Fréttablaðið - 20.12.2003, Side 20
Alþingi hefur gert allt vitlaust.Ekki var annað að sjá en
launamenn og atvinnurekendur
ætluðu að gera kjarasamninga án
átaka. Kröfur launþega þóttu hóg-
værar og allir sögðu sem svo að
nú yrði samið án verulegra átaka.
Svo kom áfallið.
Alþingismenn ákváðu að lag-
færa eigin kjör. Sumir þeirra
missa af sínu á meðan aðrir hagn-
ast verulega.
Almenningur horfir meira til
þess sem bætist við kjör þeirra
sem vel munu njóta en hirðir
minna um þá sem aðrir þingmenn
missa. Þegar þingmenn verja
gerðir sínar benda þeir oftast á að
þar sem framlag þeirra í lífeyris-
sjóð hækki um eitt prósent jafn-
gildi það eins prósent launalækk-
un. Gott og vel. En ágæti þing-
heimur, þetta eina prósent má sín
lítils þegar á sama tíma er verið
að hækka laun þriggja þingmanna
um 50 prósent og auka eftirlauna-
rétt forsætisráðherra verulega.
Svo mikið að eftirlaunaréttur
hans hækkar hugsanlega um eitt-
hvað á annað hundrað milljónir
króna.
Þessar staðreyndir hafa haft
mikil áhrif. Launafólki líkar þetta
ekki. Ekki einu sinni þó hægt sé að
nefna að flestir þingmenn lækki
um eitt prósent á mánuði. Það dug-
ar ekki, og alls ekki þegar einnig
er horft til þess að laun ráða-
manna hafa hækkað tvöfalt meira
en meðallaun á þeim árum sem
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur hafa verið við völd. Frá
árinu 1995 hefur verið gert sér-
stakt átak í að hækka laun þing-
manna og ráðherra. Árangurinn
er með ágætum, eða um 150 pró-
sent hækkun. Vel má vera að laun-
in hafi ekki verið næg og ástæða
hafi verið til hækkunar. En var
ekki nóg komið? Þurfti meira?
Alþingi hefur gert allt vitlaust.
Almenningi þykir nóg gert en fær
engu áorkað. Gert er gert. Þeir
þingmenn sem reyndu að berjast
gegn breytingunum eru nánast út-
hrópaðir. Þeir eru sagðir óstað-
fastir.
Eitt er að fá hugmynd að breyt-
ingum á kjörum þingmanna og
ráðherra og annað að framkvæma
hana. Það er óskiljanlegt að for-
ingjar stjórnarandstöðuflokkanna,
Össur Skarphéðinsson, Steingrím-
ur J. Sigfússon og Guðjón A.
Kristjánsson, hafi samþykkt þegar
Davíð kynnti þeim frumvarpið að
leggja það fram í þingflokkunum
og mæla fyrir því þar. Sáu þeir
ekki hvaða áhrif málið myndi
hafa? Eða gleymdu þeir sér?
Hvað sem hægt er að segja er
ljóst að Alþingi hefur gert allt vit-
laust. Í stað þess að kjarasamningar
yrðu gerðir átakalítið blasir við að
samningaviðræður geta orðið lang-
ar og strangar. Ekki vegna þess að
launþegar vilji fá svo mikið meira
en atvinnurekendur vilja borga.
Nei, ástæðan er sú að Alþingi setti
lög til að laga hag foringja sinna, í
öllum flokkum. Þar er enginn und-
anskilinn. ■
Nú þegar Saddam Hussein erkominn í leitirnar hafa spurn-
ingar um það hvort Írakar hafi
einhvern tímann átt gereyðingar-
vopn, eða ekki, hugsanlega fallið
nokkuð í skuggann. Formaður
breska Íhaldsflokksins, Michael
Howard, var í heimsókn í Írak í
vikunni. Þar kom hann aftur inn á
þessa lykilspurningu og gaf út yf-
irlýsingu sem vakti athygli í
breskum fjölmiðlum, en hann
féllst á að það kynni vel að vera
rétt að Saddam Hussein hafi ekki
haft yfir neinum gereyðingar-
vopnum að ráða, á þeim tíma þeg-
ar Bretar og Bandaríkjamenn
gerðu innrásina. Tók hann þar
með undir yfirlýsingar Hans Blix,
sem hann lét falla fyrr á árinu,
þar sem hann hélt því fram að
meint vopnaeign hefði ekki verið
nægileg ástæða fyrir innrás.
Howard notaði tækifærið og
ítrekaði kröfur íhaldsmanna um
að sjálfstæð og óháð rannsókn
fari fram á þeim gögnum sem
breska ríkisstjórnin notaði til
þess að réttlæta innrásina, en á
grundvelli þeirra var því haldið
fram að Saddam Hussein byggi
yfir gereyðingarvopnum og jafn-
vel að hann gæti notað þau innan
48 tíma.
Á móti dauðarefsingu
Howard sagðist jafnframt vera
á móti því að Saddam yrði dæmd-
ur til dauða. Hann sagði það þó
vera á valdi írösku þjóðarinnar að
ákveða hver örlög hans yrðu. „Ég
held að Bretar ættu ekki að
freista þess að troða sínum gild-
um upp á íraskan almenning,“
sagði Howard. Fremur ættu herir
bandamanna að einbeita sér að
því að koma á stöðugleika í land-
inu, auka öryggið og koma hjólum
efnahagslífsins í gang. „Það er
gríðarlega mikilvægt fyrir fram-
tíð allra á jörðinni að Írak verði
aftur friðsælt og hagsælt ríki.“
Howard lýsti því jafnframt
yfir, að hann hefði miklar efa-
semdir um það, að ástæða væri til
þess að grípa til aðgerða gegn öðr-
um ríkjum, sem hugsanlega
tengdust hryðjuverkum, en Norð-
ur-Kórea og Íran hafa verið nefnd
í því samhengi. ■
Mál manna
SIGURJÓN M. EGILSSON
■ skrifar um óróann sem Alþingi
skóp í kjaraviðræðurnar.
20 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Rafpóstur auglýsingadeildar:
auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands-
byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
Umskiptin sem orðið hafa ípólitískri umræðu á síðustu
tuttugu árum kristallast í því að
Vigdís Finnbogadóttir mátti
gjarnan tala um börn og skóg-
rækt af því að þeir málaflokkar
væru „ekki pólitík.“ Ég veit ekki
hvort Vigdísi eða Kvennalistan-
um beri meiri heiður af að hafa
breytt þessu þegar börn eru ann-
ars vegar. Fá mál eru nú fyrir-
ferðarmeiri í pólitískri umræðu.
Þessi þróun hefur ekki verið án
átaka. Kannski er síminnkandi
fylgi Sjálfstæðisflokksins í borg-
arstjórnarkosningum órækasta
vitnið um þau vatnaskil sem orðið
hafa.
Druslubílarallí
Umræðan um leikskóla síðast-
liðinn áratug tók eðli málsins
samkvæmt mestan lit af biðlist-
um og skorti á leikskólavist. Það
skyldi engan undra. Fyrir aðeins
tíu árum voru foreldrar eins og
þeytispjöld milli leikskóla og
vinnu í hverju hádegi þar sem
fæstum stóð annað til boða en
fjögurra tíma leikskóladvöl. Þetta
var það sem Ingibjörg Sólrún
kallaði druslubílarallí. Nú eru
hins vegar meira en níu af hverj-
um tíu börnum allan daginn á
leikskólanum. Sífellt yngri börn
fá vist og varla er alið upp barn í
borginni sem ekki nýtur atlætis
leikskóla Reykjavíkur áður en
grunnskólaganga hefst.
Í Reykjavík hyllir undir að öll
börn sem náð hafa 18 mánaða
aldri fái inni á leikskóla. Þótt póli-
tísk umræða breytist stundum
hægar en veruleikinn hlýtur þetta
gerbreytta landslag að leiða um-
ræðuna frá byggingum og biðlist-
um til hins öfluga þroska- og upp-
eldisstarfs sem unnið er í leik-
skólunum. Víst er að þar er af
nógu að taka. Af framúrskarandi
verkefnum sem ná til nær allra
leikskóla í Reykjavík má nefna
örvun málþroska, grunnkennslu í
táknum með tali, verkefni til að
efla hreyfiþroska og fjölmörg
önnur fyrirmyndarmál.
Stig af stigi
Nýjasta blómið í hnappagati
leikskólanna ber nafnið Stig af
stigi. Það er þjálfun til að auka fé-
lags- og tilfinningaþroska barna á
aldrinum 4 – 10 ára. Með mark-
vissum aðferðum læra börnin
gegnum lærdóm og leik að skilja
aðra og láta sér lynda við þá,
leysa úr vanda og nota til þess fé-
lagslegan skilning auk þess sem
þau læra að takast á við reiði og
draga úr æsingi. Auk áhuga-
verðra markmiða er Stig af stigi
gott dæmi um nánara samstarf
leik- og grunnskóla sem hlýtur að
fylgja í kjölfar þess að leikskólar
urðu fyrsta skólastigið.
Sú breyting að leikskólinn sé
fyrsta skólastigið hlýtur að kalla
á umræður um hverju innra
starf þeirra og uppeldisstefna á
að skila börnum. Það hlýtur að
verða annað stærsta verkefni
næsta áratugar. Hitt er ekki síð-
ur mikilvægt: Hvernig leikskól-
ar geta stuðlað að því að börn nái
að rækta hæfileika sína í áfram-
haldandi skólagöngu, lífi og
starfi. Í þeim skilningi geta leik-
skólar orðið jöfnunartæki barna
sem koma úr misjöfnum aðstæð-
um. Og þess vegna eru Leikskól-
ar Reykjavíkur stoltir af því að
vera fjölmenningarlegir og öll-
um opnir, fötluðum sem ófötluð-
um. Leikskólinn á að vera fyrir
alla. Í því felst barnapólitík
nýrrar aldar. ■
Íþróttahreyfingin skæð í skattfé
Íþróttahreyfingin er meðal
skæðustu sækjenda í skattfé
almennings sem um getur, en
keppir þar við marga aðra fjár-
freka þrýstihópa og engin leið er
að fullyrða um hver þeirra er
frekastur. Eitt er þó hægt að full-
yrða: Reykjavíkurborg þurfti alls
ekkert að taka hálfan milljarð
króna aukalega af skattgreið-
endum sínum til að byggja frek-
ari mannvirki fyrir Knattspyrnu-
félagið Val. Í stað þess að láta
Val hafa þessa fjárhæð hefði
mátt láta nægja að hækka
skattana um 1,5 milljarða króna
milli ára, og hefði ýmsum þótt
nóg um samt.
AF VEFÞJÓÐVILJANUM WWW.ANDRIKI.IS
Heillaóskir til hægri!
Annað sem lifir eftir þessa
fyrstu mánuði nýs kjörtímabils
er framganga stjórnarflokkanna
í skattamálum. Stærri kosninga-
loforð en þau sem uppi voru um
stórfelldar skattalækkanir eiga
sér vart fordæmi í íslenskri póli-
tík. Milljarðatugum í skatta-
lækkanir var lofað af báðum
flokkunum þó að engin hafi nú
toppað þann mikla „skatta-
lækkanaflokk“ Sjálfstæðisflokk-
inn. Þessu til viðbótar vann vösk
sveit hægrimanna mikla sigra í
prófkjörum flokksins og var
gjarnan talað um heljarstökk til
hægri. Enda varð brátt um
nokkrar þingkonur flokksins
sem töldust til hófsamra stjórn-
málamanna, miðað við þessa
hörðu hægrimenn sem lögðust í
víking í prófkjörum flokksins.
Það var því merkilegt að upplifa
þegar fyrsta skattamál vetrarins
á Alþingi var skattahækkun upp
á rúman milljarð. Skattahækkun
sem keyrði bensínverðið upp í
að vera eitt það hæsta í heimi!
Það er því rík þörf á heillaósk-
um yfir á hægrivænginn og óska
þeim til hamingju með árangur-
inn. En loforðaskvaldrið er þagn-
að fyrir löngu síðan.
BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON AF VEFNUM BJORGVIN.IS
■ Af Netinu
Star Wars spilið
Upplifið Stjörnustríð með
þessu frábæra spili frá
Ravensburger. Komið á friði
og spekt í vetrarbrautinni með
því að sameina góðu öflin.
Hringadróttinsspilið
Sérlega skemmtilegt og einfalt spil
fyrir fjölskylduna. Spilið
Hringadróttinsspilið um jólin og
farið svo í bíó og sjáið myndina.
SPILAJÓL
Fást í verslunum
um land allt
Íslenskar leiðbeiningar
DAGUR B.
EGGERTSSON
■
skrifar um leik-
skólamál
Að gera allt vitlaust
MICHAEL HOWARD
Formaður breska Íhaldsflokksins var í Írak. Hann sagðist vera á móti því að Saddam
Hussein yrði dæmdur til dauða, en þó væri það á valdi Írösku þjóðarinnar að dæma hann.
Úti í heimi
MICHAEL HOWARD
■ formaður breska Íhaldsflokksins, fór í
heimsókn til Íraks.
Michael Howard
heimsækir Írak
BÖRN Í LEIKSKÓLA
„Fyrir aðeins tíu árum voru foreldrar eins og þeytispjöld milli leikskóla og vinnu í hverju
hádegi þar sem fæstum stóð annað til boða en fjögurra tíma leikskóladvöl. Þetta var það
sem Ingibjörg Sólrún kallaði druslubílarallí.“
Skoðundagsins
Barnapólitík