Tíminn - 08.04.1973, Blaðsíða 16

Tíminn - 08.04.1973, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Sunnudagur 8. april 1973. Svona konur fást ekki fyrir minna en 40 þúsund krónur, og þykir samt ódýrt. Kristján Fr. GuOmundsson lýsir fyrir mönnum ágæti myndarinnar og hvetur til hærri boöa. Timamynd: Gunnar. Kjarval er nú alltaf Kjarval. Timamynd: Gunnar „NOG AF RIKUM LIST- UNNENDUM, EN ÞEIR SITJA BARA HEIMA f f þvi, a6 áöurnefnd verk heföu ekki selzt, svaraöi hann þvi til, aö sér væri þaö algjörlega óskiljanlegt. „Myndirnar eru algjört fágæti og veröin var m jög i hóf stillt. Mér er næst að halda, að einhverjir eigi eftir að naga sig i handabökin yfir þvi aö hafa misst af miklum ger- semum. Svona verk eru ekki á hverjum degi á frjálsum mark- aöi.” Uppboðsgestir virðast hafa metiö aðrar myndir meira, þvi nú tók myndaverðið aö stiga fyrir al- vöru, og tuttugu og fimm þúsund geröust smápeningar einir. Myndir eftir Eyjólf J. Eyfells og Snorra Arinbjarnar fóru á milli 30 og 40 þúsund, verk eftir Þorvald Skúlason og Svavar Guönason klifu vel yfir 40 þúsund króna markiö, en meistari Kjarval sló þó öllum viö, þvi oliumálverk hans, Frá Dyrfjöllum, var slegiö Friöfinni Kristjánssyni á 77 þús- und krónur. Alls munu myndir hafa selzt fyrir 750.000.00 kr. á uppboðinu, og er þá ótalinn 13% söluskattur, sem kaupendur myndanna veröa aö greiöa ofan á kaupveröið. Þegar uppboðinu var lokið, sagðist Kristján vera mjög óánægður meö aðsóknina aö upp- boðinu. „Hér voru þrjú hundruö góðir listunnendur, en þeir þyrftu a.m.k. að vera helmingi fleiri, helzt vildi ég bjóða upp fyrir tiu þúsund manns. Ég veit um fjöld- ann allan af listunnendum, sem eru vel stæðir, en sitja heima, þegar uppboð eins og þetta fara fram, og missa þar af kjörnum tækifærum til að eignast gersem- ar þær, sem hér eru boðnar upp.” —GJ. KRISTJAN Fr. Guðmundsson hélt málverkauppboö i súlnasal HótelSögu s.l. miövikudag ki. 17. A söluskránni voru aö þessu sinni sextiu og niu verk, bæöi gömul og ný. Þar á meðal voru tiu verk eft- ir Kjarval, mest tússmyndir, en einnig ein vatnsiitamynd og eitt oliumálverk. Nákvæmlega klukkan fimm hófst uppboðiö með þvi að Kristján Fr. Guðmundsson lýsti uppboðsskilmálum fyrir þeim u.þ.b. þrjúhundruð uppboðsgest- um, sem mættir voru. Boðin voru róleg i fyrstu, menn bættu hundraökalli við tilboð náungans, án þess að um verulega keppni væri að ræða, enda verk stærstu spámannanna aftarlega i númeraröðinni. Þó fóru einstaka myndir yfir tiu þúsund krónur, m.a. þrykkmynd eftir Jón Engil- berts, vatnslitamynd eftir Gunn- laug Scheving og tvö málverk eft- ir Veturliöa Gunnarsson og eitt eftir Pétur Friðrik. Athygli vakti, að tvær myndir, önnur eftir Bene- dikt Gröndal, en hin eftir Sigurð Guðmundsson, málara, seldust ekki, þar sem enginn fékkst til að bjóða lágmarksveröið, sem sett var, en það var i fyrra tilfellinu kr. 10.000-, en i þvi siðara kr. 25.000-. Þegar við spurðum Kristján, hver ástæðan væri fyrir Hluti gesta á málverkauppboöi Kristjáns Fr. Guömundssonar. Veriö er aö sýna mynd Eyjólfs J. Eyfells, Úr Þórsmörk. Timamynd Gunnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.