Fréttablaðið - 17.04.2004, Blaðsíða 54
Hrósið 42 17. apríl 2004 LAUGARDAGUR
Rocky
..... fá leikhúskonurnar 40 fyrir að
taka á karlaveldi leikhúslífsins.
Maður gefur ekki ókunnugum
draumana sína
perlurnar sínar maður eyðileggur
ekki
perlufestina sína
til þess að gefa með sér
maður hefur hana um hálsinn
og vonar að hún slitni aldrei.
Maður stingur ekki rýting
í bök vina sinna
maður stingur þá í hjörtun
horfir djúpt í augu þeirra
og lætur vaða.
Maður elskar ekki fólk
í alvörunni
alvaran er að vera einn
í myrkrinu drekka Tab
og fróa sér
maður elskar fólk
í þykjustunni
í stuttan tíma
og forðar sér svo.
Maður gerir ekki innkaupin sín
í Hagkaup eða 10-11
maður verslar í Bónus
kaupir sér horaðan kjúkling
borðar hann hráan
og vonast til að fá salmónellu
til að þurfa ekki að
vinna þurfa ekki að lifa.
Leitin að sigurskáldinu
Í dag birtast ljóð númer þrjú ogfjögur af átta í ljóðakeppni
Fréttablaðsins og Eddu útgáfu.
Þjóðin fær nú tækifæri til að velja
annað þessara ljóða áfram í keppn-
inni um Sigurskáldið. Þó svo að
ummæli dómnefndar fylgi með er
það á ykkar valdi, lesendur góðir,
að velja það ljóð sem ykkur þykir
skara fram úr. Næstu tvö ljóð birt-
ast á morgun og á mánudag birtast
ljóð númer sjö og átta og er þá
fyrstu umferð lokið.
Að kvöldi mánudags standa eft-
ir fjögur ljóð sem keppa í undanúr-
slitum á þriðjudag og miðvikudag.
Úrslitaslagurinn fer fram næsta
fimmtudag og sjálft Sigurskáldið
verður krýnt föstudaginn 23. apríl,
sem er dagur bókarinnar. ■
HVERNIG VELUR ÞÚ LJÓÐ?
Til að kjósa þitt ljóð sendir þú einfaldlega SMS-skeyti, eitt eða fleiri
Ef þú kýst ljóð Kristínar sendir þú SMS-skeytið
JA L4 í númerið 1900*
Ef þú kýst ljóð Steinunnar sendir þú SMS-skeytið
JA L5 í númerið 1900*
Dregið verður úr innsendum SMS skeytum á
hverjum degi. Vinningshafi dagsins fær bók-
ina Herra Alheimur eftir Hallgrím Helgason.
* Hvert skeyti kostar 99 krónur
STEINUNN GUNNLAUGSDÓTTIR,
teiknimódel og fjöllistakona, fædd 1983.
KRISTÍN EIRÍKSDÓTTIR,
Myndlistakona og námsmaður í Berlín,
fædd 1981.
-lang heitastir
Háteigsvegi 7
105 Reykjavík
Sími: 511 1100
Fax: 511 1110
www.ofn.is
ofnasmidjan@ofn.is
Heitir
fallegir
og
Ofnar
Ofnlokar
Handklæðaofnar
Sérpantanir
SÁLIN ER RAKKI SEM Á SKILIÐ AÐ ÞJÁST.
Þetta var besta hugmynd sem
ég hef fengið lengi! Rúnta bara
um heiminn í hálft ár í staðinn
fyrir að takast á við vandamálin!
Kúl! Ætlarðu þá til New York?
Jabb! Í næstu viku vakna ég
svo við skerandi
umferðarhávaða!
Hvað ætlarðu svo að gera þarna?
Sama og heima! Snilldin er að
meira að segja bömmerinn
verður svalari þarna!
Það er auðvitað allt annað að
lifa innihaldslausu lífi í
Brooklyn en í Norðurmýri!
Orð!
við horfum sársaukafullt í augu hvors annars. mér er illt í
tungunni, þetta
svíður og brennur samt er þetta fyndið þegar ég sé þig við
hliðina á mér með
tunguna svona frosna við leikgrindina. ég sé að þér finnst
ég líka bjánaleg
og þú gerir tilraun til hlæja en þá koma tár í augun og
blóðdropar í
snjóinn.
það dimmir
við kreistum aftur augun og bítum tungurnar í tvennt
og þarna hanga þær ...
tvær ullandi tungur á leikgrind
rauður snjór
við hlaupum frjáls út í
buskann og snúum aldrei aftur til mannabyggða
því við vitum ekkert hvað við ættum að
segja þeim
Þorvaldur Þorsteinsson:
Maður gerir ekki svona ljóð nema hafa
eitthvað að segja. Eins og Kristín.
Kristján B. Jónasson:
Sadómasókískt viðbragð við miðstéttar-
ruglinu. Tær snilld.
Kolbrún Bergþórsdóttir:
Það er svo grimm og sársaukafull tilfinn-
ing í þessu ljóði að manni stendur hrein-
lega ekki á sama.
Þorvaldur Þorsteinsson:
Gullfalleg áminning um ónýtta möguleika
íslenskrar tungu.
Kristján B. Jónasson:
Undirfurðulegt ljóð og rosalega sterk
mynd sem situr í manni.
Kolbrún Bergþórsdóttir:
Það er frumleg hugsun í þessu skemmti-
lega ljóði sem ég get ekki annað en hrif-
ist verulega af.