Tíminn - 18.03.1973, Side 28
28
TÍMINN
Sunnudagur 18. marz 1973.
Umsjón:
St. Pétursson
í dúr og moll
Eik, óli, Lárus, Ari, Michael, Haraldur, Steini og Gestur.
KERLINGABÆKUR herma, aö
eplin falli aldrei langt frá eikinni
(virðist þá vera gert ráð fyrir,
að epli vaxi á eikartrjám) — góð
epli eða vond, súr, sæt, skemmd
og kramin, þroskuö eða van-
þroskuö. Ef til vill afar gómsæt.
Sakmkv. sögnum af spekingum
og hugsuðum, i dag og í fortiðinni,
er mannsheilinn afar næmur fyrir
ytra umhverfi, glæsileika og
iburði eða hvers kyns óþarfa
hlutum. Þannig hafa hinir miklu
hugsuðir og listamenn gert sina
mestu hluti i einrúmi og eyðilegu
umhverfi, t.d. i litlu herbergi, þar
sem ekkert er að finna og sjá,
nema svo sem einn stólræfil, borð
og bekktetur. Ljósapera i loftinu
og helzt ópússaðir veggir. Liggj-
andi á baki gera menn sin stór-
virki i sliku umhverfi, starandi á
skituga ljósaperuna (ekki endi-
lega skituga), hugsandi um allt
og ekkert og eilifðina, — og þó
sérilagi viðfangsefnið. bað mæla
þvi ýmsir með þvi, að námsmenn
velji sér slfkt umhverfi til próf-
lesturs, ef þeir ætla sér að komast
yfir 2 i aðaleinkunn. Góðir hlutir
verða ekki til i mannfagnaði,
mannsöfnuði við truflandi
mannsaugu eða i glæsilegri skrif-
stofu með hvitt, þykkt gólfteppi.
Við slik skilyrði verða aðeins
vonir hlutir til, vondur texti, vond
tónlist.vond mynd o.s.frv. Þetta
sagði júðaprestur einn i útlegð i
Siberiu i viðtali við bráðfallega,
kinverska blaðakonu (frá The
Choumi-fai Post).
Við klöngrumst niður grófan
steypustigann i lifshættulegu
ástandi, göngum nokkur skref
lárétt og sviptum frá hverju
tjaldinu af öðru. Mig grunaði
strax, að nú værum við á leiðinni i
austurlenzkt musteri eða þá til
Ari syngur „tærasta kvensóló”
Michael er „forsöngvarinn,” hefur djúpa, mjúka rödd, en ekki tilþrifa-
mikla.
helvitis , það siðarnefnda grunaði
mig sterklega á leiðinni inn og
niður stigann. Siðasta tjaldið
fellur að baki okkar og við erum
komnir á leiðarenda. Við erum
komnir i frumskóg eikarinnar.
Þetta er fremur litill salur, á
stærð við millistéttarfjölskyldu-
stofu. Salurinn er ómúrhúðaður
með öllu.
A veggjum eru litrik spjöld
(eitt af Beethoven eða Bach og
annað af Lisu (hlj.v.), sýnist mér).
Á gólfinu eru ábreiður. Allt er
fullt af mögnurum, hátölurum,
mikrófónum og hljóðfærum.
Þarna eru iika einir sex ungir
menn. Eikin sjálf. Og við ætlum
að bragða á eplunum.
Ari er ekki kominn.Hann er vist
suðri Hafnarfirði. Hann á vinkonu
þar og unir þar löngum. Eftir
klukkutima kemur Ari. Ari er
dökkur negri, litill og mjóróma,
og með gleraugu. Hann er kátur
náungi.Michael, hinn negrinn, er
langur og grannur með yfirskegg
og bera bringu I hælaháum
rauðum skóm. Hann er ekki eins
dökkur og Ari og hann hefur dýpri
rödd. Ef lesendur skyldu ekki vita
það nú þegar, þá erum viðstödd á
æfingu hjá hljómsveitinni Eik,
sem telur fimm hljóðfæraleik-
ara og tvo negrasöngvara,
bandariska. Jú, biðið við (þetta er
alveg eins og i iþróttafréttunum i
hlj.v) þarna kom eitthvað hljóð.
Þeir eru að stilla hljóðfærin sin, —
og biða eftir Ara.
Af Eik: Gestur (gítar), Ólafur
(trommur) og Haraldur (bassi)
byrjuðu að spila saman fyrir um
það bil ári. Þeir spiluðu aldrei
opinberlega, en æfðu, „impróvl-
seruðu” og „djummsessuðu”
saman í kyrrþey. 1 september s.l.
bættist sá fjórði i hópinn, Steini
(gítar). Enn var æft um stund og
þá bættistsá 5. við, Lárus (flauta,
söngur). Kvintettinn hefur
nú æft samfleytt og af elju i um
tvo mánuði. Upphaflega stefndu
þeir félagar að þvi að halda út og
æfðu eingöngu þunga, frum-
samda tónlist. Þau áform eru
raunar að einhverju leyti við lýði
enn. En fyrir mánuði eða svo
komu fyrrnefndir negrar
hingað til lands og áttu þeir að
skemmta i einu veitingahúsi hér i
bæ. með söng. Eitthvert babb
kom I bátinn i sambandi við
hljómsveit hússins og fleira sem
ekki verður frekar rakið hér. Eik
komst i samband við negrastrák-
ana tvo, þann stóra og litla. Sam-
vinnan hófst.
Enn af Eik. Eik á nýrri braut !
Hún fór nú að æfa sérstakt pró-
gramm með A&M, sálartónlist og
þvi um lfkt. Jafnframt lét Eik af
þeirri virðingarverðu og ágætu
stefnu sinni (a.m.k. um skeið) að
spiTa eingöngu frumsamda tón-
list. Var nú farið að æfa eftir-
öpunar/tyggigúmmí tónlist með
tilliti til væntanlegra dansiballa.
Framhald á bls 39
MM /:4,
Allir I stuði og músíkin á fullu. Ari og Michael eru allgóð stoð fyrir hljómsveitina, en ekki meira. Eik
stendur alveg fyrir sinu. Timamyndir: Róbert.