Fréttablaðið - 20.12.2003, Blaðsíða 65

Fréttablaðið - 20.12.2003, Blaðsíða 65
LAUGARDAGUR 20. desember 2003 Guðlaugur Hannesson „Nei, ég á allar eftir. Ætli ég byrji ekki núna og verði að fram á Þorláksmessu.“ Ert þú búinn að kaupa jólagjafir? 61 Íslensk hönnun: Leikfanga- sængurver Þessi leikfangasængurversvokölluðu eru hönnun Hildar Jonz myndlist- arkonu, en hún fékk hug- myndina eftir að hún eignað- ist sjálf barn. Sængurverin eru úr bómul og þunnu ull- arfilti á þeirri hlið sem snýr að barninu, en ofan á þeim eru litskrúð- ugar og mjúkar keilur sem barnið getur leikið sér með. Sængurverin eru hlý viðkomu en ef barninu hættir til að svitna verð- ur verið ekki kalt og stíft, heldur sýgur það í sig bleytu. Leik- fangasæng- urverið hef- ur vakið mikla lukku en er ennþá í þróun, að sögn Hildar. ■ FALLEG OG PRAKTÍSK Halda hita á barninu og hafa ofan af fyrir því um leið. KEILUM OG KÚLUM ER SMELLT Á VERIÐ Leikfangasængurverin eru enn í þróun. SNIÐUG LEIKFÖNG Hægt að nota sem geymslu fyrir snuð. Mynd: Gunnar Karlsson fyrir Jólahefti Rauða krossins. Vísurnar eru eftir Jóhannes úr Kötlum og teknar upp úr bókinni Jólin koma sem gefin var út af Máli og menningu. Bjúgnakrækir Níundi var Bjúgnakrækir, brögðóttur og snar. Hann hentist upp í rjáfrin og hnuplaði þar. Á eldhúsbita sat hann í sóti og reyk og át þar hangið bjúga, sem engan sveik. Til byggða í nótt Margir vinahópar hafa tekið uppþann sið að hittast fyrir jól og hafa það huggulegt, jafnvel skiptast á smágjöfum eins og gert var í barnaskóla. Ef þið viljið krydda upp á þessi gjafaskipti fylgir hér tillaga að teningaspili fyrir fullorðna, sem líklega á rætur að rekja til Dan- merkur. Mikilvægt er að gjafirnar séu hvorki dýrar né merkilegar og að enginn í hópnum sé sérstaklega tapsár. Allir koma með einn pakka og eru þeir settir í hrúgu á borð. Þátt- takendur raða sér svo kringum borðið, með einn spilatening. Er ten- ingurinn látinn ganga réttsælis og hver þátttakandi kastar einu sinni þegar röðin er komin að honum. Í hvert skipti sem einhver fær sex má hann velja sér pakka. Teningurinn er látinn ganga þar til allir pakkarnir eru komnir í hendur þátttakenda. Þá er vekjara- klukka stillt þannig að hún muni hringja eftir 10 til 15 mínútur og hefst þá sá hluti leiksins sem er mest spennandi. Teningurinn er lát- inn ganga eins og áður en nú mega þátttakendur taka einn pakka frá einhverjum öðrum keppanda þegar þeir fá sex. Þegar klukkan hringir er leiknum lokið og þeir sem eru með pakka mega taka þá upp og njóta innihaldsins. Yfirleitt situr einhver eftir með sárt ennið og enga pakka. Því er ráðlegt að gestgjafinn hafi á tak- teinum skammarverðlaun til að lina sárustu kvalirnar. ■ LEIKURINN SKAPAR MIKLA SPENNU Stærstu pakkarnir verða oft mjög eftirsóttir og skipta oft um hendur. Öðruvísi litlu jól: Spilað upp á pakkana
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.