Fréttablaðið - 20.12.2003, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 90
Leikhús 90
Myndlist 90
Íþróttir 85
Sjónvarp 92
LAUGARDAGUR
ÚRSLITALEIKUR Í SMÁRANUM
Keflavík og KR mætast í úrslitaleik í Hóp-
bílabikarkeppni kvenna í körfubolta
klukkan 14.15 í Smáranum. Klukkan 16
tekur Breiðablik á móti Grindavík, efsta
liði Intersport-deildar karla.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
FALLEGT VEÐUR EN KALT Mjög kalt
inn til landsins en skaplegra með strönd-
um. Vindur hægur. Hlýnar seint á morgun.
Ullarsokkar og húfa nauðsyn fyrir útigöngu-
fólk. Sjá síðu 6
20. desember 2003 – 318. tölublað – 3. árgangur
FÆR 6,5 MILLJÓNIR Í BÆTUR
Konu, sem slasaðist alvarlega í ævintýraferð í
Glymsgili, voru úrskurðaðar 6,5 milljónir
króna í bætur. Sýnir að þeir sem bjóða upp á
slíkar ferðir verða að taka ábyrgð. Sjá síðu 4
LEIKSKÓLAGJÖLD LÆKKA Fjár-
hagsáætlun Reykjavíkurborgar var sam-
þykkt eftir fjórtán klukkustunda langan
fund sem stóð langt fram á nótt. Gert ráð
fyrir lækkun leikskólagjalda fimm ára
barna. Sjá síðu 6
SPARNAÐUR HÁSKÓLA ÍSLANDS
Stúdentaráð vinnur að tillögum sem geta spar-
að Háskólanum stórfé. Lagt verður til að farið
verði að fordæmi bandarískra háskóla þar sem
tekist hafi að draga úr kostnaði við fjölmenn
námskeið um allt að 75%. Sjá síðu 8
RÍKISÁBYRGÐ ÍSLENSKRAR ERFÐA-
GREININGAR Eftirlitsstofnun EFTA hefur
birt álit sitt á fyrirhugaðri ríkisábyrgð til handa
Íslenskri erfðagreiningu í stjórnartíðindum
Evrópusambandsins. Sjá síðu 4
Dr. Gunni:
Hringnum lokað Þriðji hluti Hringadróttinssögu
kemur í bíó á annan í jólum.
Heimildir herma að þessi loka-
hrina þríleiksins hafi að geyma
einhverjar tilkomumestu senur
kvikmyndasögunnar. SÍÐUR 36-37
▲
Kvikmyndir:
Bíður skjálfandi eftir gagnrýni
LÍFEYRISRÉTTINDI „Mannskynssagan
sannar þá staðreynd að ef stjórn-
arherrar eru of lengi við völd þá
glata þeir tilfinningunni fyrir
kjörum almennings, spilling eykst
og stjórnarathafnir fara að ein-
kennast af eiginhagsmunum um-
fram hagsmuni hins almenna
borgara,“ segir Guðmundur
Gunnarsson, formaður Raf-
iðnaðarsambands Íslands.
„Því miður hafa núver-
andi stjórnvöld nokkrum
sinnum á starfstíma sín-
um unnið skemmdar-
verk á lífeyriskerfinu, með
því að hygla ákveðnum hóp-
um opinberra starfsmanna og
í skjóli þess hafa verið byggðir
upp gjörsamlega óraunsæir líf-
eyrissjóðir alþingismanna og enn
fáránlegri lífeyrissjóðir ráðherra,“
segir Guðmundur.
Hann segir græðgi hafa ráðið
för þegar frumvarpið var lagt
fram og snuprar stjórnarþing-
menn fyrir framgöngu þeirra.
„Stjórnarþingmenn ásamt for-
sætisráðherra hafa farið hamför-
um og ausið fúkyrðum og svívirð-
ingum yfir landslýð. Allt háttalag
og málflutningur þeirra ber
einkenni veruleika-
firrts fólks, sem ekki
er í neinum tengsl-
um við hinn al-
menna borgara.
Það ber greini-
leg merki þess
að þarna
fer fólk sem hefur verið alltof
lengi við völd og er orðið spillt.
Græðgi og gæska gagnvart eigin-
hagsmunum er að ná völdum,“
segir Guðmundur og bendir á að
framundan séu almennir kjara-
samningar.
„Nú er svo komið að við blasa
gífurleg átök á vinnumarkaði
næstu mánuðina, okkur, venjulega
fólkinu, er algjörlega ofboðið. Við
verðum að koma í veg fyrir að
þetta fólk vinni meiri skemmdar-
verk á íslensku þjóðfélagi, við
þurfum að senda það í endurhæf-
ingarfrí,“ segir Guðmundur
Gunnarsson.
- sjá meira bls. 2
the@frettabladid.is
bubbi fer á nasa
Megas:
▲
SÍÐA 50
Spilar á Borginni
á Þorláksmessu
hvað er málið?
Óskar Pétursson:
▲
SÍÐA 32
Skagfirðingar
og söngur
Dr. Gunni var að senda frá sér geisladiskinn
Stóra hvell. Þar með er doktorinn, sem áður
var skeleggur tónlistargagnrýnandi, kominn
hinum megin við borðið. ▲SÍÐUR 38-39
Skemmdarverk
Formaður Rafiðnaðarsambandsins sendir ríkisstjórn og þingmönnum
kaldar kveðjur. Hann segir stjórnvöld hafa unnið skemmdarverk á líf-
eyriskerfinu. Græðgi og eiginhagsmunagæska ráði gerðum ráðamanna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
HRÍÐ Í BANKASTRÆTI Þegar borgarbúar vöknuðu upp í gærmorgun var hvít jörð og hríð. Sumir hafa eflaust hugsað með sér að
kannski yrðu jólin hvít þrátt fyrir allt. Ólíklegt er hins vegar að það verði því síðdegis er búist við að það fari að hlýna á ný. Færð á vegum
er ágæt, en hálka eða hálkublettir á vegum utan við helstu þéttbýliskjarnana.
jóladrykkir ● grænmetisjól
Andalifrarkæfa, humar
og appelsínuönd
matur o.fl.
Gerard Lemarquis:
▲
SÍÐUR 68-75
nýstúdentar ● skemmtilegur pakkaleikur
Allir á
barnum
jólin koma
Kormákur Geirharðsson:
▲
SÍÐUR 60-67
Arnaldur Indriðason:
Mýrin best
í Svíþjóð
BÓKMENNTIR Sænskir gagnrýnend-
ur hafa valið Mýrina sem bestu
glæpasögu ársins þar í landi. Mýrin
kom út í Svíþjóð nú í haust og hefur
fengið góðar móttökur þarlendra
lesenda. Gagnrýnendur hafa lofað
hana í hástert. Meðal annars sagði
gagnrýnandi Syd svenska dagbla-
det, Jan Broberg, að Mýrin væri ein
besta glæpasaga sem hann hefði
nokkurn tíma lesið.
Nánar á síðu 40.
Geiri í Goldfinger:
Gægjuleik-
hús í bígerð
NÆTURLÍF Ásgeir Davíðsson, eig-
andi súlustaðarins Goldfinger í
Kópavogi, hefur í bí-
gerð að stofna nýjan
erótískan stað í
Reykjavík. Þar verð-
ur boðið upp á
gægjuleikhús, sem
hann nefnir svo, en
það þekkist á ensku
sem „peepshow“.
Heimildir herma að
Ásgeir hafi tryggt sér húsnæði
Vegas á Frakkastíg í þessu skyni
og hann ætli jafnframt að opna
þar stærstu búð með hjálpartæki
ástarlífsins á Íslandi.
Nánar á síðu 30.
VALDAÞREYTA
Guðmundur Gunnarsson sendir ráðherrum
og stjórnarþingmönnum gusu vegna nýrra
laga um lífeyrisréttindi æðstu ráðamanna.
ÁSGEIR
DAVÍÐSSON
Vöxtur Fréttablaðsins:
96 síður
ÚTGÁFA Fréttablaðið í dag er 96 blað-
síður og er því prentað í þrennu
lagi. Vöxtur blaðsins hefur verið
mikill undanfarna mánuði og er nú
svo komið að prentvél Ísafoldar-
prentsmiðju getur ekki prentað það
í einu lagi. Þess vegna eru í raun tvö
blöð inni í aðalblaðinu og þar með
ekki einn kjölur.
Vegna mikils vaxtar blaðsins
verður prentvélin stækkuð á næst-
unni. Viðbót við hana er á leið til
landsins og verður stækkuð prent-
vél tekin í notkun í febrúar. ■
4
dagar
til jóla
Opið til klukkan
22.00
í kvöld