Fréttablaðið - 20.12.2003, Page 94

Fréttablaðið - 20.12.2003, Page 94
Þegar leitin að vinkonunumHolly Wells og Jessicu Chap- man stóð sem hæst í Soham á Englandi á síðasta ári lagði David Beckham í Manchester United sitt af mörkum til að aðstoða við leitina. Lík stelpnanna fundust í ágúst og hinn meinti húsvörður Ian Huntley hefur nú hlotið tvö- faldan lífstíðardóm fyrir morð að yfirlögðu ráði. Ástæðan fyrir því að Beckham kom fram í tengslum við þetta mál var sú að stelpurnar voru báðar klæddar Manchester United peysum þegar glæpurinn var framinn. Árið 1995 hafði sjón- v a r p s s t ö ð i n BBC samband við Halldór Einarsson í Henson út af svipuðu máli. „BBC var að framleiða þátt sem heitir Rough Just- ice,“ segir H a l l d ó r Einarsson. „Í þættinum átti að fjal- la um mál þar sem 16 ára strákur hafði orðið þriggja ára barni að bana. Þetta átti sér stað árið 1992 en fórnarlambið var íklætt Aston Villa fótboltaskyrtu frá Henson þegar glæpurinn var framinn.“ BBC vildi sviðsetja atburðinn fyrir sjónvarp og hafði því sam- band við Henson. „Þau sendu mér beiðni um Aston Villa peysu á þriggja ára strák. Við vorum með samning við Aston Villa tvö keppnisbíl og höfðum selt tíu þús- und hvora peysur hvora leiktíð. Þegar þessi fyrirspurn kom átti ég enga peysu og heldur ekki efni eða annað sem þurfti til. Ég vildi samt gera þetta og hafði upp á peysu sem hafði verið í eigu Alberts Guðmundssonar en hann hafði fengið peysuna þegar hann tók þátt í fjáröflun- arleik á Laugar- dalsvelli. Peysan var nógu stór til að ég gæti búið til litla peysu handa leikaran- um sem tók þátt í að sviðsetja at- burðinn.“ ■ 90 20. desember 2003 LAUGARDAGUR Það hefur ekki verið mikið aðgera,“ segir Magnús Pálsson, yfirmaður öryggisvörslu í Kringl- unni. „Við aukum alltaf mikið við okkur fólk á þessum tíma og fjölg- um gangandi öryggisvörðum, bæði einkennis- og óeinkennis- klæddum, sem rölta meðal við- skiptavina.“ Magnús vill ekki meina að mik- ið sé um búðarhnupl. „Þjófnaðar- mál eru í lágmarki og enginn dag- ur sem sker sig úr ennþá, sem bet- ur fer. Þetta hefur bara verið dag- legt amstur, eins og er í svona stórri verslunarmiðstöð.“ Þegar margt er um manninn í Kringlunni, gefst yfirmanni ör- yggisvörslunnar lítill tími til að sinna undirbúningi jólanna. „Ég verð hér fram eftir nóttu á Þor- láksmessu. Konan mín sér að mestu um gjafir og kort en við náum að ræða þetta saman þegar ég kem heim seint á kvöldin.“ ■ Vikan sem var MAGNÚS PÁLSSON ÖRYGGISVÖRÐUR Í KRINGLUNNI ■ Vikan hefur verið góð og engin eftirminnileg óhöpp hafa orðið. Fréttiraf fólki Þjófnaðarmál í lágmarki 1 5 6 7 8 13 14 16 17 15 18 2 3 11 9 1210 4 Jólin koma Vegna mikilla anna verður auglýsingadeild DV og Fréttablaðsins opin í dag, laugardag frá kl. 10 - 16 Síminn er 515 7515 Nýjasti limur Reðurstofunnarer af háhyrningi sem veidd- ur var fyrir um tveimur vikum. Sigurður Hjartarson Reður- stofustjóri vill meina að það sé bróðir Keikós sem lést fyrir skömmu. MAGNÚS PÁLSSON Allar jólaskreytingarnar í vinnunni hafa ekki komið honum í hátíðarskap, því þegar jóla- skrautið kemur upp þann 1. nóvember er þetta orðið svolítið vanafast á aðfangadag, að hans sögn. Hann mun samt sakna þess þegar skrautið verður tekið niður í kringum þrettándann. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A Jólalag Rásar 2 Hl j ó m s v e i t i nKung Fú og Þórey Heiðdal unnu jólalagakeppni Rásar 2 og Skífunnar en úr- slitin voru tilkynnt í gær. Ríflega fjörutíu lög bárust í keppnina en sérskipuð dóm- nefnd valdi sex lög til undanúrslita. Hlustendur Rásar 2 völdu síðan sigurlagið en jólalag árs- ins heitir Gemmér jól og er eftir Steinarr Loga Nesheim. Tæplega níu þúsund manns greiddu atkvæði í gengum síma, heimasíðu Ríkisút- varpsins og Textavarpsins og aldrei fyrr í sögu útvarpsstöðvarinnar hafa fleiri tekið þátt í kosningu. ■ ÞÓREY HEIÐDAL Hljómsveitin Kung fú og Þórey Heiðdal unnu jólalaga- keppni Rásar 2 í gær. Ég hef eytt kvöldunum mínummikið upp á Setustofu en síð- asta laugardagskvöld vorum við í Forgotten Lores að spila á Akur- eyri,“ segir Benedikt Freyr Jóns- son, plötusnúðurinn úr Forgotten Lores, sem starfar sem skemmt- anastjóri á Setustofunni, nýjum skemmtistað við Lækjargötu. Setustofan opnaði fyrir mánuði síðan og hefur Benni nýtt tímann í að breiða út fagnaðarerindið um staðinn. „Þetta er mjög gamalt hús og það má varla negla nagla þarna í vegginn.“ Forgotten Lores gáfu nýlega út plötuna, Týndi Hlekkurinn. Í kjöl- farið hefur sveitin reynt að koma fram við flest tækifæri og í kvöld á að grípa gæsina. „Þessi staður er ekkert rosalega stór, þannig að færri komast að en vilja,“ segir Benni að lokum. ■ Lárétt: 1 fjármunir, 5 belti, 6 skóli, 7 öfug röð, 8 ekki nóg (forskeyti) 9 mann, 10 reið, 12 herská samtök, 13 læri, 15 hreyfing, 16 jörp hryssa, 18 púkar. Lóðrétt: 1 talar gegn, 2 hita, 3 átt, 4 gómaður, 6 rýri, 8 vanþóknun, 11 hverfur, 14 segja fyrir um, 17 rykkorn. Lausn: Lárétt: 1mynt,5óla,6ma,7ts,8van,9 segg,10æf, 12ira,13les,15ið,16irpa, 18 árar. Lóðrétt: 1 mótmælir, 2yls,3na,4fang- aður, 6magri, 8vei,11fer, 14spá,17ar. BENNI ÚR FL Einn liðsmaður Forgotten Lores er að fara flytja til útlanda, því reynir sveitin að spila sem mest. Í kvöld leikur hún á Setustofunni við Lækjargötu. Búningur SJÓNVARPSSTÖÐIN BBC ■ hafði samband við Halldór Einarsson í Henson þegar sviðsetja átti morð á þriggja ára gömlum dreng sem hafði verið myrtur í Aston Villa peysu. Laugardagskvöld BENNI ÚR FORGOTTEN LORES ■ Hefur verið að byggja upp stemningu á Setustofunni þar sem hann vinnur sem skemmtanastjóri. Spilar á tónleikum í kvöld með Forgotten Lores. Skífuþeytingur og tónleikahald Fórnarlamb í Henson peysu ALBERT GUÐMUNDSSON Halldór í Henson saumaði peysuna úr treyju Alberts Guðmundssonar. HOLLY WELLS OG JESSICA CHAPMAN Vinkonurnar sem myrtar voru í Soham á síðasta ári voru íklæddar Manchester United peysum. HENSON PEYSAN Halldór Einarsson saumaði þetta ein- tak fyrir sjónvarps- stöðina BBC þegar sviðsetja átti morð á þriggja ára dreng sem hafði verið klæddur Aston Villa peysu þegar hann var myrtur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.