Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 17.12.2005, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF jólaguðspjallið í helgileik. Kenn- arar í skólanum hafa annast und- irbúning og þátttaka nemenda ver- ið almenn. Þessar samverur hafa verið fjöl- sóttar og kærkomin stund í erli jólanna til þess að setjast niður og hugleiða inntak aðventunnar og boðskap heilagra jóla. Látum jólasöngvana hljóma með allri fjölskyldunni og syngjum saman um frið og helgi hátíð- arinnar. Athugið að þennan sunnudag verður aðeins messan kl. 11, sem er sameiginleg fyrir yngri sem eldri. Pálmi Matthíasson. Guðsþjónusta með Þorvaldi AÐVENTUGUÐSÞJÓNUSTA verður sunnudagskvöldið 18. des- ember kl. 20 í Seljakirkju. Prestur séra Valgeir Ástráðsson. Þorvald- ur Halldórsson tónlistarmaður syngur með okkur aðventu- og jólasálma ásamt kirkjukór Selja- kirkju. Stjórnandi kirkjukórs er Jón Bjarnason tónlistarstjóri kirkj- unnar. Altarisganga. Verið vel- komin. Tónlistarguðsþjón- usta og hjálparstarf í Hafnarfjarðarkirkju FJÓRÐA sunnudag í aðventu 18. desember kl. 11 verður tónlistar- guðsþjónsta haldin í Hafnarfjarð- arkirkju. Þá mun Kristin Lárusdóttir leika fagra tónlist er hæfir vel að- ventunni sem er undirbúningstími jóla. Ritningarorð verða lesin á milli tónlistaratriða og fluttar stuttar hugvekjur út frá þeim. Prestur er sr. Gunnþór Þ. Inga- son. Tekið verður við söfn- unarbaukum og framlögum til Hjálparstarfs kirkjunnar í þessari tónlistarguðsþjónustu í Hafn- arfjarðarkirkju. Góðar gjafir í Hjálparsjóð á Selfossi AÐ lokinni messu í Selfosskirkju á þriðja sunnudag í aðventu, hinn 10. desember síðastliðinn, afhentu hjónin Árni Valdimarsson og Nína Björg Knútsdóttir, eigendur Fast- eignasölunnar Bakka á Selfossi, Hjálparsjóði Selfosskirkju kr. 250.000. Sóknarpresturinn, síra Bænatónleikar í Fríkirkjunni í Hafnarfirði NK. MÁNUDAGSKVÖLD 19. des- ember verða bænatónleikar í Frí- kirkjunni í Hafnarfirði og hefjast kl. 20. Yfirskrift tónleikanna er Sorgin og lífið. Það er Erna Blön- dal sem stendur fyrir þessum tón- leikum ásamt prestum kirkjunnar og mun Erna syngja við undirleik þekktra tónlistarmanna og prest- arnir lesa ritningarorð. Kirkjugestum gefst einnig kost- ur á því að tendra kerti í minningu látinna ástvina. Margir eiga um sárt að binda þegar jólin eru í nánd og eiga tónleikarnir því er- indi við marga auk þess sem þetta er gott tækifæri til þess að eiga kyrrðarstund á aðventu. Þorgeir Ástvalds og Raggi Bjarna í Laugarneskirkju FJÓRÐA árið í röð er það Þorgeir Ástvaldsson sem tekur að sér tón- listarmálin í Laugarneskirkju við guðsþjónustu kl. 11 á fjórða sunnu- degi í aðventu. Í fyrra fékk hann hinn ástsæla söngvara, Ragnar Bjarnason, með sér og svo verður einnig nú. Munu þeir félagar bæði flytja tónlist og leiða safnaðarsöng, en Bjarni Karlsson sóknarprestur mun þjóna ásamt Sigurbirni Þorkelssyni framkvæmdastjóra safnaðarins. Sunnudagaskólinn heldur sínu striki eins og alltaf undir stjórn Hildar Eirar Bolladóttur, Heimis Haraldssonar og Þorvalds Þor- valdssonar. Vert er að minna á að á að- fangadag jóla kl. 16 verða að venju haldnir „jólasöngvar barnanna“ þar sem jólaatburðurinn er svið- settur og endursagður og við há- tíðarguðsþjónustu jóladags verður einnig boðið upp á sunnudagaskóla í safnaðarheimilinu. Jólasöngvar fjölskyldunnar í Bústaðakirkju SUNNUDAGINN 18. desember verða jólasöngvar fjölskyldunnar í fjölskyldusamveru í Bústaðakirkju kl. 11. Þetta er samvera fyrir alla fjöl- skylduna, þar sem jólalögin eru sungin og börnin ásamt foreldrum, öfum og ömmum koma saman til kirkju og eiga helga stund. Börn úr Fossvogsskóla flytja Gunnar Björnsson og Valdimar Bragason, kirkjuvörður, veittu gjöfinni móttöku fyrir hönd sjóðs- ins, og tjáðu hjónunum innilegar þakkir. Fimmtudaginn 15. desember sl. afhentu þær Ragnheiður Ágústs- dóttir, formaður Lionsklúbbsins Emblu á Selfossi, og Unnur Ein- arsdóttir, gjaldkeri klúbbsins, Hjálparsjóði Selfosskirkju kr. 50.000. Fjáröflun Lionsklúbbsins Emblu byggist á því, að konurnar hafa tekið að sér ræstingu og þrif í nýbyggingum, áður en flutt er inn. Síra Gunnar Björnsson sókn- arprestur og Eygló Jóna Gunn- arsdóttir, djákni Selfosskirkju, færðu þeim Ragnheiði og Unni innilegustu þakkir af hálfu Hjálp- arsjóðsins. Þessar gjafir koma sér einkar vel á þessum árstíma, þegar Sel- fosskirkja réttir þeim hjálparhönd fyrir jólin, sem þurfandi eru. Fjölskyldusamvera í Fríkirkjunni í Reykjavík FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA á sunnudag kl 14. Hugljúf stund með leikinni helgisögu, þar sem börnin taka virkan þátt. Mikið verður sungið, tónlistin verður í umsjá Önnu Sigríðar Helgadóttur, Carls Möller og Fríkirkjukórsins. Gam- aldags englamyndir handa öllum börnum og andabrauð á sínum stað í lokin. Stundina leiða prestar safnaðarins. Stórtónleikar í Frí- kirkjunni í Reykjavík STÓRTÓNLEIKAR til styrktar geðsviði Reykjalundar verða á sunnudag kl. 17. Kirkjukór Lága- fellssóknar og Fríkirkjukórinn í Hafnarfirði ásamt hópi lands- þekkts söng- og tónlistarfólks heldur tónleikana. Allur ágóði rennur óskiptur til málefnisins. Heilunarguðsþjónusta í Fríkirkjunni í Reykjavík HEILUNARGUÐSÞJÓNUSTA í samstarfi Fríkirkjunnar í Reykja- vík og Sálarrannsóknarfélags Ís- lands verður á sunnudag kl. 20. Í stundinni er vitnisburður, ritning- arlestrar og hugleiðing, söngur og tónlist í umsjá Önnu Sigríðar Helgadóttur og Carls Möller. Um- sjón stundarinnar er í höndum Ásu Bjarkar Ólafsdóttur. Morgunblaðið/Ásdís Fríkirkjan í Hafnarfirði. NÝLEGA birtist grein eftir mig í Mbl. undir nafninu „Fjölmenning – nei“. Margir hafa séð ástæðu til að hringja í mig og þakka mér fyrir þessa grein og jafnframt ræða þau mál nokkuð sem hún fjallar um. Vil ég þakka þau viðbrögð og sérstaklega skynsamleg og yfirveguð sjónarmið sem ég fékk að heyra hjá ýmsum varðandi þessi mál. En ein rödd var þó fölsk og vil ég fara nokkrum orðum um það fyr- irbæri. Blaðamaður frá DV hringdi og byrjaði á því að ljúka miklu lofsorði á grein mína, en síðan fór hann að leggja út af henni með þeim hætti að ég skildi strax að hann gerði sér nánast far um að misskilja hana. Ég reyndi góðfúslega að benda honum á hvað ég væri að meina, en hann hélt áfram að leggja mér orð í munn. Svo spurði hann mig hvort ég myndi vilja búa við hliðina á araba, og vís- aði í því sambandi á einhverja skoð- anakönnun þar sem fólk hafði verið spurt þeirrar spurningar. Ég svaraði því til að hann gæti ekki sett alla araba undir sama hatt, sumir þeirra væru t.d. kristnir og það gæti breytt miklu að áliti margra í þessu sam- bandi. Hann spurði þá hvort ég gæti hugsað mér að búa við hliðina á kristnum araba. Ég sagði að það gæti vel verið, en þó arabi segðist vera kristinn segði það ekki allt, múslímsk- ur arabi gæti þess vegna verið miklu heilsteyptari og betri nágranni, nið- urstaðan færi auðvitað eftir því mann- gildi sem viðkomandi maður hefði. Við ræddum svo fordóma og ég sagði við hann að allir menn hefðu sína for- dóma og hann virtist samþykkja það. Svo setur maðurinn í blað sitt, í út- lagningu af samtali okkar, fyrirsögn- ina „Myndi búa við hlið kristins araba“, og ennfremur að ég hefði sagt, að ég teldi mig ekki hafa for- dóma í garð innflytjenda. Auðvitað sagði ég aldrei neitt slíkt enda hefði það verið heimskulegt. Hvorki ég né nokkur annar er dómbær um eigin fordóma. Að sjálfsögðu verða aðrir að meta það, m.a. af skrifum mínum, hvort ég sé fordómafullur í þeim. Þeir sem lesa grein mín „Fjölmenning – nei“ geta metið það hvort hún sé fordóma- full gagnvart innflytj- endum eða málefnalegt innlegg í umræðuna. Ég læt öðrum það full- komlega eftir í trausti á almenna, þjóðlega dóm- greind. Margt annað í greinarkorni blaðamannsins og reyndar flest er mistúlkað og rang- fært og vil ég benda þeim sem vilja kynna sér málið að lesa grein mína og bera hana svo saman við túlkun blaða- manns DV. Viðræðan við þennan blaðamann DV var í sjálfu sér fánýt en fræddi mig þó nokkuð frekar um þennan um- deilda fjölmiðil og þau vinnubrögð sem þar virðast iðkuð. Mér finnst því ástæða til að vara fólk við og benda því á að fara varlega í skiptum sínum við þetta blað. Ég sagði að lokum við manninn, að ef hann ætlaði að skrifa eitthvað um þetta, færi hann með það eins og hann væri maður til. Ég sé að hann hefur gert það, og að mínu mati, fallið á því manndómsprófi. Viðmið hans hefur greinilega ekki verið að hafa það sem sannara reyndist. Fyrir hvað standa stafirnir DV annars – Daglega Verra? Um eina falska rödd Rúnar Kristjánsson fjallar um samskipti sín við blaðamann DV Rúnar Kristjánsson ’Viðræðan við þennanblaðamann DV var í sjálfu sér fánýt en fræddi mig þó nokkuð frekar um þennan um- deilda fjölmiðil og þau vinnubrögð sem þar virðast iðkuð.‘ Höfundur er húsasmiður. TIL STENDUR að skera fram- haldskólann niður um eitt ár og færa kennsluefni niður í grunnskólana. Lýsingarnar á því hvernig fyrirhugað er að standa að þessu og hvernig eigi að „nýta tímann betur“ í grunn- skólum landsins minna helst á „Nürnberger Trichter“, hugmynd frá sautjándu öld um trekt sem notuð er til að hella námsefni ofan í nemendur. Staðreyndin er hins vegar sú að námshæfileikar eru mismunandi og sumir geta lært meira en aðrir. Hugsjónin um einstaklingsbundið nám er frábær en hún er ekki framkvæm- anleg nema að hluta miðað við þær að- stæður sem grunn- skólakennarar búa við. Því fá margir nem- endur, sem gætu bætt við sig námsefni, ekki kennslu við hæfi. Þess vegna er tímabært að athuga hvort grunn- skólinn ætti ekki að fá meira svigrúm til að sinna þeim betur sem geta lært meira. En að gera núna meiri kröfur til allra jafnt þýðir að gera nákvæm- lega sömu mistökin og áður, bara á hinn veginn. Sennilega eru það verri mistök ef horft er til þess þáttar sem kannski skiptir mestu máli eftir allt saman, nefnilega líðanar nemenda í skóla. Góð líðan er meginforsenda góðs náms og heilbrigðs þroskaferils fyrir hvern og einn. Ef gera á meiri kröfur til allra jafnt til þess að ljúka grunnskólaprófi er hætt við að of miklar kröfur verði gerðar til margra – og það getur haft alvarleg, nið- urdrepandi áhrif á líðan ungs fólks. Það stuðlar einmitt að brottfalli nem- enda úr námi. Hvernig væri að hætta um stund að „reikna vit“ í skóla- kerfið eins og tölur gætu skýrt lífið sjálft? Af hverju má ekki fara í skólana, spyrja, athuga og reyna að skilja og átta sig á raunveruleik- anum sem þar er og hefja síðan á þeim grundvelli umbætur sem gætu leitt til góðs? Er ekki búið að reyna nógu lengi að troða hug- sjónum ofan á raunveru- leikann, skipa kenn- urum að gera „undur og kraftaverk“ og loka síðan augunum þegar raun- veruleikinn segir annað? Af hverju má ekki vinna með kennurunum? Er ástæðan sú að raunveruleikinn er svo óþægilega margþættur að miklu þægilegra er að leika sér bara að töl- um? Eitt er þó víst: Það reiknar eng- inn raunveruleikann í burtu, sama hversu snjallir menn eru að leika sér að tölum. Að reikna vit í lífið Maja Loebell fjallar um íslenska skólakerfið Maja Loebell ’ Það reiknar enginnraunveruleikann í burtu, sama hversu snjallir menn eru að leika sér að tölum.‘ Höfundur er þýskukennari við Menntaskólann í Reykjavík. UMRÆÐAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.