Fréttablaðið - 20.12.2003, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 20.12.2003, Blaðsíða 12
12 20. desember 2003 LAUGARDAGUR Hjálparsími Rauða krossins: Haldreipi á erfiðum stundum HJÁLP Þeir sem haldnir eru kvíða eða sjálfsvígshugsunum eða þurfa af öðrum ástæðum ein- hvern til að tala við geta leitað til Hjálparsíma Rauða krossins. Sím- inn er opinn allan sólarhringinn allan ársins hring. Þeir sem finna fyrir einmanakennd yfir hátíðirn- ar eða finnst lífið erfitt eru hvatt- ir til að hringja í 1717. Valgerður Sverrisdóttir iðnað- ar- og viðskiptaráðherra afhenti nýlega Rauða krossinum 250.000 króna ávísun sem ráðuneytið sparaði sér í jólakortasendingum og ákvað að leggja í Hjálparsím- ann. Valgerður segir gott að vita til þess að fé sem annars hefði farið í staðlaðar jólakortasending- ar yrði í staðinn nýtt til hjálpar- starfs. ■ Hildur G. Eyþórsdóttir: Metaðsókn í Mæðrastyrks- nefnd „Það er búið að vera mikið að gera og fjöldinn aldrei verið meiri,“ segir Hildur G. Eyþórs- dóttir, formaður Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur. Hún segir 1.300 manns þegar hafa leitað sér aðstoðar. „Það fengu 1.150 manns úthlutað í fyrra. Þá er viðbúið að hátt í 230 manns leiti til okkar á mánudag þegar síð- asta úthlutun fer fram. Hildur segir að vegna anna verði ekki hægt að afgreiða alla. Gripið hefði verið til þess ráðs að fólk fái afgreiðslunúmer. „Við höfum þurft að hafa há- marksfjölda á degi úthlutunar en samt höfum við unnið langt fram á kvöld. Eins hefur þetta verið nauðsynlegt af því frystikistur og kælar taka tak- markað magn af matvörum.“ Sú nýjung er hjá Mæðra- styrksnefnd að opnað verður að nýju fyrir úthlutun miðvikudag- inn 14. janúar. „Það hefur sýnt sig að þörfin þá er ekki síður nauðsynleg. Eftir það verður síðan opið einu sinni í viku.“ Hildur segir almenning í landinu bregðast vel við og hefur stungið jólapakka undir jólatrén bæði í Smáralind og Kringlunni. „Við erum þegar búnar að fá 35 stóra plastpoka fulla af gjöfum og eigum von á heilmiklu í viðbót. Við erum afar þakklátar öllum þeim sem hafa gefið bæði fjármuni og matvæli.“ Vilborg Oddsdóttir: Allir aldurshópar sækja aðstoð „Ég get ímyndað mér þegar uppi er staðið að við afgreiðum eitt þúsund matarpakka. Það er aðeins minna en í fyrra en þess ber að geta að þá var óvenju mikil aukning,“ segir Vilborg Oddsdóttir hjá Hjálparstofnun kirkjunnar. Vilborg segir allan aldur sækja sér aðstoð. „Við erum að sjá allt frá ungum og atvinnu- lausum körlum upp í fólk á ní- ræðisaldri. Það eiga margir um sárt að binda. Yfirleitt er um að ræða fólk sem lifir á strípuðum öryrkjabótum, atvinnuleysis- bótum eða er á framfærslu sveitarfélaganna. Fólk er ekki að framfleyta sér á 70.000 krón- um á mánuði.“ Hjálparstofnun kirkjunnar hefur verið með úthlutun allan desembermánuð. Vilborg segir flesta einungis sækja sér aðstoð fyrir jólin. Um sé að ræða ríf- lega matarpakka í stað hefð- bundins jólamats. „Þessu fólki munar um hverja krónu til þess að geta keypt jólagjafir handa börnunum sínum. Með þessari desemberúthlutun losum við um peninga hjá fólki og eins að það geti valið sér þann jólamat sem það sjálft kýs að kaupa.“ Formlegri úthlutun lauk í gær. Á mánudag verður opið milli klukkan 14 og 16 og segir Vilborg þá úthlutað þeim vörum sem eftir standa. Ásgerður Jóna Flosadóttir: Þjónum fólki óháð aldri, kyni og búsetu Umsóknirnar sem við erum bún- ar að afgreiða eru sjö hundruð tals- ins. Við reiknum með að baki þess- ari tölu standi í kringum 1800 manns,“ segir Ásgerður Jóna Flosa- dóttir, framkvæmdarstjóri Fjöl- skylduhjálpar Íslands. Hún segir fólk á öllum aldri leita aðstoðar. „Við þjónum fólki óháð aldri, kyni og búsetu. Áberandi margir hafa komið bæði frá Hveragerði og Þor- lákshöfn.“ Ásgerður segir Fjölskylduhjálp- ina úthluta hefðbundnum mat, mjólkurvörur, brauð og grænmeti. Minna sé um jólamat. „Þá höfum við getað hjálpað öllum með jólapakka, jólaskraut, sælgæti, kerti og fleira.“ Ásgerður segir konur og karla eiga jafnan aðgang að Fjölskyldu- hjálpinni. „Karlar er sá hópur sem hefur gleymst í hinum hefðbundnu úthlutunum. Áberandi eru feður sem ekki hafa forræði yfir börnum sínum. Þeir fá börnin til sín aðra hverja helgi og leita þá til okkar en margir eiga hreinlega ekki fyrir mat.“ Ásgerður segir hlutfall þeirra karla sem leita til Fjölskylduhjálpar milli 30 og 35 prósent. Síðasta úthlutun hjá Fjölskyldu- hjálp Íslands fer fram á mánudag klukkan 14–16. „Ég veit ekki hvað verður mikið eftir af matvælum í boði en í staðinn leggjum við áherslu á jólapakka.“ Hún bendir á að allir pakkar verði teknir undan jólatrján- um sem eru í Kringlunni og Smára- lind að kvöldi 21. desember. kolbrun@frettabladid.is AÐSTOÐ Í STAÐ JÓLAKORTASENDINGA Helga G. Halldórsdóttir, yfirmaður hjá RKÍ, veitti ávísuninni viðtöku úr hendi Valgerðar Sverrisdóttur. BEÐIÐ EFTIR AÐSTOÐ Neyðin er mikil í samfélaginu. Þeir sem þurfa á aðstoð að halda bíða oft í marga klukkustundir eftir að fá úthlutað. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Fleiri þúsund leita aðstoðar Talsmenn hjálparstofnana eru sammála um að mikil neyð ríki í sam- félaginu. Fleiri þúsund manns hafa þegar leitað sér aðstoðar. Áberandi fleiri karlmenn sækja nú eftir neyðaraðstoð. ARGENTÍNSKUR JÓLASVEINN Ungur drengur spjallar við argentínskan jólasvein. Ekki er vitað hvað þeir voru að ræða en ólíklegt er að það hafi verið at- vinnumál. Útlitið í argentínsku atvinnulífi er hins vegar aðeins bjartara nú en áður. Atvinnuleysi hefur minnkað úr tæpum 16% í vor í 14%. Mjólkurlítrinn: 130 krónur með öllu NEYTENDUR Bændur fá að lágmarki tæpa 81 krónu fyrir hvern lítra af mjólk sem þeir skila inn til afurða- stöðva frá og með næstu áramótum samkvæmt ákvörðun verðlagsnefnd- ar búvara. Afurðastöð greiðir bænd- um 42,71 krónu fyrir lítrann og að auki fá bændur 38,03 krónur á hvern lítra sem beingreiðslu úr ríkissjóði. Út úr búð kostar hver lítri af ný- mjólk í kringum 90 krónur. Hver lítri því um 130 krónur þegar hvort tveggja er tekið tillit til þess sem neytendur greiða við búðarborðið og þess sem greitt er í gegnum skattkerfið og stuðning við land- búnað. ■ BÖRNIN VERNDUÐ Taívanar hafa tekið fram sóttvarnargrím- urnar að nýju af ótta við annan faraldur bráðalungnabólgu. Bráðalungnabólgutilfelli í Taívan: Sjúklingur- inn skamm- aðist sín TÆVAN Taívanskur karlmaður sem smitaðist af bráðalungnabólgu dró það leita sér læknishjálpar af ótta við að verða þjóð sinni til skammar. „Hann samþykkti loks að fara á sjúkrahús eftir að ég hótaði að svipta mig lífi,“ sagði faðir sjúk- lingsins í viðtali við taívanska sjónvarpsstöð. Maðurinn, sem starfaði á rannsóknarstofu í Taív- an, smitaðist fyrir tveimur vikum þegar hann komst í snertingu við vökva sem helltist úr til- raunaglasi. Skömmu síðar fór hann á ráðstefnu í Singapúr. Um 110 manns eru í sóttkví í Taívan og Singapúr en ekkert bendir til þess að einhver þessara einstak- linga hafi smitast af HABL- veirunni. ■ VARNARFLAUGAR Japanar hafa ákveðið að byggja upp nýtt eldflaugavarnarkerfi. Japanar vígvæðast: Aðeins til varna JAPAN Japanar hafa ákveðið að byggja upp eigið eldflaugavarnar- kerfi til þess að verja sig fyrir hugsanlegum árásum og nýta til þess bandaríska tækniþekkingu. Talsmaður japanska varnarmála- ráðuneytisins sagði að kerfið væru einungis ætlað til varna og alls ekki ætlunin að hægt verði að nota það gegn öðrum þjóðum. Áætlaður kostnaður við varn- arkerfið er um 6,5 milljarðar doll- ara og hefur stuðningur við upp- byggingu þess aukist síðan Norð- ur-Kóreumenn skutu stýriflaug yfir Japan fyrir fimm árum í til- raunaskyni. ■ BALDUR VILHELMSSON Saga hans gengur vel í Vestfirðinga. Bóksala á Ísafirði: Vestfirðingar söluhæstir BÓKSALA Sjötta bindi nýrra vest- firskra þjóðsagna Gísla Hjartar- sonar, er þessa dagana mest selda bókin í Bókhlöðunni á Ísafirði. Þetta kemur fram á fréttavefnum bb.is. Á hæla Gísla kemur saga séra Baldurs Vilhelmssonar í Vatnsfirði sem Hlynur Þór Magn- ússon færði í letur. Harry Potter og Fönixreglan er þriðja sölu- hæsta bókin og bók Jóns Páls Halldórssonar, Fiskvinnsla í sex- tíu ár, er í fjórða sæti. ■ FYRSTI SAMNINGAFUNDURINN Samninganefndir Starfsgreinasamabndsins og ríkisins hittust í húsakynnum ríkissátta- semjara í gær. Þetta var fyrsti fundur deilu- aðila eftir að málinu var vísað til sátta- semjara. Kjaraviðræður: Næsti fund- ur á þrett- ándanum KJARASAMNINGAR Samninganefndir Starfsgreinasambands Íslands og ríkisins komu saman til stutts fundar í húsakynnum ríkissátta- semjara í gær. Starfsgreinasam- bandið vísaði kjaraviðræðunum til sáttasemjara á dögunum þar sem ekkert þokaðist í viðræðum aðila um jöfnun lífeyrisréttinda og aðrar kröfur sambandsins. Starfsgreinasambandið endur- skoðaði áður framlagðar kjara- kröfur eftir að frumvarp um eftir- laun æðstu ráðamanna ríkisins var lagt fram á Alþingi. Nú er þess krafist að lífeyrisréttindi alls launafólks verði samræmd við líf- eyrisréttindi í A-deild Lífeyris- sjóðs starfsmanna ríkisins. Hlé verður nú gert á kjaravið- ræðum deilenda fram yfir hátíðir og hittast samninganefndirnar næst hjá sáttasemjara á þrettánd- anum. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.