Fréttablaðið - 17.04.2004, Blaðsíða 11
11LAUGARDAGUR 17. apríl 2004
Blóm á betra ver›i
Allt í garðinn
á einum stað
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
43
70
04
/2
00
4
Stórir pálma
r
260 lítrar
3.990 kr.
Moltutunnur
Gullpálmi
Aðeins 2.990 kr.
áður 5.990 kr.
Aloe
Vera
999 kr.
Orkideur
999 kr.
Sívinsælar
Græðandi
Sýpris 100 sm
999 kr.
Vorlaukaútsala
20-50% afsláttur
af öllum vorlaukum
SVEITARSTJÓRNARMÁL Sveitarstjórn
Bláskógabyggðar hefur óskað eft-
ir viðræðum við ríkið um hugsan-
leg skipti á fjallinu Skjaldbreiði
og jörðinni Kaldárhöfða í þeirri
von að það megi verða til þess að
auðveldara verði að koma til móts
við Bláskógabyggð varðandi
framtíðarvegarstæði Gjábakka-
vegar.
Tæki ríkið tilboðinu myndi það
þýða að Skjaldbreiður yrði hluti
þjóðgarðsins á Þingvöllum en
mörgum þykir eðlilegt að allur
fjallhringurinn á þessu svæði
verði innan þjóðgarðsmarka.
Þannig mætti kynna stærri og
glæsilegri þjóðgarð til heims-
minjaskrár Sameinuðu þjóðanna,
UNESCO, en hugmyndir stóðu til.
Innan Bláskógabyggðar hef-
ur verið barist gegn hugmynd-
um Þingvallanefndar um legu
Gjábakkavegar. Þingvallanefnd
vill tengja hann Þingvallavegi
við Miðfell en sveitarstjórn vill
tengingu á Þingvallavegi við
Gjábakka. Hefur það fallið í
grýttan jarðveg þar sem Gjá-
bakkaland er hluti af Þingvalla-
þjóðgarði eins og hann hefur
þegar verið kynntur UNESCO
og er talið að það sé umsókninni
ekki til framdráttar. ■
Bláskógabyggð býður ríkinu skipti á jörðum:
Skjaldbreiður í
stað Kaldárhöfða
SKJALDBREIÐUR
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar vill makaskipti á Skjaldbreiði og Kaldárhöfða.
fíkniefna og áfengis í bland og geti
verið í alls kyns ástandi. Hún segist
ekki þekkja einkenni naugunarlyfja
og eftirlit geti reynst erfitt.
Hins vegar sé reynt að aðstoða
fólk sem virðist hafa neytt of mikils
áfengis. Hún nefnir dæmi þar sem
hún fylgdi ungri stúlku sem virtist
ofurölvi á skrifstofu sína og sat með
henni í klukkustund þar til hún var
farin að jafna sig.
Haukur segir jafnframt að nú
þegar sé strangt eftirlit á Vegamót-
um með fíkniefnaneyslu. Hann seg-
ir að bætt hafi verið við tveimur
dyravörðum í kjölfar umræðunnar
um aukna fíkniefnaneyslu ungs
fólks á skemmtistöðum borgarinn-
ar. Fólki sé til að mynda ekki leyft
að fara á klósettið í pörum og starfs-
fólk sinni gæslu inni á staðnum
sjálfum, ekki bara við innganginn.
Á morgun verður rætt við um-
sjónarhjúkrunarfræðing neyðar-
móttöku nauðgana á Landspítala -
háskólasjúkrahúsi. Einnig verður
rætt við lækna um hvers vegna
ekki sé meira um að efna sé leitað í
blóð- eða þvagsýnum stúlkna sem
telja þetta hafa kom-
ið fyrir sig. ■
BÖRN Í GERVI VÍGAMANNA
Palestínskir drengir klæðast skæruliðabún-
ingi og bera leikfangabyssur í mótmæla-
göngu í Gaza-borg í gær. Mótmælaaðgerð-
irnar voru skipulagðar af Hamas-samtök-
unum.
SMJÖRSÝRA
Smjörsýra er ólöglegt efni sem einnig
gengur undir nafninu „liquid ecstacy“.
Smjörsýran er í vökvaformi, lyktarlaus
og bragðlaus þannig að fólk verður lyfs-
ins ekki vart sé því laumað í drykki.
Áhrif lyfsins eru mikil syfja, svimi og
jafnvel doði þar sem fólk horfir fram
fyrir sig og svarar engu en er samt með
meðvitund þannig að sá sem tekur það
inn verður viljalaus og hægt er að
stjórna viðkomandi eins og verkfæri.
Verkun lyfsins hefst innan fimmtán
mínútna frá því þess er neytt og vara
áhrifin í þrjár til sex klukkustundir.
Smjörsýra getur valdið ógleði og
uppköstum og skyndilegri svefnþörf.
Einnig getur fólk fundið fyrir líkamleg-
um óróa og fengið krampa eða jafnvel
flog. Lyfið getur einnig valdið ofkæl-
ingu og er því lífshættulegt ef stúlkur
missa meðvitund utandyra.
Lyfið er vöðvaslakandi, minnkar
blóðþrýsting og hægir á öndun. Það
getur valdið meðvitundarleysi og jafn-
vel dauða.
Ef lyfið er tekið samhliða neyslu
áfengis aukast áhrif lyfsins. Lyfið eykur
jafnframt löngun í kynlíf.
Lyfið er þekkt í Austur-Evrópu þar
sem þjófar lauma því í drykki fólks til
að ræna eigum þess.