Fréttablaðið - 20.12.2003, Side 64
60 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
Vinsælu stál- og
koparstytturnar
Tónlist ofl.
Í eldhúsinu
Starfsstéttir
Áletrun á flesta hluti
Póstsendum
Skólavörðustíg 8 – Sími: 551 8600
Falleg og köntuð
50m stál. Dagatal og vikudagar
Margskonar skífur
kr. 14.700 m.ól
kr. 19.400 m.stálfesti
Mörkinni 3 • s: 588 0640
Opið mán.- föst. kl. 11 til 18
laugard. kl. 11 - 15
www.casa.is
Frábærar jólagjafir
Aðventuvaka:
Hugleiðing
og ljúfir
tónar
Þær kalla sig Öllu, Ásu ogÖnnu Siggu og ætla að sjá
um aðventuvöku í Fríkirkjunni í
Reykjavík á sunnudagskvöldið
21. desember kl. 22. Þetta eru
þær Anna Sigríður Helgadóttir
söngkona og Aðalheiður Þor-
steinsdóttir píanóleikari sem
munu sjá um tónlist og Ása
Björk Ólafsdóttir guðfræðinemi
flytur hugleiðingar um aðventu
og jólahald. Aðventuvakan ber
yfirskriftina Á dimmri nóttu og
er tæplega klukkustundar kyrr-
lát dagskrá með kertaljósum,
hugleiðingum og ljúfum tónum.
Allir eru hjartanlega velkomnir
og aðgangur er ókeypis. ■
Innihald jólasálmanna skiptirokkur prestana miklu máli,“ seg-
ir séra Helga Soffía Konráðsdóttir,
prestur í Háteigskirkju. „Það er al-
veg jafn mikil predikun í sálma-
textunum eins og í predikunum
okkar prestanna,“ segir hún en
sálmarnir eru fullir af merkingum
og myndum sem fólk tekur kannski
ekki endilega eftir. Séra Helga
Soffía nefnir sem dæmi sálminn
Nóttin var sú ágæt ein sem inni-
haldsríkan sálmatexta. „Talað er
um hjarta mannsins sem íverustað
fyrir litla jesúbarnið,“ segir Helga
og bætir við að tilgangur aðvent-
unnar sé einmitt að búa hjörtun
undir komu jesúbarnsins.
Á aðfangadagskvöld í Háteigs-
kirkju eru meðal annars sungnir
sálmarnir Sjá himins opnast hlið
og Bjart er yfir Betlehem. „Sjá
himins opnast hlið er bæði dæmi
um óskaplega fallega músík og svo
fallegt innihald,“ segir Helga. „Við
syngjum Bjart er yfir Betlehem
vegna þess að það er hreinræktað-
ur barnasálmur. Það er orðið svo
mikið af börnum á aftansöngnum
klukkan sex á aðfangadag.“
Einn jólasálmur skipar sérstak-
an sess í hjarta séra Helgu Soffíu
en það er sálmurinn Jesús, þú ert
vort jólaljós. „Ég hafði mikið fyrir
því að læra þennan texta þegar ég
var lítil því ég átti að syngja hann
fyrir framan fullt af fólki,“ segir
hún. Hún minnist þess að hafa
haldið á kerti og sungið sálminn.
„Mamma var ekki alltaf að fylgja
mér eftir en hún kom á þetta
kvöld. Henni fannst þetta svo
fallegt að hún fór að gráta,“ segir
Helga. ■
Hjá okkur í Grafarvogi eruákveðnir sálmar sem eru
alltaf á aðfangadagskvöld,“ seg-
ir Hörður Bragason, organisti í
Grafarvogskirkju. Sálmavalið
fylgir alltaf ákveðnum hefðum
þótt það sé ekki eins í öllum
kirkjunum. „Í Grafarvogskirkju
syngjum við alltaf sömu sálm-
ana. Þeir eru Sjá himins opnast
hlið, Í Betlehem er barn oss
fætt, Nóttin var sú ágæt ein,
Það aldin út er sprungið og svo
auðvitað Heims um ból,“ segir
hann. Á jóladag bætist sálmur-
inn Hin fegursta rósin er fundin
við. Aðrir hátíðisdagar hafa líka
einkennissálm. „Á gamlárs-
kvöld er alltaf sunginn sálmur
við Óðinn til gleðinnar eftir
Beethoven en hann heitir Yfir
hverja eykt á jörðu á íslensku.
Á nýársdag er síðan alltaf
sunginn þjóðsöngurinn í Grafar-
vogi.
Hefðirnar eru fljótar að
verða til,“ segir Hörður og vísar
til þess að Grafarvogssöfnuður
er mjög ungur söfnuður.
Í guðsþjónustum um hátíð-
arnar er alltaf sungið hátíðartón
séra Bjarna Þorsteinssonar.
„Það er nú annað sem má ekki
breyta,“ segir Hörður og hlær.
„Það er búið að syngja þetta á
Íslandi í bráðum hundrað ár og
ekki þorandi að breyta því. Þá
myndi einhverjum finnast eitt-
hvað vanta,“ segir Hörður og
honum finnst líklegt að séra
Bjarni Þorsteinsson hafi verið
tenór, því tónsvið hátíðartónsins
liggur ekki svo vel fyrir alla
presta. ■
Tónlistin í hátíðarmessunum:
Hefðirnar fljótar að verða til
HÖRÐUR BRAGA-
SON ORGANISTI
Segir að tónlistarval í
hátíðarmessunum fylgi
alltaf fastmótuðum
hefðum.
Ekki jólasálmur:
Nóttin var sú
ágæt ein
Sálmurinn sem við þekkjumsem Nóttin var sú ágæt ein er
oft sunginn um jólinn. Textinn er
ekki saminn sem jólasálmur held-
ur er kvæði eftir Einar Sigurðs-
son í Eydölum sem hann orti und-
ir vikivakahætti. Það nefnist
Kvæði af stallinum Kristí og telur
tuttugu og níu erindi. Kvæðið er
ort undir vikivakahætti. Fyrstu
fjögur erindin eru sungin sem
jólasálmur en hér má sjá eitt í
viðbót:
Nóttin var sú ágæt ein,
í allri veröldu ljósið skein,
það er nú heimsins þrautar
mein
að þekkja hann ei sem bæri.
Með vísnasöng eg vögguna
þína hræri.
Í Betlehem var það barnið
fætt
sem best hefur andar sárin
grætt;
svo hafa englar um það rætt
sem endurlausnarinn væri.
Með vísnasöng eg vögguna
þína hræri.
Fjármenn hrepptu fögnuð
þann,
þeir fundu bæði Guð og mann;
í lágan stall var lagður hann
þó lausnarinn heimsins væri.
Með vísnasöng eg vögguna
þína hræri.
Lofið og dýrð á himnum hátt
honum með englum syngjum
þrátt;
friður á jörðu og fengin sátt,
fagni því menn sem bæri.
Með vísnasöng eg vögguna
þína hræri.
Þér gjöri eg ei rúm með grjót
né tré,
gjarnan læt eg hitt í té,
vil eg mitt hjartað vaggan sé,
vertu nú hér minn kæri.
Með vísnasöng eg vögguna
þína hræri.
SÉRA HELGA SOFFÍA KONRÁÐSDÓTTIR
Sálmatextinn skiptir presta máli.
Íslenskir jólasálmar:
Fullir af merkingu
Hátíðatón
ómissandi
Ekki er sama tón notað viðmessusvör í öllum kirkj-
um. Tvær gerðir tóns eru al-
gengar í kirkjum, en þar að
auki er hátíðartónið svokall-
aða sem sungið er á jólum og
páskum. Hátíðartónið er eftir
séra Bjarna Þorsteinsson,
prest á Siglufirði. Það kom út
árið 1899 og náði strax um
aldamótin töluverðri út-
breiðslu. Hátíðartónið er af
mörgum talið ómissandi þátt-
ur í helgihaldi á stórhátíðum.
Það er útsett fyrir fjögurra
radda blandaðan kór og orgel-
undirleik. ■