Fréttablaðið - 20.12.2003, Side 10
10 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
PAVAROTTI Í MOSKVU
Óperusöngvarinn Luciano Pavarotti kom til
Moskvu í gær. Á morgun syngur hann lög
af nýjustu breiðskífu sinni „Ti Adoro“ á
tónleikum í Kremlin-höllinni.
Lee Boyd Malvo var fundinn sekur um morð:
Ekki viljalaust verkfæri
VIRGINÍA, AP Kviðdómur í Chesa-
peake í Virginíu fann hinn átján
ára gamla Lee Boyd Malvo sekan
um morð af yfirlögðu ráði. Malvo,
sem átti aðild að leyniskyttumorð-
unum í Bandaríkjunum á síðasta
ári, hallaði sér fram á borðið og
horfði svipbrigðalaus út í tómið
þegar dómurinn var kveðinn upp.
Eftir að hafa fundað í alls
þrettán klukkustundir ákvað kvið-
dómurinn að vísa á bug þeirri full-
yrðingu verjenda Malvos að hann
hefði verið heilaþveginn af vit-
orðsmanni sínum John Allen
Muhammad. Malvo var því fund-
inn sekur um að hafa myrt Lindu
Franklin, starfsmann bandarísku
alríkislögreglunnar FBI, í Virgin-
íu í október 2002.
Muhammad var sakfelldur í
Virginia Beach í nóvember og
mælti kviðdómur með því að hann
yrði tekinn af lífi fyrir að skipu-
leggja leyniskyttumorðin. Það
bíður nú kviðdómsins í Chesa-
peake að skera úr um það hvort
Malvo skuli hljóta dauðarefsingu
eða lífstíðarfangelsi án möguleika
á reynslulausn.
Lee Boyd Malvo og John Allen
Muhammad skutu tíu manns til
bana og særðu þrjá í Washington,
Maryland og Virginíu. Hugsanlegt
er að einnig verði réttað yfir þeim
vegna morðanna í Maryland. ■
Brotnaði niður og grét
Dóttir Saddams segir að tilgangurinn með því að sýna slæmt útlit og ástand föður hennar í sjón-
varpi um víða veröld hafi aðeins verið að brjóta niður baráttuþrek araba. Segir manninn á
skjánum ekki þann föður sem hún þekkti og augljóst að hann hafi verið undir áhrifum lyfja.
ÍRAK Raghad Hussein, elsta dóttir
Saddams Husseins, fyrrum Íraks-
forseta, segist hafa brotnað niður
og grátið þegar hún heyrði frétt-
irnar af handtöku föður síns.
Þetta kom fram í sjónvarpsviðtali
á bandarísku CNN-sjónvarpsstöð-
inni sem sent var út frá Amman í
Jórdaníu í fyrradag. Raghad sagði
einnig að tilgangurinn með því að
sýna slæmt útlit og ástand föður
hennar í sjónvarpi um víða veröld
hafi aðeins verið
að brjóta niður
b a r á t t u þ r e k
araba.
Áður hafði
Raghad haldið
því fram að föð-
ur hennar hefðu
verið gefin ró-
andi lyf daginn
sem hann var
handtekinn og
það ítrekaði hún
í viðtalinu á CNN. „Þetta var ekki
sá faðir sem ég þekkti. Allir sem
þekkja föður minn sáu að hann
var ekki með fullri meðvitund. Ég
sá það strax að hann var undir
áhrifum lyfja og er hundrað pró-
sent viss um það. Ég tel að ein-
hver sem hann hefur treyst hafi
sett eitthvað í matinn hans eða þá
að einhverri hertækni eða gasi
hafi verið beitt til að deyfa hann.
Ég veit að annars hefði hann
aldrei gefist upp,“ sagði Raghad
og bætti því við að þetta hefði ver-
ið eins og að horfa á sápuóperu.
„Það var skelfilegt að sjá hann
á skjánum. Mér fannst þetta
hryllilegt, sársaukafullt og
grimmilegt og það særði mig
djúpt. Faðir minn var þekktur fyr-
ir hugrekki sitt og staðfestu og
sjálf varð ég vitni að styrk hans
og þrautseigju á erfiðum tímum.
Hann var alltaf stoltur og virðu-
legur og hugrekki hans var þekkt,
ekki síður gagnvart óvininum,“
sagði Raghad, sem vonast til þess
að geta einhvern tíma hitt föður
sinn aftur.
Raghad, sem er ein þriggja
dætra Saddams, sagðist ekki hafa
trú á því að faðir hennar fengi
sanngjörn réttarhöld vegna þess
að ákvörðunin um það væri í
höndum óviðurkenndra aðila.
„Íraska framkvæmdaráðið hefur
ekki hlotið viðurkenningu alþjóð-
legasamfélagsins eða araba-
heimsins. Það hefur í raun hvergi
verið viðurkennt og þess vegna er
ekki hægt að búast við réttlátum
réttarhöldum,“ sagði Raghad, sem
býr í Jórdaníu ásamt systur sinni
Rönu. Þriðja systirin, Hala, er gift
íraska herforingjanum Jamal
Mustafa Abdallah, sem gaf sig
fram við bandaríska herinn í Írak
17. maí. Hann var númer tíu á
lista Bandaríkjamanna yfir eftir-
lýsta stuðningsmenn Saddams
Husseins. ■
Líkamsárás:
Bræður
dæmdir
DÓMUR Tveir rúmlega tvítugir
bræður voru dæmdir til að greiða
150 þúsund króna sekt í ríkissjóð í
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að
ráðast á dyravörð fyrir utan
skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur.
Dómaranum þótti sannað að ann-
ar bróðirinn hafi farið úr skónum og
sparkað síðan tvívegis í dyravörð-
inn Þá þykir víst að hinn bróðirinn
hafi klipið um kynfæri dyravarðar-
ins og sett fingur í auga hans. Hann
neitaði því síðarnefnda en þrír báru
vitni um að svo hefði verið. Ef
bræðurnir greiða ekki sektina innan
fjögurra vikna verður þeim að gert
að sitja í fangelsi í sextán daga. ■
ÚTSVAR Tvö af hverjum þremur
sveitarfélögum ætla að inn-
heimta hæsta leyfilega útsvar á
næsta ári. Meðalútsvar verður
12,83%, lítillega hærra en í ár
þegar það er 12,80%.
Sveitarfélögin sem innheimta
hámarksútsvar, 13,03%, eru 67
talsins. Fimm sveitarfélög inn-
heimta hins vegar lágmarksút-
svar, sem er 11,24%. Þau eru Ása-
hreppur, Helgafellssveit, Hval-
fjarðarstrandarhreppur, Skil-
mannahreppur og Skorradals-
hreppur.
Helgafellssveit og Svalbarðs-
hreppur eru einu sveitarfélögin
sem lækka útsvar milli ára,
Helgafellssveit um 0,75 pró-
sentustig en Svalbarðshreppur
um 0,36 prósentustig. Níu sveit-
arfélög hækka útsvar, Rangár-
þing ytra mest eða um 0,59 pró-
sentustig.
Tekjuskattur verður 25,75% á
næsta ári. Að viðbættu útsvari
verður staðgreiðsluhlutfall
skatta því 38,58% á næsta ári en
er 38,55% nú. Áætlað er að stað-
greiðslan skili ríkinu 67,3 millj-
örðum króna en sveitarfélögum
66,5 milljörðum. ■
„Mér fannst
þetta hrylli-
legt, sárs-
aukafullt og
grimmilegt og
það særði
mig djúpt.
...núna á þremur stöðum
Brettapakkar, 40% afsláttur
-bretti og bindingar.
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
jólagjöf
Hugmynd að
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
28
82
12
/2
00
3
Barnapakki 14.990 kr.
Krakkapakki 17.990 kr.
Unglinga/fullorðinspakki 19.990 kr. Verð gildir til jóla.
KONUNGSSONUR
Hákon krónprins mun gegna skyldum
Haraldar föður síns á meðan hann jafnar
sig eftir uppskurðinn.
Konungurinn útskrifaður:
Fékk bót
meina sinna
OSLÓ, AP Haraldur Noregs-
konungur var útskrifaður af
sjúkrahúsi í gær eftir að hafa
gengist undir skurðaðgerð vegna
krabbameins í þvagblöðru. Kon-
ungurinn brosti og veifaði til
mannfjöldans sem hafði safnast
saman fyrir utan Ríkisspítalann í
Osló til að fagna honum.
Í yfirlýsingu frá norsku kon-
ungsfjölskyldunni kemur fram að
Haraldur sé við góða heilsu og allt
bendi til þess að krabbameinið
hafi ekki náð að breiðast út um
líkmann. „Litið er svo á að kon-
ungurinn hafi fengið bót meina
sinna,“ stendur í yfirlýsingunni.
Haraldur verður í veikinda-
leyfi í allt að þrjá mánuði en á
meðan mun Hákon krónprins
gegna skyldum föður síns. ■
DÓMURINN KVEÐINN UPP
Lee Boyd Malvo situr við hliðina á
verjanda sínum í réttarsalnum í
Chesapeake í Virginíu.
HAFNARFJÖRÐUR
Stærsta sveitarfélagið sem innheimtir hámarksútsvar af bæjarbúum er Hafnarfjörður.
Tvö af hverjum þremur sveitarfélögum með
hámarksútsvar:
Níu hækka
útsvarsprósentu
RAGHAD HUSSEIN Á SKJÁNUM
Raghad Hussein, sem er ein þriggja dætra Saddams, segist ekki hafa trú á því að faðir
hennar fái sanngjörn réttarhöld, vegna þess að ákvörðunin um það væri í höndum
óviðurkenndra aðila.