna
Víxlarnir eru vaxtalausir og óverðtryggðir.
Skráningardagur
Kauphöll Íslands hf. hefur samþykkt að
skrá tvo ofangreinda flokka Peninga-
markaðsvíxla MP Fjárfestingarbanka hf.
þann 21. desember 2005, enda uppfylli þeir
skilyrði skráningar.
● STJÓRN Kerfa AB í Svíþjóð, dótt-
urfélags Opinna Kerfa hf., gekk í gær
frá ráðningu Anders Fredholm í starf
forstjóra frá og með febrúar 2006.
Anders Fredholm tekur við af Anders
Grönlund, sem hefur starfað hjá fé-
laginu frá árinu 1994, og sem for-
stjóri frá 1999.
Nýr forstjóri Kerfa AB
! "# #
)#!"*&+,-./
0!((!1&*&+,-./
!$!*&+,-./
2*&+,-./
0*&!%./
3"!%"4!%(./
!&54+&!%&./ 6!,-7%$0!%(./
61$,%./
2!%"4!%(3"!%"./
!&./
3 ./
#&!,,&80,&5!&9" :9&/4!%(./
;"",&./
! " #+&(!*&+,-./
"(!&(!5,&3"!%"./
!-5:!%./ <)!%)*&+,-./
+"!) !".+%"./
=.&:./
!$"4&>%./
?@ #!%#)?#&+,
A&B$$%$!5"#15%./
C%%","#15%./
# $% &'
"(DB:!/:!&5!&./
9#,&/E!$,5,&!%""/
& ()* <FDG
'5!"#!
5"(&5
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
0&B#%$/&9
/B&&!5"(&5
8 8 8
8
8
8 8
8
8
8 8
8
8
8
8
8
8 8
8
8
8
8
8 H8IJ
H8
IJ
8
8
8
H8IJ
8
HIJ
8
H
IJ
8
HIJ
HIJ
H8IJ
8
8
8
8
8
8
H8IJ
8
8
8
8
8
H8IJ
!&5"(-#
!$"%"
A4+5'+(!$"
6!,-!!
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
C5"(-#'7>"(&
A #.,$,%!&"# :1
5"(-#!
8
8
8
8
8
8
8
8
8
8
!"!K
L?
I
I
AD
M
I
I
FF
M
I
I
M6.1/%
((
I
I
<FDM +N +%"
I
I