Fréttablaðið - 20.12.2003, Side 78

Fréttablaðið - 20.12.2003, Side 78
74 20. desember 2003 LAUGARDAGUR Hjartaknúsarinn BenAffleck ætlar að skilja unnustu sína Jennifer Lopez eftir eina á jólunum og eyða þeim í staðinn með bandarísk- um hermönnum við Persaflóa. Ætlar hann að taka í hend- urnar á hermönnunum og kynna um leið nýjustu mynd sína Paycheck. Þar leikur hann við hlið Uma Thurman sem síð- ast gerði garðinn frægan í Kill Bill. Leikstjóri er enginn annar en John Woo, sem hefur stýrt mörgum hasarmyndum í gegn- um tíðina. Affleck og Lopez ætluðu að giftast í september en hættu við vegna fjölmiðlasirkusins sem var byrjaður að myndast. Ekki er vitað hvort eða þá hvenær parið ætlar að ganga upp að altarinu. Aðskilnaðurinn um jólin á varla eftir að flýta fyrir því og ýtir vafalítið undir sögusagnir um að þau séu hætt saman. ■ Affleck hittir hermenn á jólunum S Foreldrar Michaels Jacksonstóku við greiðslu til þess að koma fram í sjónvarpsvið- tali til að verja son sinn gegn ásökunum um kynlífsofbeldi gegn 13 ára strák. Joe og Katherine Jackson komu fram í 20/20 og viðtalið var birt um öll Bandaríkin. Hjónin heimtuðu þó að fá greiðslu fyrir að koma fram vegna gífurlegra fjárhagsvand- ræða sinna. Greiðslan var send til þriðja aðila í tilraun til þess að fela staðreyndir. Stephen King er kominn heimtil sín eftir að hafa eytt 25 dögum á spítala á meðan hann jafnaði sig af lungnabólgu. King lenti í alvarlegu slysi árið 1999 og hefur verið heilsulítill síðan. Í kvöld stendur Smekkleysa SMfyrir stórtónleikum á Gauki á Stöng. Fram koma Mínus, Maus, Kimono, Dr. Gunni, Einar Örn Ghostigital, Steintryggur og Dópskuld. Að sögn Ásmundar Jónssonar hjá Smekkleysu eru þetta þær hljómsveitir sem gáfu út plötur hjá Smekkleysu á þessu ári, fyrir utan Dópskuld sem mun vera hlið- arverkefni Frosta Logasonar úr Mínus og félaga hans. „Þetta er svona lokahnykkurinn hjá okkur fyrir jólin, síðasti viðburðurinn á árinu,“ segir Ásmundur. „Þetta verður í síðasta skiptið sem áhorf- endur geta séð Mínus í langan tíma því þeir eru að fara í hljóm- leikaferðir eftir áramótin til Bret- lands og um Evrópu. Það eru líka ánægjulegar fréttir að plata Mín- us var valin ein af 50 bestu plötun- um á árinu bæði hjá Metal Hammer og Kerrang.“ Ásmundur lofar fjölbreyttri dagskrá og mjög góðum tónleik- um enda allt saman fínar hljóm- sveitir með mismunandi áherslur. Sker Steintryggur, sem er sam- starfsverkefni Sigtryggs Baldurs- sonar og Steingríms Guðmunds- sonar, sig nokkuð úr. Sú sveit hef- ur víða vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína, meðal annars á Menningarnótt. Aðgangseyrir á tónleikana er 1.500 krónur og með fylgir plata að eigin vali í boði Smekkleysu með einhverri af þeim hljómsveit- um sem koma fram. „Tónleikarnir eru fyrri part kvöldsins, frá 20.00 til miðnættis. Þarna getur fólk, í staðinn fyrir að fara í búðir, farið á tónleikana og keypt jólagjöf í leiðinni,“ segir Ásmundur að lok- um. ■ Tónlist SMEKKLEYSA ■ stendur fyrir stórtónleikum á Gauki á Stöng í kvöld. Lokahnykkur Smekkleysu JENNIFER LOPEZ Leik- og söngkonan Jennifer Lopez mætti á frumsýningu myndarinnar Paycheck sem haldin var í Kínverska bíóinu í Los Angeles á fimmtudag. Athygli vakti að hún kom ekki á sama tíma og kærastinn hennar, Ben Affleck, sem leikur aðalhlutverkið í myndinni. MÍNUS Síðasti séns til að sjá Mínus í langan tíma því sveitin fer í tónleikaferð til Evrópu eftir áramót. AFFLECK OG LOPEZ Verða aðskilin um jólin. Fréttiraf fólki Umfjölluntónlist Undanfarið hefur Dr. Gunniverið þekktari sem annar af stjórnendum þáttarins skemmti- lega Popppunkts heldur en sem tónlistarmaður. Hér er hann sem sagt kominn úr híðinu með nýja plötu og að ég held þá fyrstu síðan Unun var og hét, ef undan er skilin barnaplat- an með Prumpulaginu vinsæla. Og þvílík endurkoma! Stóri hvell- ur er uppfull af hverju fyrirtaks rokklaginu á fætur öðru og sýnir að doktorinn hefur litlu sem engu gleymt. Aðall Dr. Gunna er hæfi- leiki til að semja grípandi lög en um leið er hann oftast á jaðrinum hvað varðar almennar vinsældir. Sérstök rödd hans, opinskáir text- ar og hrá tónlistin eiga eflaust eft- ir að skipta fólki sem hlustar á plötuna í tvær fylkingar. Að mörgu leyti mætti líkja Gunnari við sjálfan Frank Black úr Pixies enda svipar mörgum lögum á plötunni til þeirrar mögnuðu sveitar. Nægir þar að nefna hið skemmtilega Eftir 100 ár og Fyrir 100 árum. Auk þessara tveggja laga voru Homo Sapiens, Á eyðieyju og Heimsk ást í mestu uppáhaldi. Þetta er virkilega góð plata frá Dr. Gunna og ljóst að hvíldin hef- ur gert honum gott. Freyr Bjarnason Flott endurkoma DR. GUNNI Stóri hvellur Bandarískir kvikmyndagagn-rýnendur hafa gert óspart grín að Skotanum Ewan McGregor fyrir suðurríkjahreim- inn sem hann notar í myndinni Big Fish. „Það eru sumir hreimar sem ættu ekki að vera notaðir af Skot- um,“ sagði meðal annars einn gagnrýnandi hjá dagblaðinu The New Yorker. Bretarnir Albert Finney og Helena Bonham Carter leika við hlið McGregor í mynd- inni en hafa alveg sloppið við gagnrýni. ■ MCGREGOR Þykir ekki hljóma sannfærandi sem - Suðurríkjabúi. McGregor gagnrýndur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.