Fréttablaðið - 20.12.2003, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 20.12.2003, Blaðsíða 45
LAUGARDAGUR 20. desember 2003 Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 17.830 kr. á mannVer› frá* Sumarhúsaeigendur á Spáni! Beint leiguflug til Alicante. Ver›- lækkun á sumar og sól Sala hefst á Netinu í dag á ód‡ru sumarfargjöldunum til Alicante. A›eins 200 sæti í bo›i. Flugdagar eru: 2., 15. og 25. apríl, 19. maí og sí›an alla mi›vikudaga í sumar. Flogi› er í beinu leiguflugi me› Icelandair í morgunflugi. Muni› a› hjá Plúsfer›um er unnt a› grei›a 7.500 kr. me› Atlasávísunum og VR ávísunum a› eigin vild og lækka fer›akostna›inn. www.plusferdir.is N E T 25.330 kr. - 7.500 kr. VR ávísun = 17.830 kr. Gildir í ferðir frá 15. apríl til 15. október. 24.940 kr. á mann m.v. að 2 fullorðnir og 2 börn ferðist saman. 15.230 kr. á mann *Verð miðast við að bókað sé á Netinu, sé bókað með öðrum leiðum bætast við þjónustugjöld á hverja bókun. 22.730 kr. - 7.500 kr. VR ávísun = 15.230 kr. 25. apríl - 50 sæti í boði. NetPlús er eingöngu bókanlegur á Netinu. Al ic an te ■ Sagt og skrifað RITHÖFUNDUR FORDÆMDUR Pólitískur rétt- trúnaður á ekki beinlínis upp á pallborðið hjá metnaðarfullum rithöfundum. Enska skáld- konan Monica Ali hefur brugð- ist illa við ásök- unum um að hún hafi gert innflytjendur frá Bangladess að stereótýpum í skáldsögu sinni Brick Lane. Brick Lane, sem er fyrsta skáld- saga Ali, hefur fengið frábæra dóma og var tilnefnd til hinna virtu Booker-verðlauna. Nú hafa bresk samtök, sem segjast vera fulltrúar 500.000 innflytjenda frá Bangladess, sent frá sér harðort bréf þar sem bók Ali er fordæmd vegna klisjukenndra lýsinga á samfélagi innflytjenda. Bréfið var sent til The Guardian. Blaðið gerði mikið úr bréfinu og setti samasemmerki milli þess og hót- ana í garð Salmans Rushdies fyr- ir Söngva Satans. Ali er lítt hrifin af þessari samlíkingu blaðsins enda neyddist Rushdie til að ráða sér lífverði vegna líflátshótana. „Ég á tvö ung börn. Gerir þessir menn sér ekki grein fyrir því að þeir eru að leika sér að lífi fólks?“ spyr Ali. Ali er fædd í Bangladess og fyrr á þessu ári neituðu yfirvöld þar í landi henni um vegabréfsá- ritun. Í Brick Lane talar ein per- sónan, sem er frá Bangladess, niðrandi um landa sína, reyndar á gamansaman hátt. Ali er skiljan- lega bæði undrandi og sár vegna þess að orð sögupersónu eru gerð að hennar eigin skoðunum. Hún segir að Brick Lane sé skrifuð af ást og að hún hafi samúð og skiln- ing á öllum persónum verksins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Sænskir gagnrýnendur hafa val-ið Mýrina bestu glæpasögu ársins þar í landi. Þetta kom fram í þættinum Deadline í sænska rík- isútvarpinu, sem fjallar einkum um glæpasögur. Hlustendur þátt- arins velja á hverju ári bestu glæpasögu, kvikmynd og leikrit ársins sem hljóta Caliber-verð- launin en að þessu sinni var hópur gagnrýnenda fenginn til að út- hluta verðlaununum. Verðlaunun- um fylgir bikar sem er eins og skothylki í laginu og nefnist Patrónan. Mýrin er meðal tíu bestu glæpasagna ársins í Svíþjóð að mati gagnrýnanda Aftonbladet og þá var bókin tilnefnd til Martin Beck-verðlaunanna sem besta þýdda glæpasagan í ár. Áður hef- ur Glerlykillinn, Norrænu glæpa- sagnaverðlaunin, fallið Arnaldi í skaut fyrir Mýrina 2002 og Graf- arþögn fyrr á þessu ári. Enginn höfundur hefur áður fengið verð- launin tvívegis. Mýrin kom út í Svíþjóð nú í haust og hefur fengið góðar mót- tökur þarlendra lesenda. Gagn- rýnendur hafa lofað hana í hástert. Meðal annars sagði gagnrýnandi Syd svenska dagbladet, Jan Bro- berg, að Mýrin væri ein besta glæpasaga sem hann hefði nokkurn tíma lesið og að ef Svíar ætluðu sér að kaupa eina glæpasögu þetta haustið þá ætti það að vera Mýrin. Þá ritaði gagnrýnandi Aftonbladet að Mýrin væri vel skrifuð og léti engan ósnortinn. Mýrin hefur nú verið seld til fjórtán landa og hafa viðtökur hvarvetna verið góðar. Þess má geta að bókin hefur nú verið seld í meira en 140.000 eintökum í Þýska- landi og fyrsta prentun á Grafar- þögn þar í landi, sem út kemur í mars, verður 100.000 eintök. ■ Óttarr Proppé, starfsmaðurMáls og menningar og fyrrum söngvari Ham, er lesandi vikunn- ar, enda annálaður lestrarhestur. Óttarr nefnir sjö bækur sem uppá- haldsbækurnar sínar um þessi jól, af þeim sem hann hefur þegar les- ið. Hér eru umsagnir hans: Landslag er aldrei asnalegt eftir Bergsvein Birgisson Ótrúlega flott byrjendaverk sem nær því að vera hvorki kunn- uglegt né framandi. Dálítið eins og Ísbjarnarblús Bubba Morthens nema bara með færri karakterum og minni kjaft. Ein af þessum frá- bæru bókum sem er ekki beint um neitt en er samt ekki hægt að leggja frá sér. Eftir lesturinn læddist að mér sá grunur að ein- hver sjóaður rithöfundur hefði komið sjálfum sér svo á óvart að hann hefði gefið hana út undir dul- nefni. Var rosa ánægður þegar það reyndist ekki á rökum reist. Ótrú- lega flott byrjendaverk. Áhrif mín á mannkynssöguna eftir Guðmund Steingrímsson Ég vissi ekki alveg hvað ég átti að halda með þessa eða af hverju mér fannst hún svona skemmtileg. Svo sagði einhver að það væri tá- fýla af henni og þá kveikti ég. Það er nefnilega táfýla af henni og þótt táfýla sé kannski dálítið súrt fyrir- bæri þá virkar hún eins og ferskur andblær á mig. Flott að fá táfýlu í staðinn fyrir þessa yfirgengilegu hversdags fýlu sem er alltaf verið að bera á borð fyrir mann á skítug- um skónum. Skuggabaldur eftir Sjón Hafi Sjón verið sögu ríkari, þá gæti þetta verið sagan. Ég hef alltaf verið skotinn í Sjón sem höf- undi en nú hefur honum tekist að búa til einn af þessum bók- menntalegu gullmolum sem er stærri en höfundurinn. Þessi saga gæti verið eftir Benedikt Gröndal eða næstum hvaða lykilhöfund okkar sem er. Hún er það bara ekki, hún er eftir Sjón. Hann lýgur mann fullan og treður mann svo út af sannleik. Ef einhverjum finnst þessi bók of stutt, getur hann bara lesið hana aftur! Svartir Englar eftir Ævar Örn Jósepsson Ævari Erni hefur tekist að skapa söguhetjur og atburðarás í reykvískum krimma sem maður trúir frá A til Ö. Einhvern veginn kannast maður við þetta flest, ekki síst það lygilegasta. Þetta er ofsa- lega reykvísk bók, maður líður fyrir það að fara með sögupersón- unum upp fyrir Ártúnsbrekkuna, en samt er þetta mjög veraldarvön bók. Sem forfallinn krimmafíkill var gaman að lesa íslenskan krimma þar sem maður gleymdi því oft að maður væri að lesa krimma frá Íslandi. Einræður Steinólfs Þeim fer fækkandi sérvitring- um íslenskum, hvað þá sérvitrum snillingum. Steinólfur í Ytri- Fagradal á Skarðsströnd er hvort tveggja og í ofanálag er hann með mælskari mönnum sem náðst hafa á bók. Það er ekki nokkur leið að taka ekki afstöðu til þessarar bókar og þess sem í henni er sagt. Það er allt of sjaldgæft að bækur neyði mann til þess núorðið. Bobby Fischer Goes to War eftir David Edmonds & John Eidinow Bobby Fischer er eitt af þessum flottu undrabörnum og furðu- fuglum sem er ekki hægt að slíta augun af. Hver man ekki þegar hann skyrpti á skeytið frá banda- ríska utanríkisráðherranum í beinni. Þessi gaur fékk alla Íslend- inga á móti sér með því að móðga sovéska séntilmennið Spassky. Svo sjarmeraði hann okkur öll jafnharðan upp úr skónum aftur, með því einu að bursta téðan Spassky. Svona afreka bara snill- ingar. Þessa bók prýða fróðleikur, spenna og góður slatti af íslensk- um lúðaskap, að ógleymdum þeim KGB og Henry Kissinger að bralla bak við tjöldin. Er hægt að hugsa sér það betra? Ég var sjálfur of ungur til að geta munað eftir heimsmeistaraeinvíginu. Eftir að hafa lesið þessa bók líður mér eins og ég muni bara nokkuð vel eftir því. Da Vinci Code eftir Dan Brown Þessi heldur spennunni svo vel að manni hættir að standa á sama. Stútfull af frábærri listasögu, dul- málskóðapælingum með slatta af samsæriskenningum. Þegar það er svona mikið kjöt á beinunum skiptir ekki öllu hvort beinagrindin er sæt eða ekki. Á köflum þegar flækjan er orðin álíka ólíkleg og í James Bond, þá kann manni að blöskra eitt andar- tak. En svo dettur maður ofan í ein- hverja flækju frá miðöldum og áttar sig ekki á pirringnum fyrr enn 50 síðum síð- ar. Þá er maður bara gáttaður á sjálfum sér, hristir hausinn og les áfram. ■ MONICA ALI Samtök innflytjenda frá Bangladess for- dæma rómaða skáldsögu hennar, Brick Lane. Jólabækur Óttars Proppé ÓTTARR PROPPÉ Hann er starfsmaður Máls og menningar og á sér þó nokkrar uppáhaldsbækur um þessi jól. Sænskir gagnrýnendur velja bestu glæpasöguna í ár: Mýrin er best ARNALDUR INDRIÐASON Sænskir gagnrýnendur völdu Mýrina bestu glæpasögu ársins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.