Fréttablaðið - 20.12.2003, Side 16
16 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
Ungu þingmennirnir á Alþingi:
Krefjandi en
skemmtilegt
Ungir þingmenn sem náðukjöri í síðustu alþingis-
kosningum hafa látið heilmikið
að sér kveða á Alþingi frá því
það hófst í haust, en það er nú
komið í jólafrí til 28. janúar.
Þeim finnst þingið vera mjög
skemmtilegur og spennandi
starfsvettangur og segja
starfsandann einstaklega góðan,
þrátt fyrir að þingmenn séu með
ólíkar skoðanir í pólitíkinni.
Fréttablaðið fékk nokkra af
hinum nýkjörnu þingmönnum til
að greina frá reynslunni af
löggjafarsamkundunni.
Katrín Júlíusdóttir:
Átakapólitík
Katrín Júlíusdóttir, sem varkjörin á þing í vor fyrir Sam-
fylkinguna, segir að þingstörfin
séu skemmtileg og verkefnin fjöl-
breytt. „Það hefur komið mér á
óvart hversu mikið meirihluta-
vald er á þinginu og erfitt fyrir
minnihlutann að koma hlutum að.
Stjórnarandstöðunni er ekki oft
boðið að taka þátt í undirbúningi
mála. Það er mikil átakapólitík í
stærstu málunum og nánast ein-
göngu stjórnarfrumvörp sem ná í
gegn, en önnur frumvörp eru
endalaust í nefndum,“ segir
Katrín, en hún leggur þó áherslu á
að andrúmsloftið á Alþingi sé
mjög gott.
„Starfsaðstaðan á þinginu er
til fyrirmyndar, það er vel búið
að öllum þingmönnum og starfs-
fólkið er frábært. Við fáum allar
þær upplýsingar sem við þurfum
og þótt menn takist á í þingsaln-
um geta þeir verið góðir starfs-
félagar. Þingið er vinnustaðurinn
okkar og það verður til ákveðinn
vinnustaðamórall þarna eins og á
öðrum vinnustöðum,“ segir
Katrín. ■
Dagný Jónsdóttir:
Stuðningur
Tíminn hér á Alþingi er búinnað vera einstaklega skemmti-
legur og lærdómsríkur. Það má
segja að ég sé í vinnunni allan sól-
arhringinn, en ég vissi auðvitað
þegar ég ákvað að fara í starfið að
það væri ekki 9-5 vinna,“ segir
Dagný Jónsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins. Hún segir
þingstarfið í takt við það sem hún
átti von á, það sem standi upp úr
sé allt það skemmtilega fólk sem
hún hafi kynnst.
„Það er frábært að hafa feng-
ið tækifæri til að kynnast öllu
þessu fólki því þótt menn séu ef
til vill ekki sammála í stjórnmál-
unum þá eru þeir félagar. Það
hefur verið sérstaklega gefandi
að starfa með þeim sem eru eldri
og reyndari á þingi. Ég hef feng-
ið mikinn stuðning frá ráðherr-
unum úr mínu kjördæmi, Norð-
austurkjördæmi, þeim Valgerði
Sverrisdóttur og Jóni Kristjáns-
syni, og það hefur reynst
ómetanlegt,“ segir Dagný. ■
Sigurður Kári
Kristjánsson:
Umfangsmikið
Mér finnst þetta starf sér-staklega skemmtilegt og
það hefur farið fram úr mínum
björtustu vonum. Það er um-
fangsmeira og meira krefjandi
en ég gerði ráð fyrir áður en ég
settist á þing. Málaflokkanir eru
svo margir og sumir þeirra svo
yfirgripsmiklir að það tekur á ef
maður ætlar sér að vera vel að
sér á öllum sviðum,“ segir Sig-
urður Kári Kristjánsson, Sjálf-
stæðisflokknum, um þingstörf-
in. Hann segir einn helsta kost-
inn vera þann að fá tækifæri til
að vinna með og læra af fólki
sem hafi mikla reynslu af
stjórnmálastarfi.
„Mér hefur einnig lánast að
mynda prýðilegan kunnings-
skap með mörgum vinnufélög-
um mínum hér á Alþingi þó svo
að við deilum ekki sömu skoðun-
um í pólitík. Þessi vinnustaður
er ekkert mikið frábrugðinn
öðrum vinnustöðum að því
leyti,“ segir Sigurður Kári. ■
Steingrímur J. Sigfússon:
Í keppni við Ögmund
ALÞINGI Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður
Vinstri grænna, hefur talað lengst manna úr
ræðustól Alþingis það sem af er yfirstandandi
þingi.
„Ég er nú ekki óvanur því að vera ræðukóngur
þingsins og hef verið að keppa um titilinn undan-
farin ár við Ögmund Jónasson félaga minn þannig
að trúlega hugsar hann sér gott til glóðarinnar á
vormisserinu. Þetta er til marks um það hversu
eljusamir menn eru við störfin og eftir langa veru
og mikla reynslu á þingi tel ég mig vel inni í mál-
um. Ég tek virkan þátt í umræðum um mjög mörg
málasvið,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, ræðu-
kóngur á haustmisseri Alþingis. ■
Guðjón Hjörleifsson:
Er að læra á starfið
ALÞINGI Guðjón Hjörleifsson, Sjálfstæðisflokknum,
er sá þingmaður sem talaði minnst á haustmisseri
Alþingis og skipar hann því neðsta sæti á lista þing-
manna í því sambandi.
„Ég hef haft nóg að gera á þinginu þótt ég hafi
ekki eytt miklum tíma í ræðustólnum, enda er þetta
starf krefjandi. Ég hef verið að setja mig inn í mál-
in og koma mér vel fyrir. Það má eiginlega segja að
ég sé að læra á hlutina og ég held að þetta sé dæmi-
gerð byrjun á þingstarfi í kjölfar kosninga. En ég á
ekki von á öðru en að ég færi mig ofar á þennan
lista þegar fram líða stundir,“ segir Guðjón. ■
Ræðutími einstakra þingmanna:
Steingrímur talar mest
en Guðjón langminnst
ALÞINGI Þingmenn Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs
virðast sem fyrr kunna vel við sig
í ræðustól Alþingis. Fjórir af
fimm þingmönnum flokksins eru
á lista yfir þá þingmenn sem
vörðu lengstum tíma í ræðustóli á
haustþinginu og sá fimmti er í ell-
efta sæti yfir mestan ræðutíma
þingmanna, er aðeins sjö mínút-
um frá því að komast inn á lista
yfir tíu hæstu.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, er sá þing-
maður sem á lengstan ræðutíma
að baki, samtals tólf klukkutíma
og 37 mínútur að auki. Ræður
hans voru samanlagt rúmlega
þremur klukkutímum lengri en
ræður Guðjóns A. Kristjánssonar,
formanns Frjálslynda flokksins,
sem var níu og hálfa klukkustund
í ræðustól. Næstir koma þrír
þingmenn Vinstri grænna; Jón
Bjarnason, Ögmundur Jónasson
og Kolbrún Halldórsdóttir. Sjötti á
lista er svo sá þingmaður Sam-
fylkingar sem mest talaði í haust,
Jóhanna Sigurðardóttir, en ræðu-
tími hennar var rétt rúmir sjö
klukkutímar.
Fara þarf niður í 14. sæti til að
finna þann stjórnarliða sem talaði
mest. Þar er fjármálaráðherrann
og varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, Geir H. Haarde, með
ræðutíma upp á fjóra tíma og 27
mínútur. Þremur sætum neðar og
með fimm mínútum styttri ræðu-
tíma er Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra.
Þeir fjórir sem minnst töluðu í
haust voru allir nýliðar. Guðjón
Hjörleifsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks og fyrrum bæjar-
stjóri í Vestmannaeyjum, mælti
tvisvar og samanlagt í þrjár mín-
útur. Gunnar Örlygsson, Frjáls-
lyndum, kom ekki inn á þing fyrr
en í desember og talaði í 13 mínút-
ur. Næstar komu ungar konur úr
Framsókn og Samfylkingu, Dagný
Jónsdóttir og Katrín Júlíusdóttir,
sem töluðu í stundarfjórðung
hvor um sig.
Meðalræðutími þingmanna var
þrjár klukkustundir og níu mínút-
ur.
brynjolfur@frettabladid.is
KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR
Starfsaðstaðan á þinginu er til fyrirmyndar,
það er vel búið að öllum þingmönnum og
starfsfólkið er frábært.
DAGNÝ JÓNSDÓTTIR
Þingkonan unga segir að það hafi verið
sérstaklega gefandi að starfa með þeim
sem eru eldri og reyndari á þingi.
SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON
Segir málaflokkana á þinginu marga og
yfirgripsmikla en starfið hafi farið fram úr
hans björtustu vonum.
MESTUR RÆÐUTÍMI
Þingmaður Tími
Steingrímur J. Sigfússon 12:37
Guðjón A. Kristjánsson 9:31
Jón Bjarnason 8:55
Ögmundur Jónasson 7:49
Kolbrún Halldórsdóttir 7:45
STYSTUR RÆÐUTÍMI
Guðjón Hjörleifsson 0:03
Gunnar Örlygsson 0:13
Katrín Júlíusdóttir 0:15
Dagný Jónsdóttir 0:15
Sigríður A. Þórðardóttir 0:25
GRÉTAR MAR JÓNSSON
Hann er einn þeirra varaþingmanna sem
sátu á þingi í haust. Grétar Mar lét nokkuð
til sín taka. Það er ljóst hvað Grétar Mar
gerir til að halda athygli undir ræðunum.
RÁÐHERRAFUNDUR Í ÞINGSAL
Árni Magnússon á greinilega eitthvað ósagt við samráðherra sína, Geir Haarde og Guðna Ágústsson. Ekki er annað að sjá en Guðna hafi
orðið nokkuð um það sem Árni er að segja.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA