Fréttablaðið - 20.12.2003, Blaðsíða 40
Útlitið var frekar dökkt hjáhinu tvístraða föruneyti
Hringsins þar sem áhorfendur
skildu við það í lok The Lord of
the Rings: The Two Towers.
Aragorn, álfurinn Legolas, dverg-
urinn Gimli og Gandálfur leiddu
álfa og menn í mikilvægum
áfangasigri þegar þeir hrundu
áhlaupi hins illa á Hjálmsvirki.
Fróði og Sámur stefndu á sama
tíma ótrauðir áfram inn í Mordor
til þess að eyða Hringnum eina í
Dómsdyngju. Staða hobbitanna
tveggja var þó heldur bágborin
þar sem dregið var af Fróða, sem
var að sligast undan byrðum
Hringsins, og til þess að bæta gráu
ofan á svart var þeim félögum
nauðugur einn sá kostur að þiggja
leiðsögn slímuga og undirförla
geðklofans Gollris, sem hefur það
eina takmark að koma höndum
aftur yfir hringinn eftirsótta.
Sauron ekki af baki dottinn
Þráðurinn er tekinn upp í The
Return of the King þar sem frá
var horfið í The Two Towers.
Gandálfur og Aragorn gera sér
ljóst að hinn illi Sauron muni ekki
láta ósigurinn við Hjálmsvirki
setja sig út af laginu og byrja
strax að safna saman liði til að
verjast næsta áhlaupi. Þeir vita
fyrir víst að óvinurinn muni nú
láta til skarar skríða af alefli og
lokaorrustan um framtíð mann-
kyns og Miðgarðs er í uppsiglingu.
Þeir félagar eru einnig meðvit-
aðir um að öll þeirra andspyrna er
til einskis nema Fróða takist ætl-
unarverk sitt; að eyða Hringnum
illa í hraunflóði Dómsdyngju. Þeir
hafa hins vegar ekkert til að styðj-
ast við nema vonina þar sem þeir
hafa engar spurnir haft af Fróða
og Sámi, sem gætu allt eins verið
dauðir. Hobbitarnir þrauka þó enn
og þokast nær áfangastað sínum
þó hætturnar leynist við hvert fót-
mál og Gollrir sé til alls líklegur
og bruggi þeim banaráð.
Stórfengleg orrusta við
Minas Tirith
Gandálfur kemst að því að
Sauron hyggst stefna orkaherjum
sínum til Minas Tirith og því
leggja hann og Aragorn allt kapp
á að sameina sundurleitan liðsafla
mannkynsins fyrir úrslitaorrust-
una. Mennirnir mega sín þó ekki
mikils gegn orkafjöldanum og
Aragorn verður því að gangast við
því að blátt blóð rennur í æðum
hans og krefjast liðveislu her-
skara gamalla liðhlaupa sem eiga
eftir að efna vilyrði sem þeir gáfu
forföður Aragorns um liðveislu í
bardaga.
Þessum fylkingum lýstur
síðan öllum saman í
stórbrotnasta bar-
dagatriði sem sést
hefur í kvik-
myndahúsi. Það
var ekkert til
sparað í
átakasenum
millikaflans en Jackson tekst hér
hið ómögulega og toppar fyrri af-
rek sín gjörsamlega.
Hávær krafa um viðurkenningu
The Return of the King er lang-
lengsta myndin í þríleiknum en
stendur fyllilega undir þremur
klukkutímum og tuttugu mínútum
þannig að þessi glæsilegu sögulok
gulltryggja The Lord of the Rings
sem eina allra bestu myndaröð
sem gerð hefur verið.
Óskarsverðlaunaakademían
hefur gengið fram af aðdáendum
myndanna í tvígang með því að
velja hvorki The Fellowship of the
Ring né The Two Towers bestu
myndina og það mun teljast til
meiriháttar tíðinda ef þetta verð-
ur ekki leiðrétt í vor nú þegar
hægt er að gera snilldarverk
Jacksons upp í heild sinni.
Gamla brýnið Christopher Lee,
sem leikur Saruman hinn hvíta í
þríleiknum, segir í viðtali við
breska kvikmyndatímaritið
Empire að hann sé þess
fullviss að þríleikurinn muni ríða
feitum hesti frá verðlaunaafhend-
ingunni á næsta ári.
„The Return of the King verður
valin besta myndin og Peter
Jackson fær verðlaun sem besti
leikstjórinn.“ Lee er gamall í hett-
unni og gerði garðinn til að mynda
frægan í hlutverki Dracula í
Hammer-hryllingsmyndunum og
hefur sýnt snilldartilþrif upp á
síðkastið bæði í Lord of the Rings
og öðrum hluta nýja Star Wars-þrí-
leiksins. „Ég var að vinna með
George Lucas ekki alls fyrir löngu
og hann sagði við mig að hann hefði
ekki getað gert Lord of the Rings
með þessum glæsibrag.“
Lee komst í fréttir um daginn
þegar hann lýsti óánægju sinni
með að öll atriði með Saruman
voru klippt út þegar The Return of
the King var stytt niður í þá rúmu
þrjá klukkutíma sem eftir standa.
Hann ber þó leikstjóranum vel sög-
una og segir Jackson hafa frábært
skopskyn og ótrúlegt úthald.
Framlenging á ævintýrinu
Þeir sem sakna
Sarumans úr lokakafl-
36 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
PETER JACKSON
Leikstjórinn er sáttur við afrakstur sjö ára
vinnu og leggur verk sitt og sýn á Hringa-
dróttinssögu Tolkiens ósmeykur fyrir dóm
áhorfenda.
Sjö ár í
Hringnum
Síðustu sjö ár ævi minnar hafafarið í að skrifa, leikstýra og
framleiða þríleikinn um Hringa-
dróttinssögu. Þetta hefur verið erf-
ið ferð, ekki ólíkt þeirri sem sögu-
persónurnar okkar, Fróði og Sámur,
fóru. Það hefur ekki verið mikið um
svefn, lítill tími fyrir venjulegt líf
og það komu dagar þar sem við ef-
uðumst öll um að við kæmumst
nokkurn tíma á leiðarenda,“ segir
leikstjórinn Peter Jackson þegar
hann fylgir The Return of the King
úr hlaði.
„Eftir tveggja ára undirbúnings-
vinnu tóku við 274 tökudagar og að
þeim loknum hófst þriggja ára eftir-
vinnsla. Á hverju framleiðslustigi
komu upp erfið viðfangsefni og
ótrúlegar hindranir. Ég spurði sjálf-
an mig oft að því hvort ég vildi held-
ur vera að fást við eitthvað annað en
gerð Hringadróttinssögu. Svarið
var alltaf „nei“. Ástæðan er einfald-
lega sú að ég hef verið þeirrar gæfu
aðnjótandi að fá að vinna með
mörgu af því hæfileikaríkasta fólki
sem nokkur kvikmyndagerðarmað-
ur gæti óskað sér. Í gegnum öll
þessi löngu ár var það ljóst að við
áttum eitt sameiginlegt; mikla og
langlífa ást á bókunum sem skilaði
sér í skilyrðislausri viðleitni til að
gera okkar allra besta við gerð
myndanna. Ég verð alltaf þakklátur
New Line Cinema fyrir að gefa mér
tækifæri til að færa mína sýn á
Hringadróttinssögu á hvíta tjaldið,“
segir Peter Jackson og heldur
áfram: „Þríleikurinn er svo sannar-
lega úr mínum höndum núna og er
kominn til þeirra sem hann var
gerður fyrir; fólksins sem elskar
bækurnar og hefur alltaf þótt vænt
um bíómyndir.“ ■
Hringnum lokað
með glæsibrag
FRÓÐI
Hetjan litla burðast enn með Hringinn eina og veit varla í hvorn loðfótinn hann á að stíga
enda Hringurinn þekktur fyrir að hafa í meira lagi slæm áhrif á þá sem ganga með hann.
GANDÁLFUR
Ian McKellen fer sem fyrr hamförum í hlut-
verki vitkans og sýnir hörkutilþrif í stór-
orrustum magnaðs lokakaflans.
Þriðji hlutinn af Hringadróttinssögu kemur í bíó á
annan í jólum. Útlitið var dökkt hjá söguhetjunum í
lok annars hluta en lokaorrustan er eftir. Heimildir
herma að bíóunnendur megi búast við einhverri stór-
brotnustu bardagasenu kvikmyndasögunnar.