Fréttablaðið - 17.04.2004, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Bakþankar
ANDRA SNÆS MAGNASONAR
Fyrir 1100 árum flúðu menn ofríkiNoregskonungs og sigldu hingað á
litlum kænum. Margir fórust í hafi í
leit sinni að betra lífi en margir kom-
ust að landi og brátt fylltist landið af
þúsundum útlendinga. Þeir gerðu hér
mikinn óskunda, stunduðu þrælahald,
nauðungarhjónabönd, heiðursmorð og
skógareyðingu svo fátt eitt sé nefnt.
Fyrsta kynslóð flóttamanna var hepp-
in, hér var enginn til að taka á móti
þeim og snúa við í Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar (kenndri við barn flótta-
manns frá Noregi).
ÞEIR SEM hafa lesið um flótta-
mannatímann á söguöld verða skiljan-
lega óttaslegnir þegar útlendingar
vilja koma hingað aftur eftir 1000 ára
hlé. Það er lokað alfarið á alla flótta-
menn. Nú á að herða lög sem munu
torvelda mönnum að ganga að eiga út-
lendinga. Kannski má skilja þetta í
ljósi misjafnrar reynslu af útlending-
um og afkomendum þeirra. Baltasar
Kormákur hefur dregið upp dökka
mynd af íslensku samfélagi í kvik-
myndum sínum, Jónas Sen getur verið
óvæginn í gagnrýni sinni á íslenska
tónlistarmenn, Geir Haarde hefur tek-
ið upp skattastefnu Noregskonungs,
Friðrik Weisshappel æsir fólk upp í að
skipta um eldhússinnréttingar, svo
maður tali ekki um Emilönu Torrini og
Dóru Takefusa. Mats Wibe Lund hefur
ljósmyndað hvern einasta sveitabæ á
Íslandi. Norska leyniþjónustan?
OFANGREINDIR einstaklingar
mega þó ekki varpa skugga á ímynd
útlanda. Útlendingar eru margir og þá
má finna alls staðar í heiminum. Mið-
að við fjölda þeirra og lækkandi flug-
fargjöld eru miklar líkur á því að
börnin okkar muni kynnast eða jafn-
vel giftast útlendingum. Þá væri al-
deilis slæmt ef breytingar á útlend-
ingalögum fara óbreytt í gegnum Al-
þingi vegna þess að þá er hætta á því
að margir endi sem rómantískir
flóttamenn.
ÞAÐ VÆRI til dæmis slæmt að
verða ástfangin í landi þar sem pör
búa ekki saman fyrir hjónaband. Þá
lenda menn á milli steins og sleggju.
Fjölskylda og hefðir meina fólki að
búa saman en íslensk lög telja grun-
samlegt ef fólk hefur ekki búið sam-
an. Ef skötuhjúin eru um tvítugt yrði
ekki tekið mark á vilja útlendingsins
til að eigast, samkvæmt lögunum öðl-
ast þeir fulla dómgreind 24 ára. Ef
tungumál ástarinnar er enska en ekki
íslenska, hindí, króatíska eða kín-
verska versnar enn í því og yfirvöld
gætu hreinlega þurft að aðskilja hjón-
in af öryggisástæðum.
HVERSU MÖRGUM ástarsam-
böndum má spilla eða tortryggja til að
koma í veg fyrir mögulegt plathjóna-
band? Menn ættu að ranka við sér og
kynna sér undirskriftasöfnun á deigl-
an.com, politik.is, murinn.is eða tik-
in.is. ■
Flóttamenn
og útlendingar
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
24
21
4
04
.2
00
4
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
4
Rýmum fyrir nýjum sófum
FLODA 2ja sæta leðursófi með svörtu, mjúku leðri.
Einnig til hægindastóll í stíl.
MYSINGE sófinn frá hönnuðinum Miu Gammelgaard
er með rauðu áklæði úr 100% bómull. Á armbríkum eru
fimm stillingar og endaborðið fylgir með. Einnig til í öðrum
útfærslum, með 2 bökum og einum armi o.s.frv.
MALSHULT hægindastóll með ljósgráu áklæði og
rúskinnsáferð. Fleiri áklæði í boði.
Þessi 3ja sæta MALSHULT sófi er með sandlituðu
áklæði og rúskinnsáferð. Fleiri áklæði í boði.
KARLANDA hornsófi 2+3 / 3+2
Vandaður sófi frá hönnuðinum Tord Björklund.
Sandlitað leðuráklæðið er endingargott og slitsterkt.
Einnig til svartur.
LAHOLM hvíldarstóllinn er með dökkbláu leðuráklæði.
Hægt er að halla afturábak og fá skemilpúða upp.
Afar þægilegt.
EKTORP hornsófi 2+2 með turkisbláu bómullaráklæði
sem taka má af og þvo. Fleiri áklæði í boði.
84.900,-
49.000,-
39.900,- 69.900,-
39.900,-
199.000,-
54.500,-