Fréttablaðið - 20.12.2003, Blaðsíða 68
Mark Wilson er kanadískur, enhefur búið á Íslandi í 19 ár og
aðlagað sig íslenskum jólasiðum.
„Ég borða hamborgarhrygg á að-
fangadagskvöld þó ég fái alltaf
magapínu á eftir, en ég læt mig
hafa það. Þetta er svo gott,“ segir
Mark, sem vandist því að borða
kalkún á jólunum í Kanada.
„Það er allt öðruvísi þar, við
erum til dæmis bara með einn
jólasvein sem kemur niður um
strompinn aðfaranótt jóladags
og pakkarnir eru opnaðir á jóla-
dagsmorgun. Flestir opna þó
eina gjöf 24. desember, en það
kvöld er undirbúningur fyrir
jólin og algengt að stórfjölskyld-
an hittist. Gamlar töntur bjóða
þá öllu liðinu heim til sín, sem er
alveg ótrúlega leiðinlegt,“ segir
Mark og dæsir. „En maður var
píndur í þetta sem unglingur og
lifði það af.“
Mark kaupir alltaf mistiltein
fyrir jólin. „Það er fyrir róman-
tíkina,“ segir hann hlæjandi,
„það er nefnilega galdur í mistil-
teininum.“
Hann eldar líka gjarnan sjálf-
ur hreindýr eða önd á jóladag.
„Mágur minn í Noregi kenndi
mér sniðuga aðferð til að elda
andabringur. Maður tekur
bringurnar, sker í fituna og
kryddar með helling af salti og
pipar. Setur svo bringurnar, með
fituna niður, á kalda pönnuna,
kveikir undir og steikir í fimm
mínútur. Slekkur á hitanum og
tekur bringurnar af. Þetta end-
urtekur maður svona fimm sinn-
um, og hellir reglulega fitu yfir
kjötið, sem er alltaf steikt á
sömu hlið. Þetta tekur um það
bil eina og hálfa klukkustund og
bragðast ofboðslega vel.“
Mark segir konuna sína, Guð-
nýju, sjá um sósuna. „Hún er
snillingur í því, sýður niður lauk
og villisveppi og bætir sérríi eða
einhverju öðru góðu út í,“ segir
Mark. ■
matur o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um mat og drykk
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: matur@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is
Kanadísk jól:
Boðin hjá „töntu“
hundleiðinleg
Vínframleiðandinn FetzerVineyards er kunnur fyrir
getu sína í gerð fjölbreyttra
vína allt frá hinum klassísku
Cabernet Sauvignon og
Chardonnay-vínum til sjald-
gæfari Viognier eða Roussanne.
Bestu gæði og bragðeiginleikar
eru ávallt leiðarljós Fetzer Vine-
yards.
Lífsspeki Fetzer Vineyards
er að vín sé hluti ákveðins lífs-
stíls og þarfa okkar sem líf-
vera. Í samræmi við þær kenn-
ingar framleiðir Fetzer yfir
1.500 mismunandi tegundir
kryddjurta, ávaxta og græn-
metis með lífrænum aðferðum í
görðum sínum, ásamt því að
eiga og reka fræðslusetur um
mat og vín þar sem hinn þekkti
John Ash er í fararbroddi. Allir
víngarðar í eigu Fetzer Viney-
ards eru hundrað prósent líf-
rænt ræktaðir og hefur fyri-
tækið sett það að markmiði að
öll framleiðsla þess verði vott-
uð sem lífræn árið 2010. Hin
fjölbreytta ræktun er hluti af
því að gera vínin óvenjuleg og
skemmtileg.
Þann 1. desember tóku í gildi
umtalsverðar lækkanir á þeim
Fetzer vínum sem boðið er upp á
í Vínbúðum hérlendis. Lækkun
þessi nemur allt að 18% eins og
sjá má:
Fetzer Valley Oaks Zinfandel var
áður á 1.590 kr. en er nú á 1.390 kr.
Afar gott með lambakjöti og villt-
um fuglum, eins og önd og rjúpu.
Fetzer Eagle Peak Merlot var
áður á 1.440 kr. en er nú á 1.190 kr.
Mjúkt en voldugt bragð og passar
sérlega vel með önd, kálfa- og
nautakjöti.
Fetzer Zinfandel-Shiraz var áður
á 1.390 kr. en er nú á 1.190 kr.
Kröftugt en aðgengilegt vín sem
hentar einna best með grilluðu
kjöti, bragðmiklum tómatsúpum
og gúllasi.
Fetzer Chardonnay-Viognier var
áður á 1.390 kr. en er nú á 1.190 kr.
Þurrt óeikað vín sem hentar vel
með sjávarréttum og kjúklingi. ■
Verðlækkun:
Fetzer lækkar í Vínbúðum
Gott á jólunum:
Heitir
jóladrykkir
Gott er að ylja sér á desem-berkvöldum með heitum
drykk. Hér eru uppskriftir að
góðum heitum drykkjum með
jólalegu ívafi.
Heitt súkkulaði
Heitt súkkulaði er klassískur
jóladrykkur fyrir alla fjölskyld-
una. Hægt er að bragðbæta
súkkulaðið eftir smekk með smá
appelsínusafa, koníaki eða
Cointreau.
Suðusúkkulaði brætt í potti.
Smá vatn.
Smá sykur eftir smekk - en athugið vel
að setja ekki of mikið af honum.
Þegar þetta er orðið alveg
bráðið og lint er mjólk bætt í eftir
smekk. Hitað að suðu. Borið fram
með þeyttum rjóma.
Heitur epladrykkur
Einn lítri eplasafi
1/2 bolli púðursykur
1/2 msk negulnaglar
1 kanilstöng
1/8 teskeið salt
Blandið saman og hitið í 20 til
30 mínútur. Lyktin og bragðið af
epladrykknum kemur öllum í
jólaskap.
Heitt toddý
1-2 sykurmolar, gjarnan hrásykur
eða 1 tsk hunang
skvetta úr sítrónusafa
sjóðandi vatn
dökkt romm
Sykurinn og sítrónusafi eru
sett í könnu eða teglas. Sjóðandi
vatni er bætt í þar til um þrír
fjórðu hlutar glassins eru fullir.
Rommi bætt út í. Rommtoddý
yljar vel á köldum kvöldum. ■
WWW.HOLT.IS
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Komið í heimsókn
á www.holt.is
Skoðið verðið á
gistingu og veitingum
Af diskinum
Leikur að elda:
Eplasalat
ÆTLAÐ FJÓRUM
3 stk. græn epli
1 dl hálfþeyttur rjómi
50 g valhnetur
1 lauf ruccolasalat (má sleppa)
rifsber til skreytingar
DRESSING
1,5 dl sýrður rjómi 18%
1,5 dl majones
2 msk. flórsykur
safi úr einni sítrónu
Hrærðu vel saman majonesi,
sýrðum rjóma, flórsykri og
sítrónusafa.
Skrældu eplin og skerðu í
grófa bita. Saxaðu valhneturnar.
Léttþeyttu rjómann.
Blandaðu varlega saman dress-
ingunni, rjómanum, eplunum, val-
hnetunum og ruccolasalatinu.
Settu í skál og skreyttu með
rifsberjum. ■
Auður Eggertsdóttir og
Gunnar Jóhannsson
„Kalkúnn og fullt af meðlæti,“ segir Auð-
ur. „Í eftirmat verður bananabúðingur
eins og verið hefur síðustu þrjátíu ár. Ég
elda.“
Hvað verður í
matinn á jólunum?
MARK WILSON
Heldur jól að íslenskum sið, og lætur sig hafa það að fá magapínu eftir hamborgar-
hrygginn.
Heslihnetur
Heslihnetur eru góðar bæði nýjar og þurrkaðar og eru
reyndar oftar borðaðar þurrkaðar. Þær eru næringar-
ríkar og hollar. Hesli-
hnetur eru mikið not-
aðar í eftirrétti.
Mörgum finnst ein-
staklega jólalegt að
eiga hnetur í skál og
það er fínt snakk
með öllu sælgætinu
um jólin.