Fréttablaðið - 20.12.2003, Page 88
84 20. desember 2003 LAUGARDAGUR
BRIMABORGARAR Í JÓLASKAPI
Ludovic Magnin, Tim Borowski, Valerien
Ismael og Andreas Reinke, leikmenn
Werder Bremen, fagna 3-0 sigri á Hansa
Rostock. Brimaborgarar eru í efsta sæti
deildarinnar eftir fyrri hluta keppninnar en
það hefur oftar en ekki verið fyrirheit um
meistaratitil að vori.
Fótbolti
hvað?hvar?hvenær?
17 18 19 20 21 22 23
DESEMBER
Laugardagur
KÖRFUBOLTI Miðherjinn Derrick
Allen var stigahæstur hjá Kefl-
víkingum í leikjunum sex í riðla-
keppninni í Evrópubikarnum.
Allen skoraði 25,7 stig að meðal-
tali í leikjunum sex, tók 8,7 frá-
köst og hitti úr 60% skota sinna
innan teigs. Nick Bradford skor-
aði 24 stig að meðaltali, tók 8 frá-
köst og gaf 3,3 stoðsendingar.
Gunnar Einarsson skoraði 12,3
stig að meðaltali, Falur Harðar-
son, sem spilaði aðeins fimm leiki,
skoraði 11 stig að meðaltali og tók
19 fleiri skot fyrir utan þriggja
stiga línuna en innan hennar. Það
sama má segja um Magnús Þór
Gunnarsson en hann skoraði 10,8
stig að meðaltali en tók 23 fleiri
skot fyrir utan þriggja stiga lín-
una en innan hennar. ■
Keflavík í þriðja sætinu
Tvö töp á þremur dögum í Portúgal gerðu út um drauminn um efsta sætið.
KÖRFUBOLTI Keflavík hafnaði í þrið-
ja sæti í B-riðli vesturdeildar
Evrópubikarins í körfuknattleik
eftir að hafa tapað tveimur leikj-
um í Portúgal, gegn Overanse og
Madeira, á þremur dögum. Kefla-
vík var með jafnmörg stig og
franska liðið Toulon en Toulon var
með betri árangur í innbyrðis-
viðureignum liðanna. Þetta þýðir
að Keflavík mætir franska liðinu
Dijon í næstu umferð en Dijon
hafnaði öðru sæti A-riðils.
Franska liðið hefur heimavallar-
réttinn í viðureignunum gegn
Keflavík en liðin þurfa að vinna
tvo leiki til að fara með sigur af
hólmi.
Keflavík tapaði fyrir Madeira
á fimmtudagskvöldið, 108-107, en
sigur í þeim leik hefði fært liðinu
efsta sætið í riðlinum. Nick Brad-
ford fór á kostum í liði Keflavíkur
en hann skoraði 38 stig, gaf sex
stoðsendingar og hitti úr fjórum
af fimm þriggja stiga skotum sín-
um í leiknum. Derrick Allen skor-
aði 28 stig og tók sex fráköst og
Jón Nordal Hafsteinsson skoraði
17 stig. Keflavík saknaði Fals
Harðarsonar en hann lék ekki
með vegna meiðsla á hné.
Madeira var mun sterkari aðilinn
í fyrri hálfleik og leiddi, 58-46,
þegar flautað var til hálfleiks.
Leikmenn Keflavíkur komu hins
vegar sterkir til leiks í þriðja leik-
hluta og leiddu eftir hann, 78-77.
Síðasti leikhlutinn var æsispenn-
andi en það fór þó svo að lokum að
Madeira sigraði, 108-107. Keflvík-
ingar fengu tækifæri til að trygg-
ja sér sigurinn á síðustu fimm
sekúndum leiksins en tókst það
ekki. Guðjón Skúlason, þjálfari
Kefavíkur, var ósáttur við dómar-
ana í leikslok og sagði þá hafa
rænt sigrinum af sínum mönnum.
„Ég veit ekki hvort það er viðeig-
andi en mér fannst dómarinn hafa
af okkur sigurinn. Við spiluðum
vel í síðari hálfleik, hittum vel og
spiluðum góða vörn en sigurinn
valt á einum hlut sem féll ekki
okkar megin í kvöld - þannig er
körfuboltinn,“ sagði Guðjón. ■
Alan Shearer:
Eftirmaður
Robson?
FÓTBOLTI „Ég vissi ekki að Alan She-
arer hefði farið á þjálfaranám-
skeið. En ég er mjög ánægður,“
sagði Freddy Shepherd, stjórnar-
formaður Newcastle. Shearer hef-
ur að áður verið talinn líklegur eft-
irmaður Bobby Robson og ummæli
Shepherd um að hann vilji heima-
mann í starfið ætti að styrkja stöðu
framherjans.
„Ef ég mætti setja fram óskir
vildi ég heimamann sem fram-
kvæmdastjóra Newcastle,“ sagði
Shepherd. „Það þrengir hringinn
úr 30 milljónum manna í þrjá. Ég
yrði mjög stoltur ef heimamaður
stjórnaði félaginu. ■
FÓTBOLTI Trevor Birch, yfirmaður
knattspyrnumála hjá Leeds, segir
að félagið þurfi ekki að selja sína
bestu menn þegar leikmanna-
markaðurinn opnar á nýjan leik í
janúar þrátt fyrir að félagið
skuldi 78 milljónir punda og rói
lífróður til að bjarga sér frá
greiðslustöðvun. Nokkur óvissa
hefur ríkt í kringum framtíð leik-
manna eins og Mark Viduka, Alan
Smith og James Milner en Birch
segir þá ekki vera á förum. Þeir
hafa allir þrír verið orðaðir við
ensku meistarana Manchester
United að undanförnu en Viduka
hefur einnig verið orðaður við Int-
er Milan. Ítalska liðið reyndi að fá
Viduka að láni fyrir tímabilið en
forráðamenn Leeds vildu það ekki
jafnvel þótt Inter byði tvær millj-
ónir punda. Viduka er hins vegar
afar áhugaverður kostur fyrir
mörg lið núna því að hann hefur
hvorki leikið í meistaradeildinni
né Evrópukeppni félagsliða. Hann
hefur 65 þúsund pund í vikulaun
en þrátt fyrir það sjá forráða-
menn Leeds hann sem máttar-
stólpa í viðleitni félagsins til að
bjarga sér frá falli. „Ég ætla ekki
að segja að við munum ekki selja
leikmenn en við erum ekki að
reyna að losa okkur við leikmenn.
Ef eitthvert lið væri tilbúið að
borga 50 milljónir punda fyrir
Viduka þá myndum við að sjálf-
sögðu hugsa málið. Okkar helsta
markmið er hins vegar að halda
okkur í úrvalsdeildinni og það
næst ekki með því að selja bestu
leikmennina,“ sagði Birch. ■
Fulham:
Saha fer
hvergi
FÓTBOLTI „Það má búast við svona
vangaveltum vegna þess að Louis
Saha er frábær leikmaður og hef-
ur skorað mikið. En hann fer
hvergi,“ sagði Chris Coleman,
framkvæmdastjóri Fulham.
„Hann er okkur mjög mikilvægur,
hann er ánægður hjá okkur og vill
vera áfram.“
Louis Saha hefur skorað tíu
mörk fyrir Fulham í úrvalsdeild-
inni í vetur og er talið að áhugi
Manchester United hafi flýtt fyrir
því að Fulham gerði honum nýtt
tilboð. „Hann á tvö ár eftir af
samningnum þegar leiktíðinni
lýkur en við ætlum að gera honum
nýtt tilboð,“ sagði Coleman. „Ég
hef þegar rætt við Louis. Við höf-
um rætt við umboðsmann hans og
þetta lítur vel út.“ ■
■ ■ LEIKIR
14.15 Keflavík og KR leika til úr-
slita í Hópbílabikar kvenna í körfubolta.
Leikið verður í Smáranum í Kópavogi.
16.15 Breiðablik og Grindavík
keppa í Smáranum í INTERSPORT-deild-
inni í körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
13.00 NBA á Sýn. Útsending frá
leik Philadelphia 76ers og Cleveland
Cavaliers.
14.10 Hópbíkabikarinn í körfu-
bolta á RÚV. Bein útsending frá úrslita-
leik Keflavíkur og KR í Hópbílabikar
kvenna í körfubolta.
14.30 Alltaf í boltanum á Sýn.
14.45 Enski boltinn á Stöð 2.
Bein útsending frá leik Bolton Wander-
ers og Arsenal.
15.00 Supercross á Sýn. Nýjustu
fréttir frá heimsmeistaramótinu í
Supercrossi.
16.00 Landsglíman á RÚV. Saman-
tekt af Landsglímunni á Laugarvatni fyrir
skömmu.
16.00 Spænsku mörkin á Sýn.
16.10 Íslandsmótið í körfubolta á
RÚV. Bein útsending frá leik Breiðabliks
og Grindavíkur í karlaflokki.
17.00 Enski boltinn á Sýn. Útsend-
ing frá leik Bolton Wanderers og
Arsenal
19.50 NFL-tilþrif á Sýn. Svipmyndir
úr leikjum helgarinnar í ameríska fót-
boltanum.
20.20 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Valencia og Sevilla.
22.30 Hnefaleikar á Sýn. Bein út-
sending frá hnefaleikakeppni í Þýska-
landi. Á meðal þeirra sem mætast eru
þungavigtarkapparnir Vladimir
Klitschko og Danell Nicholson.
DERRICK ALLEN
Stigahæstur Keflvíkinga í riðlakeppninni.
Tölfræði Keflvíkinga í
Evrópukeppninni:
Allen
stigahæstur
LEEDS UNITED
Trevor Birch, yfirmaður knattspyrnu-
mála hjá Leeds, segir félagið ekki
þurfa að selja leikmenn í janúar þrátt
fyrir bága fjárhagsstöðu.
Enska úrvalsdeildarfélagið Leeds United:
Enginn flótti frá okkur
NICK BRADFORD
Nick Bradford átti stórgóðan leik gegn Madeira á fimmtudagskvöldið og skoraði 38 stig.
STAÐAN Í RIÐLINUM
Overanse 6 4 2 10
Toulon 6 3 3 9
Keflavík 6 3 3 9
Madeira 6 2 4 8