Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „VIÐ Íslendingar erum furðu lostnir yfir þeim samningi sem Norðmenn og Evrópusambandið hafa gert um norsk-íslenzku síldina. Hann er al- gerlega einhliða, án nokkurs samráðs við önnur ríki sem eiga aðild að nýtingu stofnsins. Þetta er að mínu mati mikið ábyrgðarleysi enda ganga Norðmenn miklu nær stofninum með þessu en fiskifræðingar telja ráðlegt,“ segir Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra. Einar segir ennfremur að með þessum samn- ingi séu Norðmenn að auka aflahlutdeild sína um 35% sé tekið mið af fyrri samningum og til- lögum fiskifræðinga um hámarksafla. „Norð- menn juku hlutdeild sína í fyrra og nú ganga þeir ennþá lengra. Þetta er mikið ábyrgðarleysi sem neyðir okkur Íslendinga til að hugsa okkar gang,“ segir Einar K. Guðfinnsson. „Með samkomulagi Norðmanna og ESB um veiðar á norsk-íslenzku síldinni er ljóst að kvót- ar næsta árs verða langt umfram veiðiráðgjöf- ina sem að sjálfsögðu er afar óæskilegt. Við eig- um hinsvegar engan annan kost í stöðunni vegna þessa framferðis Norðmanna, en auka okkar kvóta einnig,“ segir Friðrik J. Arngríms- son, framkvæmdastjóri LÍÚ, í frétt á heimasíðu samtakanna. Samkvæmt samkomulaginu munu Norð- menn veiða 564.200 tonn af norsk-íslenskri síld 2006 og skip aðildarríkja ESB 62.000 tonn. Þá fá ESB-skip að veiða síld í norskri lögsögu og einnig verður banni við löndun þeirra á síld í Noregi aflétt. Með samkomulaginu er ljóst að veiði úr norsk-íslenzka síldarstofninum verður langt umfram veiðiráðgjöf Alþjóða hafrann- sóknaráðsins sem er 732.000 miðað við sam- komulag strandríkjanna, Íslands, Noregs, Færeyja, Rússlands og ríkja ESB um langtímanýtingu stofnsins. Árið 1996 gerðu strandríkin samning um skiptingu veiða úr stofninum þannig að í hlut Noregs komu 57%, Íslands 15,54%, Rússlands 13,62%, ESB 8,38% og Færeyja 5,46%. Vegna krafna Normanna um aukna hlutdeild þeim til handa hefur samkomulagið verið í uppnámi frá árinu 2003. Þetta hefur leitt til þess að meira hefur verið veitt úr stofninum en markmið um langtímanýtingu hans gerir ráð fyrir. Á þessu ári settu Norðmenn sér einhliða kvóta úr stofn- inum sem var um 14% hærri en hlutur þeirra samkvæmt samningnum frá 1996 kvað á um. Það leiddi til þess að hin strandríkin hækkuðu einnig kvóta sína. Samkvæmt samkomulagi Norðmanna og framkvæmdastjórnar ESB er kvóti Norð- manna um 35% hærri en hlutur þeirra væri samkvæmt samningnum frá 1996 miðað við að veiðiráðgjöf Alþjóða hafrannsóknaráðsins væri fylgt. Hlutur ESB samsvarar hinsvegar hlut þeirra samkvæmt samningnum frá 1996. Að mati Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmda- stjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna, blasir við að íslensk stjórnvöld auki kvóta ís- lenskra skipa samsvarandi og Norðmenn hafa gert. Þá verði að gera ráð fyrir að Færeyingar og Rússar bregðist einnig við. Friðrik kveðst hafa heyrt í útgerðarmönnum í ESB sem séu afar ósáttir við samkomulag framkvæmda- stjórnarinnar við Norðmenn. Í fréttatilkynn- ingu norskra yfirvalda vegna málsins segir norski utanríkisráðherrann Jonas Gahr Store að með samkomulaginu hafi verið komið á fót fyrirkomulagi um sjálfbærar veiðar úr stofn- inum til langs tíma. „Það er langt síðan maður hefur heyrt önnur eins öfugmæli höfð eftir jafn- háttsettum manni,“ segir Friðrik J. Arngríms- son. Ofveiði á norsk- íslenzku síldinni blasir við Norðmenn taka sér sífellt aukna aflhlutdeild ÍSLAND fær 17,63% kol- munnakvótans í Norð- austur-Atlantshafi á næstu árum. Miðað við tveggja milljóna heildarkvóta á næsta ári koma 352.600 tonn í hlut Íslendinga á næsta ári. Aflaverðmæti þess gæti numið um 2,4 milljörðum króna og út- flutningsvermæti fiskimjöls úr því magni gæti verið ná- lægt 5 milljörðum króna. Kolmunnaafli okkar á þessu ári verður um 260.000 tonn. Skrifað var undir samkomulagið á strand- ríkjafundi Íslands, Færeyja, Noregs og Evr- ópusambandsins í Ósló í gærmorgun. Eftir fund strandríkjanna í Kaupmannahöfn, í byrjun nóvember, lá fyrir samningur í meg- inatriðum en ganga þurfti frá lokaútfærslu hans, áður en hægt var að skrifa undir end- anlegan samning. Samkvæmt samningnum munu strandríkin skipta leyfilegum heildar- afla sínum úr kolmunnastofninum þannig að Evrópusambandið fær 30,5%, Færeyjar 26,125%, Noregur 25,745% og Ísland 17,63%. Gert er ráð fyrir að leyfilegur heildarafli strandríkjanna verði 2.000.000 tonna árið 2006 og koma 352.600 tonn í hlut Íslendinga. Til viðbótar kvóta strandríkjanna er gert ráð fyrir því að á vettvangi Norðausturatlants- hafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) muni verða veittar heimildir til veiða á úthafinu ár- ið 2006 þar sem Rússar fái 100.000 tonna kvóta og Grænlendingar 10.000 tonn. Þar af leiðandi verður hlutdeild Íslands í heildarafl- anum lítið eitt lægri hlutfallslega, þegar allt er talið, en strandríkjakvótinn segir til um. Miðað við verðmæti afla undanfarinna tveggja ára má ætla að aflaverðmæti Íslend- inga 2006 gæti orðið um 2,4 milljarðar króna. Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum ís- lenskra fiskimjölsframleiðenda má gera ráð fyrir að útflutningsverðmæti á mjöli sé u.þb. tvöfalt aflaverðmæti. Með samkomulaginu er endi bundinn á stjórnlausar veiðar undanfar- inna ára, sem hafa ógnað kolmunnastofn- inum, en hann er sá fiskistofn sem mest hefur verið veiddur undanfarin ár í Norður- Atlantshafi. Sögulegt samkomulag Stjórnlausar veiðar úr kolmunnastofninum undanfarin ár hafa stefnt stofninum í hættu, en með samkomulaginu hefur tekist að koma í veg fyrir þær. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir á heimasíðu LÍÚ að hér sé um sögulegt samkomulag að ræða. Mik- ilvægt sé að ná stjórn á veiðunum. Málið hafi hingað til verið í sjálfheldu en samningurinn geri mögulegt að stunda veiðarnar á sjálf- bæran hátt, að byggja stofninn upp til fram- tíðar og að skipuleggja veiðarnar þannig að þær verði hagkvæmari en verið hefur. Vilhjálmur Egilsson, ráðuneytisstjóri sjáv- arútvegsráðuneytisins, sem undirritaði samninginn fyrir Íslands hönd, segir enn- fremur á heimasíðunni að ástæða sé til þess að óska öllum sem að samningnum komu til hamingju með hann, en með honum náist tök á veiðunum þannig að þær geti orðið sjálf- bærar. Jafnframt sé búinn til grundvöllur fyrir aukinni hagkvæmni veiðanna. Vil- hjálmur segir að það sé þakkarvert hve hags- munaaðilar í sjávarútvegi í samningslönd- unum hafi lagt mikið á sig til þess að gera samninginn mögulegan. Skrifað undir samning um veiðar á kolmunna Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Útgerð Kolmunnaveiðum er nú lokið þetta árið. Aflinn varð um 260.000 tonn. Hér er Jón Kjartansson að koma úr sinni síðustu veiðiferð fyrir Eskju á Eskifirði, en útgerð hans verður nú hætt. ÚR VERINU VERÐLAUNATILLAGA í hugmyndasamkeppni um skipulag útivistarsvæðis við Nauthólsvík höfðar til margra hópa, m.a. siglingafólks, hjólreiðafólk og grillara, ásamt því að heiti lækurinn er heimtur aftur. Í tillögunni er hugað að heildarmynd svæðisins og settar eru fram hugmynd að stígakerfi sem liggur í hring og má segja að við hvert fótmál sé eitthvað spennandi. Til- löguna unnu þeir Auðbergur Daníel Hálfdánarson, Elv- ar Örn Þormar og Hanus Jacobsen, nemendur í Verzl- unarskóla Íslands, og voru verðlaunin 100.000 krónur. Reykjavíkurborg efndi til hugmyndasamkeppninnar sem bar nafnið „Ef ég mætti ráða…“ meðal meðal ungs fólk á aldrinum 13 - 19 ára og bárust alls 36 tillögur í keppnina frá 63 einstaklingum. Markmið keppninnar var að hvetja ungt fólk til að hafa áhrif á skipulag svæðisins en margir í þessum aldurshópi nýta það nú þegar eða eiga eftir að stunda þar nám, vinnu eða jafn- vel búa þar, segir í frétt frá Reykjavíkurborg. Í öðru sæti varð tillaga þeirra Elínar Bjarkar Tryggvadóttur og Helgu Guðrúnar Óskarsdóttur en hún leggur áherslu á að gera svæðið aðlaðandi á öllum árstímum. Míní-golfvöllur breytist þannig í skautasvell á vetrum. Þar birtist líka evrópskt torg með íslensku yfirbragði, en torgið er umkringt veitinga- og kaffi- húsum í íslenskum bárujárnsstíl. Þriðju verðlaun hlaut tillaga þar sem er m.a. að finna frumlega hugmynd að neðansjávargöngum sem nýta má til að skoða lífríki sjávarins. Þá tillögu unnu Fanney Sigrid Ingólfsdóttir, Þóra Óskarsdóttir og Íris Stefanía Skúladóttir. Verðlaunatillögurnar verða fylgigögn í alþjóðlegri hugmyndasamkeppni sem haldin verður um skipulag alls Vatnsmýrarsvæðisins. Hugmyndasam- keppni um skipu- lag Nauthólsvíkur Verðlaunahöfum fagnað, frá vinstri Auðbergur Daníel Hálfdánarson, Elvar Örn Þormar og Hanus Jacobsen. KRISTINN á Berg – athafnamaður við Eyjar blár, er heiti nýútkominnar bókar um skipstjórann og útgerð- armanninn Kristinn Pálsson í Vestmannaeyjum. Krist- inn var farsæll og þekktur skipstjóri um árabil á Berg VE 44, en hann lést árið 2000. Hann var „athafnamað- ur af lífi og sál, athafnaskáld í orðsins fyllstu merkingu. Allt hans starf byggðist á íhugun og áræði og í þeim anda er byggt hið öfluga fyrirtæki Bergur–Huginn ehf. Fyrirtækið er í raun spegilmynd af þeirri athafnagleði sem er aðalsmerki Vestmannaeyja og dregur dám af öllum aðstæðum þar,“ segir m.a. á kápu bókarinnar. Höfundar bókarinnar um Kristin á Berg eru Árni Johnsen, sem jafnframt ritstýrði bókinni, og Þórleifur Ólafsson blaðamaður. Byggist bókin á viðtölum við Kristin heitinn og ýmsa samferðarmenn hans. Bókina prýðir fjöldi ljósmynda sem flestar eru eftir Sigurgeir Jónasson ljósmyndara. Útgefandi er Bergur–Huginn ehf. og er bókin til sölu hjá Pennanum í Vestmanna- eyjum. Bók um at- hafnaskáldið Kristin á Berg Morgunblaðið/RAX Magnús Kristinsson, sonur Kristins á Berg, Árni John- sen, annar bókarhöfunda og Þóra Magnúsdóttir, ekkja Kristins, eru hér með nýútkomnu bókina. Jól hjá fimm tónlistarmönnum  Góðmennt á aðfangadag hjá Jóni Sigurðssyni og fjölskyldu á morgun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.