Fréttablaðið - 20.12.2003, Side 44
40 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
BÓK VIKUNNAR
Friðþæging eftir Ian McEwan
Satt að segja er erfitt að oflofa
þessa verðlaunabók. Aðalpersón-
an er hin þrettán ára Briony sem
hefur auðugt ímyndunarafl og
túlkun hennar á atburðum reynist
örlagarík. Þetta er alveg einstak-
lega vel skrifuð bók og undirliggj-
andi spenna í textanum gerir að
verkum að erfitt er að leggja bók-
ina frá sér. Lokakaflinn er
ógleymanlegur og líklegur til að
kalla fram tár hjá viðkvæmum
lesendum. Nútíma meistaraverk.
■ Bækur
METSÖLU-
LISTI
MÁLS OG
MENNINGAR
Allar bækur
1. Bettý. Arnaldur Indriðason
2. Náðarkraftur. Guðmundur Andri
Thorsson
3. Stormur. Einar Kárason
4. Einhvers konar ég. Þráinn Bertelsson
5. Öxin og jörðin. Ólafur Gunnarsson
6. Heimur spendýranna. Richard Atten-
borough
7. Fólk í fjötrum. Gylfi Gröndal
8. Ósköpin öll. Flosi Ólafsson
9. Ambáttin. Mende Nazer
10. Jón Sigurðsson. Guðjón Friðriksson
SKÁLDVERK
1. Bettý. Arnaldur Indriðason
2. Náðarkraftur. Guðmundur Andri
Thorsson
3. Stormur. Einar Kárason
4. Öxin og jörðin. Ólafur Gunnarsson
5. Bóksalinn í Kabúl. Åsne Seierstad
6. Átta gata Buick. Stephen King
7. Herra Alheimur. Hallgrímur Helgason
8. Da Vinci lykillinn. Dan Brown
9. Radíó Selfoss. Sölvi Björn Sigurðsson
10. Þegar stjarna hrapar. Vigdís Grímsdóttir
METSÖLULISTI BÓKABÚÐA
MÁLS OG MENNINGAR 10. - 16. DESEMBER
METSÖLU-
LISTI
EYMUNDS-
SONAR
Allar bækur
1. Bettý. Arnaldur Indriðason
2. Einhvers konar ég. Þráinn Bertelsson
3. Öxin og jörðin. Ólafur Gunnarsson
4. Útkall - Árás á Goðafoss. Óttar
Sveinsson
5. Ósköpin öll. Flosi Ólafsson
6. Stormur. Einar Kárason
7. Íslenska bílaöldin. Örn Sigurðsson
& Ingibergur Bjarnason
8. Séra Baldur. Hlynur Þór Magnússon
9. Don Kíkóti II. Cervantes
10. Vín. Þorri Hringsson
SKÁLDVERK
1. Bettý. Arnaldur Indriðason
2. Öxin og jörðin. Ólafur Gunnarsson
3. Stormur. Einar Kárason
4. Don Kíkóti II. Cervantes
5. Da Vinci lykillinn. Dan Brown
6. Náðarkraftur. Guðmundur Andri
Thorsson
7. Herra Alheimur. Hallgrímur Helgason
8. Mey yfir myrku djúpi. Mary Higgins Clark
9. Svo fögur bein. Alice Sebold
10. Lygasaga. Linda Vilhjálmsdóttir
METSÖLULISTI BÓKABÚÐA
EYMUNDSSONAR 10. -16. DESEMBER
Sagnalist er heitið á nýrri bókeftir Þorleif Hauksson ís-
lenskufræðing en þar fjallar Þor-
leifur um stílbrögð íslenskra rit-
höfunda á árunum 1850-1970. Það
er ljóst að gríðarleg vinna og lest-
ur liggur þarna að baki. Þegar
Þorleifur er spurður hvernig hann
hafi valið stílistana sem hann
fjallar um segir hann: „Þegar allt
kemur til alls hafði ég ekki önnur
viðmið en mína eigin tilfinningu
og minn eiginn smekk, en ég
reyndi að velja þá höfunda sem
höfðu komið með nýjungar. Smátt
og smátt fékk ég tilfinningu fyrir
því hverjir það væru.“
Þetta er ansi breið flóra höf-
unda og ég held að hver lesandi
finni innan um höfunda sem hann
mundi segja að væru heldur
slappir stílistar. Ég myndi til
dæmis nefna Guðmund G. Haga-
lín. Eru þessir höfundar allir góðir
stílistar að þínum mati?
„Í einhverjum skilningi eru
þeir það. Fyrst þú nefnir Hagalín
þá er hann höfundur sem gerir
merkilegar tilraunir til að búa til
sagnastíl á þjóðlegum grunni og
hefur tilhneigingu til að skrifa tal-
málsstíl, auk þess sem hann virkj-
ar í verkum sínum mállýsku sem
hann hafði kynnst á Vestfjörðum.
Þetta var nýjung í stíl á sínum
tíma.“
Ég var ákveðin í að spyrja þig
hvað væri góður stíll en svo sá ég
tilvitnun í Halldór Laxness í bók
þinni þar sem hann segir: „Ekkert
orð er skrípi ef það stendur á rétt-
um stað“. Þessi setning segir ansi
mikið um stíl.
„Já, í raun og veru gerir hún
það. Það var líka skemmtilegt sem
Guðmundur Andri Thorsson sagði
í viðtali við þig í síðustu viku, að
stíll væri að velja orð og raða
þeim saman en um leið væri líf
textans búið til, sjálfur persónu-
leiki bókarinnar.“
Laxness besti stílistinn
Hver er besti stílisti 20 aldar?
„Tvímælalaust Halldór Lax-
ness. Það sem einkennir hann sem
stílista er hvað hann er margfald-
ur í roðinu, það er þverstæðutil-
hneigingin í texta hans. Hann
hneigist til ákveðinnar íhaldssemi
í vissum málfarslegum efnum, til
dæmis í sambandi við dönsku-
slettur, en víkkar stílinn út á öðr-
um sviðum og leitar margvíslegra
fyrirmynda. Ef við tökum muninn
á honum og Hagalín þá felst hann
einna helst í andstæðum milli
margröddunar og einröddunar. Þó
að Laxness hafi haft eindregnar
pólitískar skoðanir urðu bækur
hans aldrei boðunarrit. Þegar
pólitísks boðskapar fer að gæta
hjá einhverjum persónum hans þá
gerir hann um leið grín að við-
komandi. Stundum er sagt að
hann hafi ekki samúð með persón-
um sínum sem er alrangt en hann
hefur alltaf þetta tvöfalda sjónar-
horn á þær. Það er galdur skáld-
skaparins hjá honum.“
Hver heldurðu að sé áhrifa-
mesti stílisti 20 aldar?
„Ég held að Laxness sé það
líka. En þá má ekki gleyma því að
það voru aðrir áhrifamiklir stílist-
ar á þessum tíma. Ólafur Jóhann
Sigurðsson skrifaði til dæmis
mjög áhrifamikinn stíl en það sem
hamlaði honum var viss sjálfsrit-
skoðun sem á sér rætur í mál-
vöndunartilhneigingu samtímans.
En hann á til alveg óskaplega
fallega hluti.“
Nú er allt leyfilegt
Þú endar bókina um 1970. Af
hverju ferðu ekki lengra fram í
tímann?
„Einhvers staðar þurfti ég að
enda en mig langar til að skrifa
framhald. Þegar ég var að ljúka
þessu verki í fyrra var mér kippt
30 ár fram í tímann því ég var
settur í að tilnefna bækur til Ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna.
Það var mjög merkilegt að sjá
hversu mikið hefur breyst á þess-
um áratugum. Öllum hömlum
virðist hafa verið aflétt. Nú er allt
leyfilegt. Það er síður en svo að ég
harmi það að málfarslögreglan sé
sett á eftirlaun en það hefur haft í
för með sér ákveðinn skort á
sjálfsögun hjá sumum höfundum.
Menn eru farnir að skrifa eins og
enginn hafi skrifað á undan þeim.
Þeir eru hættir að skírskota til
hefðar og samtíma heldur skrifa
sitt eigið mál og það þýðir að stíll-
inn verður svolítið eintóna og
óspennandi. Það eru þó fjölmarg-
ar undantekningar frá þessu og
kannski er að verða til ný gróska
og ný vitund um það hvað hægt er
að gera í skáldsagnastíl.“
Ef þú ættir að nefna góða nú-
tíma stílista, hverja myndirðu
nefna?
„Ég á erfitt með að svara þessu
því ég hef ekki lagst í nógu miklar
rannsóknir. En Gyrðir Elíasson er
alveg í sérflokki og sömuleiðis
Þórarinn Eldjárn. Um þessi jól er
ég spenntur að lesa nýja skáld-
sögu Guðmundar Andra Thors-
sonar, sem ég hef heyrt að sé
mjög vel skrifuð. Ég hef gefið
hana fjölmörgum en á sjálfur eft-
ir að lesa hana.“
Er það skilyrði fyrir því að bók
lifi að hún sé vel skrifuð og gangi
upp í stíl?
„Já, það er algjört lykilatriði.“
kolla@frettabladid.is
Í nýrri bók fjallar Þorleifur Hauksson um stílbrögð íslenskra rithöfunda á árunum 1850-1970. Hann segir Hall-
dór Laxness vera besta stílista 20. aldarinnar og að góður stíll skipti höfuðmáli í gerð skáldsagna.
Stíll er lykilatriði
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Það fór eins og spáð hafði verið:Bretar völdu Hringadróttins-
sögu sem eftirlætisbók sína.
Breska sjónarpsstöðin BBC stóð
fyrir valinu. Í öðru sæti var Hroki
og hleypidómar eftir Jane Austen.
Þrílógía Philip Pullmans um Lýru
(Gyllti áttavitinn, Lúmski hnífur-
inn og Skuggasjónaukinn) lenti í
þriðja sæti. Á eftir komu The
Hitchhiker’s Guide to the Galaxy
eftir Douglas Adams, Harry Pott-
er og eldbikarinn eftir J.K. Rowl-
ing, To Kill a Mockingbird eftir
Harper Lee, Bangsímon eftir A.A.
Milne og 1984 eftir George Orwell
varð í áttunda sæti. Hálf milljón
manna kaus Hringadróttinssögu í
fyrsta sæti.
Keppnin um bestu bækurnar
hófst fyrir níu mánuðum með for-
keppni og á þeim tíma lokuðu veð-
bankar fyrir veðmál þar sem
menn veðjuðu nær eingöngu á bók
Tolkiens og aðrar bækur áttu ekki
möguleika.
Nokkrir rithöfundar gagn-
rýndu þessa keppni harðlega og
sögðu hana meðal annars vera
óbókmenntalega og svívirðilega.
Rithöfundurinn Andrew O’Hagan
gekk meira að segja svo langt að
segjast hafa andúð á skoðunum
fjöldans. Þessi gagnrýni minnir
reyndar mest á nöldur, sérstak-
lega þegar haft er í huga að sala á
bókunum í 1.-21. sæti jókst um 425
prósent síðustu þrjá mánuði
keppninnar. Trílógía Philips
Pullmans seldist mest en á þrem-
ur síðustu mánuðunum ruku
170.000 eintök úr búðum, 50.000
eintök fóru af Hringadróttinssögu
og Birdsong eftir Sebastian
Faulks tók þriðja mesta sölukipp-
inn. Hroki og hleypidómar seldist
á þessum tíma minnst af þeim
bókum sem lentu í sæti 1-21, en
3.900 eintök af henni seldust á
þremur mánuðum. Það er nokkuð
minna en seldist af Glæstum von-
um Charles Dickens en sú bók
lenti í 17. sæti í keppninni. Á
bókasöfnum jukust útlán um 56
prósent í nóvember, sem rakið er
beint til keppninnar. „Hvernig er
hægt að gagnrýna framtak sem
hefur greinilega haft örvandi
áhrif á lestur um allt land hjá öll-
um aldurshópum?“ sagði einn af
hugmyndasmiðum keppninnar.
Hringadróttinssaga Tolkiens
hefur nokkrum sinnum áður unn-
ið í vinsældakosningu meðal al-
mennra lesenda. ■
TOLKIEN
Bretar hafa kosið Hringadróttinssögu sem
eftirlætis bók sína.
Bretar hafa valið eftirlætisbók sína:
Hringadróttins-
saga er uppáhaldið
ÞORLEIFUR HAUKSSON
„Þegar allt kemur til alls hafði ég ekki önnur viðmið en mína eigin tilfinningu og minn eigin smekk, en ég reyndi að velja þá höfunda
sem höfðu komið með nýjungar. Smátt og smátt fékk ég tilfinningu fyrir því hverjir það væru.“
Nú er allt leyfilegt.
Það er síður en svo
að ég harmi það að málfars-
lögreglan sé sett á eftirlaun
en það hefur haft í för með
sér ákveðinn skort á sjálfs-
ögun hjá sumum höfundum.
Menn eru farnir að skrifa
eins og enginn hafi skrifað á
undan þeim.
,,