Fréttablaðið - 17.04.2004, Blaðsíða 46
17. apríl 2004 LAUGARDAGUR
KVIKMYNDIR Lögreglan ákvað að
forvitnast nánar um ástandið á
leikkonunni Daryl Hannah eftir
að hún sýndi nokkrar kung fu-
stellingar á frumsýningu Kill
Bill: Vol 2. Leikkonan verður
nokkuð taugastrekkt þegar hún
mætir fjölda fjölmiðlamanna
eins og á frumsýningum og
ákvað því að fela sig á bak við
hlutverk sitt sem morðkvendið
Elle Driver í myndinni.
Daryl sagði blaði í
Hollywood að yfirleitt flýtti hún
sér bara inn í bíóin sem mest
hún má. Í þetta skiptið ákvað
hún að ganga inn sem Elle með
hennar harðsvíruðu afstöðu.
„Svo að ég var í kung fu upp á
bílnum mínum og sýndi fjöl-
miðlafólki fingurinn eða eitt-
hvað. Síðan þegar ég kom út úr
bíóinu aftur biðu mín fimm lög-
reglumenn sem vildu að ég blési
í blöðru,“ sagði Hannah. Lög-
reglumennirnir ræddu við hana
um stund áður en henni var
sleppt þar sem hún leit ekki út
fyrir að vera í annarlegu
ástandi. „Þeir virtust ekki skilja
að ég var bara að leika. Þetta
var rosalega skrýtið,“ sagði hún
að lokum. ■
SÖNGLEIKUR Í gær var það opin-
berað hverjir fara með öll hlut-
verk í Hárinu, sem sýnt verður í
Austurbæ í sumar. Eins og sést
hér á listanum er vel mannað í öll
helstu hlutverk sem og aukahlut-
verk.
Fyrir prufurnar var búið að
ráða í einhver hlutverk og svo
mættu 300 manns í prufurnar og
tók það nokkra daga að ákveða
hverjir þeirra myndu fylla upp í
þær eyður sem eftir voru.
„Þorvaldur Bjarni talaði um
að hann hafi aldrei þurft að velja
úr jafn miklum skara af hæfi-
leikafólki og í þessum prufum,“
segir Rúnar Freyr Gíslason, leik-
stjóri Hársins. „Það var þræl-
erfitt að velja úr og við biðum
endalaust með fólk á kantinum
sem við vildum hafa með en
fundum ekki pláss fyrir. Til þess
að fá hlutverkið þurfti fólk að
syngja vel, vera með flotta sviðs-
framkomu og geta spunnið lif-
andi og skemmtilegan dans.“
Rúnar segir allt aðra orku
vera í söngleikjum en öðrum
leikverkum og að hann hafi sér-
staklega reynt að finna fólk sem
byggi yfir þessari orku á nátt-
úrulegan hátt. Sjálfur ætti hann
að þekkja verkið vel því hann hóf
leiklistarferil sinn í uppfærslu
Flugfélagsins Lofts á Hárinu
fyrir 10 árum síðan.
Uppfærslu sinni lýsir hann
sem rússibanaferð sem stoppi
ekki fyrr en hún hefur náð há-
marki. „Til þess þarf öflugan hóp
með sérstaka orku. Fólk þarf að
vilja skemmta öðrum með því að
skemmta sjálfum sér á sviðinu.
Þetta verður hrátt, rokkað, sexí
og heitt. Eins og hippastemning-
in var fyrir rúmum þrjátíu árum
síðan.“
Hópurinn hittist í fyrsta skipt-
ið á blaðamannafundinum í Aust-
urbæ í gær og segist Rúnar hafa
fundið orkuna í húsinu. „Það fer
alveg skemmtilegur fiðringur
um magann að vera að fara djöfl-
ast í þessu með öllu þessu orku-
mikla fólki. Það er ofsaleg
stemning í hópnum. Þarna eru
nokkrir sem hafa ekki unnið í
leikhúsi áður og það er alltaf
gaman að fá svoleiðis fólk inn.
Það er alltaf opið, með jákvætt
viðmót,“ segir Rúnar að lokum.
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
leiðir svo hljómsveitina en hana
skipa Ólafur Hólm, Friðrik
Sturluson, Pálmi Sigurhjartar-
son og Vignir Snær Vigfússon. ■
LEIKARAHÓPUR HÁRSINS:
Björn Thors - Berger
Hilmir Snær Guðnason - Hud
Ilmur Kristjánsdóttir - Jeanie
Unnur Ösp Stefánsdóttir - Dionne
Selma Björnsdóttir - Sheila
Jóhannes Haukur Jóhannesson -
Claude
Guðjón Davíð Karlsson - Voffi
Á MEÐAL AUKALEIKARA ERU:
Sverrir Bergmann (Daysleeper)
Þorvaldur Davíð Kristjánsson (úr
söngleikjum Versló)
Helgi Rafn Ingvarsson (Idol-stjarna)
Ingibjörg Stefánsdóttir
Regína Ósk Óskarsdóttir
Leikarahópurinn
opinberaður
VIGNIR Í ÍRAFÁRI
Sér um gítarleik í sveit Þorvaldar Bjarna. Spilaði undir og hópurinn söng með.
SVERRIR BERGMANN
Kemur til með að syngja opnunarlag sýningarinnar, Að eilífu. Rúnar leikstjóri segir að hópurinn sé mjög spenntur fyrir að byrja æfingar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
G
U
N
N
AR
SS
O
N
Leikurinn tekinn alvarlega
DARYL HANNAH
Hún getur verið vígaleg í
kung fu-stellingum.