Tíminn - 08.04.1973, Síða 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 8. april 1973.
Meistari
þeirra og
guð er
Manchester
United
Hvað er Manchester United? — hvað er Liverpool? — hvað er Tottenham?
— eða hvað er Cyrstal Palace?... Spurningar eins og þessar getur þú lagt
fyrir nær alla íslendinga, sem eru komnir til vits og ára, og hafa fylgzt með
þvi, sem er að gerast i heiminum undanfarin ár, og fengið rétt svar frá
þeim flestum ef ekki öllum. Fyrir þessa sömu getur þú lagt spurningu, sem
ætti að segja þeim öllu meir, eins og hvað er hæsta fjall á íslandi — hvar er
stærsti skógur landsins — hvað heitir vestasti jökull landsins -eða hvað hét
fyrsti íorsætisráðherra landsins?... og þú færð ekki rétt svar nema frá litl-
um hluta. Ilver er ástæðan og hvað er annars þetta Manchester United,
Tottenham eða hvað það nú heitir.. Svarið er... þetta eru nöfnin á enskum
knattspyrnuliðum — og ástæðan.. þau eru meir i fréttum og eru áhugaverð-
ari en fjöllin, skógar og flest annað okkur nærtækara i augum fjölda fólks
1 þessu er tsland ekki nein
undantekning frá öðrum þjóftum,
a.m.k. ekki nógrannaþjóóum
okkar. Þaft eru milljónir manna i
Evrópu og vióa annars staðar,
sem gleypa allt i sig, er varóar
enska knattspyrnu. Sumir lóta
sór nægja að fylgjast aðeins með
úrslitum úr leikjum, aðrir ba'ta
við sig nöfnum <1 leikmönnum og
fróðleik um liðin og enn aðrir eru
bókstaflega alætur þeir vita ekki
aðeins allt um leikmenn og liðin.
heldur geta þeir sagt þór úrslit úr
leikjum mörg ár aftur i timann og
vita jafnvel hvaða númer af skóm
einstaka leikmenn nota.
Milljónir manna og kvenna á
öllum aldri fylgjast með viður-
eignum þessara liða á hverjum
laugardegi, frá þvi snemma á
haustin og langt fram á sumar.
Annað hvort með þvi að vera á
staðnum öskra þar og æpa eða
sitja heima i stofu og sjá viöur-
eignina á sjónvarpsskerminum.
Við Islendingar erum i siöari
hópnum. Enska knattspyrnan i
islenzka sjónvarpinu er trúlega
eitt vinsælasta efnið sem þar er
sýnt, og þaö er ótrúlegasta fólk,
sem lætur sig ekki vanta fyrir
framan sjónvarpið á sunnudags-
kvöldum klukkan sjö. Sagt er að
ef fundur i einhverjum félagsskap
stendur yfir þegar klukkan er að
verða sjö, hverfi stærsti hluti
fundarmanna á brott. Þess munu
jaínvel dæmi að á kvenfélags-
Farangur þeirra i hverri ferð er bjór, vin og vindlingar.
fundi i þorpi úti á landi, hafi fundi
verið slitið i snarhasti og honum
siðan framhaldið siðar um kvöld-
ið, til þess að konurnar gætu
fylgzt með leiknum i sjónvarpinu.
Ekki má gleyma aðalástæðunni
fyrir áhuga fólksins, en það eru
getraunirnar, sem þúsundir tak’a
þátt i hér á landi. Þá er hlutverk
blaðanna ekki minna. Þau segja
frá leikjum og öðru i sambandi
við ensku knattspyrnuna undir
risafyrirsögnum, og hvaða póli-
tikus sem væri, gæti verið ánægð-
ur með að fá eins mikið rúm undir
greinar sinar og ummæli um
sjálfan sig, og sumir ensku knatt-
spyrnumennirnir fá....Allt þetta
er lesið og jafnvel lært utanbókar,
og þeir sem telja sig ekki fá nægi-
lega mikið með þvi, kaupa ensk
knattspyrnublöð, sem fást orðið i
öllum bókabúðum og seljast
næstum eins vel og Hjemmet eða
önnur álika — „metsölustöð”.
Eita guðinn sinn á ónýtum
járnbrautarvögnum um
allt England.
En það er einn hlutur i sam-
bandi við þetta allt, sem við hér
heima sjáum ekki og heyrum ekki
talað um nema litillega. Við heyr-
um að visu i þvi óminn þegar við
opnum fyrir sjónvarpið á sunnu-
dagskvöldum klukkan sjö, og
stundum verður þessi ómur að
öskrum i eyrum okkar. Þegar við
slökkvum á tækinu er þetta
gleymt. En þá stendur yfir hinn
virkilegi bardagi á leikvanginum,
og hann hefur jafnvel staðið yfir i
margar klukkustundir. Þetta eru
hinir tryggu stuðningsmenn lið-
anna, eða „The Supporters” eins
og Englendingar kalla þá einu
nafni.
Hvert félagslið á Englandi á
sina stuðningsmenn. Þeir koma á
alla heimaleiki liðsins og stór
hópur þeirra eltir liðiö hvert á
land sem er, jafnvel heimshorn-
anna á milli, eins og við höfum
orðið vitni að hér. Um 80 manns
elti Tottenham er það lék við IBK
á Laugardalsvellinum sl. sumar.
Sum þessara liða eiga tiltölulega
friðsama fylgjendur en önnur
slika, að lögregluliö heillar borg-
ar fer að skjálfa er þaö veit að
nú er von á þeim i heimsókn. 1
þeim hópi eru framarlega i flokki
þeir sem fylgja eftir einu þekkt-
asta og vinsælasta liði Eng-
lands...Manchester United. Tveir
sænskir blaðamenn og ljós-
myndari fylgdust með hópnum á
útileik á milli Chrystal Palace og
Manchester United. Voru þeir
með frá þvi að hann fór að undir-
búa brottförina og þar til að kom-
ið var heim aftur til Manchester
frá London. Þetta var ferðalag
Þeir láta tattövera sig m\ndii og annaö er varðar guð þeirra —