Fréttablaðið - 20.12.2003, Síða 30
Ég er enn að leita eftir húsnæði.Peepshow? Ég kýs að kalla þetta
leiksýningu eða gægjuleikhús,“ seg-
ir Ásgeir Davíðsson, betur þekktur
sem Geiri á Goldfinger nektardans-
staðnum. Hann hyggst koma á fót í
Reykjavík starfsemi sem hýsir það
sem sigldir menn og sjóaðir þekkja
sem peepshow.
Siðprúðar gægjusýningar
„Já, þetta funkerar þannig að
menn setjast á stól og horfa á stúlku
sem er á hringborði dansa og fækka
fötum. Gler er á milli og menn ná
engu sambandi við stúlkuna. Þó
verður þetta svo að fyrir auka-
greiðslu er hægt að fá glerið í burtu
en þó þannig að engin snerting er.
Þetta er löglegt um allan heim –
sama hvar þú kemur,“ segir Geiri.
Hann segir að víða erlendis séu
gægjuleikhús sem bjóða upp á afar
svæsnar sýningar en Geiri ætlar
sér ekki að feta þá braut, ekkert
slíkt, heldur verða þetta siðprúðar
sýningar, segir hann – ekkert frá-
brugðið ljósblárri mynd.
Geiri hefur staðið í stælum við
femínista sem vilja banna alla þá
starfsemi sem hann hefur staðið
fyrir. „Þarna munu bæði karlmenn
og kvenfólk dansa. Þar sem svona
starfsemi hefur verið bönnuð er-
lendis, í borgum og sveitarfélögum,
er enginn sem skiptir sér af hinum
svokölluðu hommastöðum. Þar er
allt leyfilegt og femínistar sjá ein-
hverra hluta vegna enga ástæðu til
að fetta fingur út í það.“
Erfiðir femínistar
Geiri stendur í stórræðum og
fagnaði nýlega útgáfu dagatals sem
hann gefur út á hverju ári. Reyndar
féll árið 2002 út vegna allra látanna
þegar verið var að banna nektar-
staðina. „Þessi dagatöl hafa yfirleitt
klárast og þegar ég ætlaði að hætta
þarna um árið stoppaði síminn ekki.
‘Hvar eru almanökin?’ Ég fékk hálf-
gildings samviskubit og ákvað að
halda þessu áfram.“
Þetta er fjórða dagatalið sem
Geiri gefur út og hann segir það
sérstakt að því leytinu að þær sem
sitja fyrir eru stúlkur sem eru að
dansa fyrir hann eða hafa dansað
fyrir hann. Engar íslenskar fyrir-
sætur eru að þessu sinni.
„Ekki þetta árið. Íslenskar stúlk-
ur hafa náð því að vera helmingur
þeirra sem sitja fyrir. Nú eru þær
feimnari. Mikið til út af þessum lát-
um í þessum femínistakonum. Þær
stoppa allt af svona. Þær eru dug-
legar að beita sér þessar kerlingar.“
Jólagjöf til sjómannanna
Geiri bendir þó á að dagatal sitt
sé afar siðprútt, þar sé enginn dóna-
skapur á ferð. „Þarna er ekkert sem
ætti að særa blygðunarkenndina,
ekki einu sinni hinna viðkvæmustu
meðal vor.“
Dagatölunum, sem eru ókeypis,
er yfirleitt dreift um borð í öll skip
sem sigla á Íslandsmið. Þetta er
jólagjöf Geira til íslensku sjómann-
anna. Og ekki nánasarleg því útgáf-
an kostar á aðra milljón.
„Það verður nú að vera eitthvað
fallegt á veggjunum þegar þeir eru
í Smugunni. Eitthvað sem örvar þá
til dáða á sjónum. Ég er sannfærður
um að þetta hafi slíkt gildi. Fátt er
skemmtilegra í löngum og leiðinleg-
um túrum úti á sjó en að hafa daga-
tal með myndum af fallegum kon-
um á. Það heldur bara í mönnum líf-
inu. Mér rennur blóðið til skyldunn-
ar enda hefur mér alltaf fundist sjó-
menn mesta stolt Íslendinga. Þeir
eru mennirnir sem bera björg í bú
og leggja ótrúlega mikið á sig.“
jakob@frettabladid.is
■ Næsta stopp
30 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
Gæði sem leitað er í…
Það er ekki að ástæðu-
lausu að nærföt frá
Olympia/Marathon eru
mestu seldu karlmanna-
og barnanærföt í
Danmörku.
Gott snið og gæði á
sanngjörnu verði, nútíma-
hönnun og mikið úrval.
Nærfötin eru búin til úr
sérvöldum úrvalsefnum.
Þess vegna er tveggja ára
ábyrgð á frágangi og efni
í nærfötum frá
Olympia/Marathon.
Fæst í stórmörkuðum
um land allt.
Dreifing: Rún heildverslun,
sími 568 0656.
Ég vildi fara til Róma-borgar,“ segir Árni M.
Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra, þegar hann er
spurður hvert hann myndi
fara mætti hann ráða. „Af
hverju Róm? Af því það
var svo gaman hjá Hall-
dóri Laxness í Róm,“ svar-
ar Árni. „Ég vildi búa á
sama hóteli og hann en það
er rétt fyrir ofan Spænsku
tröppurnar. Svo myndi ég
vitaskuld sækja kaffihús og skoða
fornminjar og kirkjur. Það eru
hvergi fallegri kirkjur en í Róm.
Ég hef komið þrisvar sinnum til
Rómar og mér finnst borgin ákaf-
lega skemmtileg. Þar er
hægt að gera óendanlega
margt. Þar eru mörg og
ólík hverfi og maturinn
er góður.“
Annar staður sem kemur upp í
hugann, segir Árni, er þorpið
Ilulissat á Grænlandi. „Ég kom
þar að sumri til og þá veiddu
menn grálúðuna á handfæri í litl-
um bátum. Á veturna gera menn
hins vegar út á grálúðu í gegnum
ís og eru á hundasleðum. Mig
hefur alltaf langað til að koma
þarna um vetur. Umhverfið er
tignarlegt, miklir firðir þar sem
jöklarnir ganga fram í sjóinn,“
segir Árni og segir í lokin litla
skemmtisögu: „Einu sinni mætti
ég Árna Johnsen á kaffistofunni
í þinginu og hann sagði: „Ans-
ans. Ég er að fara til Græn-
lands eftir hálftíma, þú hefð-
ir átt að koma með“. Ég
sagðist ómögulega geta það
því ég væri að fara á nefnd-
arfund.“ Árni sagði aftur
„ansans“. Svo fór Árni John-
sen til Grænlands og var
veðurtepptur í hálfan mán-
uð.“ ■
Árni M. Mathiesen vildi gjarnan fara til Rómaborgar.
Í fótspor Laxness
ÁRNI M. MATHIESEN
Róm er draumastaður sjávarútvegs-
ráðherrans og svo lítið þorp á
Grænlandi.
Geiri á Goldfinger hefur hug á að setja á fót það sem hann kallar gægjuleikhús,
sem fólk þekkir betur sem peepshow. Hann var að senda frá sér sitt árlega dagatal
sem hann segir sína jólagjöf til sjómanna – og dýr jólagjöf má það heita því útgáf-
an kostar á aðra milljón.
Gægjuleikhús Geira
Þarna munu bæði
karlmenn og kven-
fólk dansa.
,,
Engar íslenskar
fyrirsætur eru að
þessu sinni en hafa náð að
vera helmingur. „Mikið til
út af látum í þessum
femínistakonum. Þær
stoppa allt af svona.“
,,
DAGATAL GEIRA
Jólagjöf hans til íslensku sjómannanna er
dagatal með fáklæddum stúlkum sem kost-
aði á aðra milljón í framleiðslu. „Fátt er
skemmtilegra í löngum og leiðinlegum túr-
um úti á sjó en að hafa dagatal með mynd-
um af fallegum konum á,“ segir Geiri. „Það
heldur bara í mönnum lífinu.“
GEIRI Á GOLDFINGER
Geiri leitar nú að húsnæði undir starfsemi sem hann kallar gægjuleikhús. Þar verða sið-
prúðar sýningar, segir hann, þar sem dansa bæði karlar og konur á hringlaga borði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T