Fréttablaðið - 20.12.2003, Page 29
LAUGARDAGUR 20. desember 2003
Gildir á meðan birgðir endast.
Lego kubbar
Lego leikfangakassi
1000 kubbar
Lego duplo kubbafata
2.999kr
verð áður 3.999,-
1.499kr
verð áður 1.999,-
NýttkortatímabilAllar verslaniropnar tilkl. 20:00 í kvöld
Öndvegiseldhús Reykjavíkur er stórglæsilegt matrei›slurit flar sem
nokkrir af helstu matrei›slumeisturum borgarinnar gefa uppskriftir af
veisluréttum flar sem íslenskt e›alhráefni er í fyrirrúmi. Í bókinni er
fjalla› um gestrisni Íslendinga og matarmenningu höfu›borgarinnar
í rúm 200 ár. Sag›ar eru hversdagssögur af ástum og örlögum,
væntingum og framkvæmdum. Bókina pr‡›ir fjöldi fallegra mynda af
mat og íslenskri náttúru.
Bókin ver›ur fáanleg á íslensku og ensku og er glæsileg gjöf til vina og
vandamanna innanlands sem utan.
Útgefandi
OR‹SPOR
Væ
ntanlegí v e r s l a n i
r
HÁTÍÐARMATUR UM JÓLIN
Í þessari bók er að finna uppskriftir af hátíðarmatseðli frá helstu veitingahúsum borgarinnar.
Matreiðslumeistarar framreiða lystisemdir úr íslensku hráefni. Úrval af villibráðarréttu ,
lambakjöti og fiski.
Bókin er ríkulega skreytt myndum af ljúffengu réttu og fegruð náttúru Íslands.
Saga gestgjafa Reykjavíkur er sögð, krydduð frásögum af ástum og örlögum sem tengjast
matarmenningu þjóðarinnar.
FÆST Á ÖLLUM HELSTU ÚTSÖLUSTÖÐUM BÓKA
Sviplegt fráfall eins þekktastaÍslendings allra tíma, háhyrn-
ingsins Keikó, hefur gefi bóka-
forlaginu Bjarti tilefni til að rifja
upp athyglisverða umfjöllun
Hermanns Stefánssonar um dýr-
ið í bókinni Sjónhverfingar sem
forlagið gaf út fyrr á þessu ári.
Þar hélt Hermann því fram að
Keikó væri ekki aðeins háhyrn-
ingur heldur einnig listaverk sem
mikið væri lagt upp úr að vernda.
„Á árinu 1998 voru skrifaðar
tvær íslenskar barnabækur þar
sem Keikó er í aðalhlutverki.
Samtökin Free Willy Keikó tóku
afar illa í þessa nýbreytni, Keikó
væri lögverndað listaverk, skrá-
sett vörumerki.“ Hermann
spurði síðan í framhaldinu hvers
vegna samtökin skyldu taka því
óstinnt upp að Keikó skyti upp
kollinum í skáldskap. „Ástæðan
getur tæplega verið önnur en sú
að þau líta ekki á hann með nein-
um einhlítum hætti sem raun-
veruleika sem smíða megi skáld-
skap um. Raunar má vart hugsa
sér skýrari yfirlýsingu þess efnis
að Keikó tilheyri ekki sviði þess
raunverulega. Hann er fjötraður
á bási ímyndakerfisins og verður
aldrei frelsaður þaðan. Litið er á
hann sem hugmynd og ímynd en
ekki hold og blóð. Free Willy
Keikó samtökin vilja ekki sjá
Keikó fara á flot sem tákn. Ekki
er ætlast til þess að skrifuð séu
skáldverk um hugverk sem eru í
einkaeign.“
Það er alkunna að þeir sem lifa
ekki í skáldskap lifa ekki af hér á
jörðinni og Keikó ætti því að vera
allur en það hlýtur að vera hugg-
un harmi gegn að hugmynd eða
sjónhverfing getur ekki dáið.
Keikó lifir því í raun enn, ódauð-
legur eins og Elvis. ■
KEIKÓ
Fjölmargir aðdáendur kvikmyndastjörnunnar syrgja hana um þessar mundir. Þeir ættu að
geta leitað huggunar í hugmyndum Hermanns Stefánssonar um að Keikó sé í raun fyrst
og fremst hugmynd og hlýtur sem slíkur að teljast ódauðlegur.
Dauði Keikós hefur fengið suma til að rifja upp gaml-
ar kenningar um Keikó sem hugmynd:
Sjónhverfing deyr