Fréttablaðið - 20.12.2003, Blaðsíða 62
20. desember 2003 LAUGARDAGUR
Hin magnþrungna
spennusaga um
Árna Magnússon
er ein mest selda
bókin á
Norðurlöndum.
Árni elst upp í
klaustri á 12. öld,
lærir vopnaburð
og verður stríðsmaður.
Leiðin til Jerúsalem
er framundan.
MILLJÓN EINTÖK SELD
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
Módel IS 1000
3+1+1
verð áður
265.000,-
Verð nú
198.000,-stgr.
3+2+1 verð
áður 285.000,-
Verð nú
219.000,-stgr.
Litir:
Koníaksbrúnt,
Antik-brúnt og ljóst
Einnig til sem horn-
sófar, svefnsófar og
hornsófar með
svefnsófa.
gæða húsgögn
Bæjarhrauni 12, Hf.,
sími 565-1234
Opið til kl. 22 til jóla.
Stórglæsileg ítölsk leðursófassett
67.000,- króna afsláttur
Hollusta yfir jólin:
Má ekki gleyma hreyfingunni
Nú í desember höfum við hjárannsóknaþjónustunni Sýni
verið með hádegisfyrirlestra á
vinnustöðum til að hvetja fólk til að
huga að heilsunni og mataræðinu í
desember ekki síður en aðra mán-
uði ársins,“ segir Anna Sigríður
Ólafsdóttir næringarfræðingur.
„Það er svo algengt að fólk fari í
átak á haustin til að koma heilsu og
holdum í gott form en sleppi svo
fram af sér beislinu þegar desem-
ber gengur í garð, hætti að hreyfa
sig og borði eins og það getur í sig
látið þar til nýtt átak hefst í janúar.
Við viljum svo sannarlega ekki
taka ánægjuna af fólki og láta það
sleppa jólamatnum. Jólin eru nú
einu sinni til þess að njóta, en
kannski ekki bara í mat og drykk.
Einföld ráð eru til dæmis að velja
bara það besta af veisluborðinu.
Margt af því sem er á borðum er
ekki endilega bundið við jólin. Eins
getur það verið fullt eins mikil
nautn að njóta fárra góðra konfekt-
mola eins og að tæma allan kass-
ann. Svo megum við auðvitað ekki
gleyma hreyfingunni. Það er um að
gera að leggja bílnum aðeins lengra
frá verslunarkjörnunum, losna við
stressið og fá sér heilsubótargöngu
í leiðinni. Ef fleiri eru saman að
versla getur svo sá sprækasti skot-
ist eftir bílnum og sótt þá sem burð-
ast með stærstu pakkana.“ ■
Kormákur á Ölstofunni:
Allir á barnum
Ölstofan er einn vinsælasti bar-inn í bænum og þar eins og á
öðrum vinsælum börum er mikið
að gera rétt fyrir jólin. „Fólk hitt-
ist oftar á þessum tíma ársins. Þeg-
ar skólafólkið er búið í prófum og
þeir sem búa í útlöndum eru komn-
ir heim þá fer fólk á barina og hitt-
ir félaga og vini,“ segir Kormákur
Geirharðsson, annar eigenda Öl-
stofunnar.
Kormákur segir mikið að gera
alla vikudagana rétt fyrir jólin.
Föstudagur og laugardagur nægi
fólki ekki til þess að hitta alla fyrir
jólin. Sjálfur stendur hann vaktina,
stundum á bak við barborðið,
stundum hinum megin við það, en í
heildina er jólatörnin í ár rólegri en
í fyrra: „Við opnuðum Ölstofuna í
lok nóvember í fyrra, ég og Skjöld-
ur Sigurjónsson. Þá unnum við tutt-
ugu tíma á sólarhring og fengum
lítinn svefn. Þá var maður nær
taugaáfalli en nokkru sinni fyrr,“
segir Kormákur og jólatörnin á
barnum því mun þægilegri í ár.
Milli jóla og nýárs er líka nóg að
gera á börunum en Kormákur segir
stemninguna á barnum aðeins öðru-
vísi þá en í geðveikinni fyrir jól.
„Fólk er fínna í tauinu, það er mjög
oft að koma beint úr jólaboðum.
Margir eru í fötum sem þeir fengu
í jólagjöf og því fylgir að sjálfsögðu
mikil gleði. Það er gaman að sýna
nýju fötin eða nýja úrið.“
Þrátt fyrir annir í vinnunni nær
Kormákur að sinna jólaundir-
búningnum. „Það hittist hins vegar
þannig á í ár að konan mín er að
vinna í sjónvarpsmynd þannig að
hún kemur heim tólf á kvöldin og
fer út fyrst á morgnana,“ segir
Kormákur – sem hlakkar mikið til
jólanna og lætur stressið ekki ná
tökum á sér.
sigridur@frettabladid.is
ANNA SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR
Vill ekki ræna fólk ánægjunni af jólamatn-
um.
Á ÖLSTOFUNNI
Kormákur vann 20
tíma á sólarhring um
síðustu jól – álagið er
aðeins minna í ár
þó mikið sé að gera.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA