Tíminn - 08.04.1973, Blaðsíða 34

Tíminn - 08.04.1973, Blaðsíða 34
34 TÍMINN Sunnudagur 8. april 1973. „Mér fannst hann rétta hönd í átt til mín" ,,ÉG VAR oftast mjög heilsu- litil, þegar ég var barn,” skrifar vestfirzk kona, Guörún Jónsdóttir. ,,Ég vissi, aö foreldrar minir og allir í fjöl- skyldu okkar búöu til guös fyrir mér, en ég var fremur beisk i lund og gaf þvi þá Htinn gaum.” Þetta segir hún til skýringar á atviki, sem fyrir hana bar, og hafði á hana varanleg áhrif. Það gerðist sem sé, að henni fannst Kristur koma til sin I draumi, og varð það upphaf margvislegra drauma annarra, sem hún telur hafa orðið sér til mikillar hugar- styrkingar. Guðrún Jónsdóttir heldur áfram: „Þegar ég var um það bil tiu ára, dreymdi mig, að ég kom upp á baðstofuloftið hjá ná- grannafólki okkar. Þóttist ég þá sjá frelsarann, Jesúm Krist sitja þar. Hjá honum stóðu nokkur börn, og þóttist ég vita, að hann ætlaði að blessa þau. Þá þótti mer hann horfa á mig. Andlitið var al- varlegt, en svipurinn ósegjan- lega mildur. Ég þóttist færa mig nær, þó aðeins til hliðar, og þá fannst mér hann rétta höndina i átt til min eins og til að styðja mig. Mikill hátiðleiki fannst mér yfir öllu á þessu augnabliki, og sterk öryggis- kennd kom yfir mig. Draumurinn var ekki lengri en þetta. En hann hefur varað mér I minni æ siðan og orðið mér til mikillar blessunar. Óteljandi held ég séu orðnir þeir draumar minir, sem sið- anhafa bent mér á, að i heimi ljóssins er vakaö yfir okkur, og að guð „vantar aldrei vegi, hann vantar aldrei mátt” til þess að senda okkur hjálp og likn. Ég er sannfærð um, að hvert bænarandvarp er á himninum heyrt, jafnvel þótt það sé án orða og stigi frá brjósti manns I hinni hvers- dagslegu önn, i smáu jafnt sem stóru, sé bæninni beint til hins almáttuga guðs, sem er kærleikur. Og frelsarinn er hinn sami nú og þegar hann sagði hér á jörð: „Engan, sem til min kemur, mun ég burt reka.” Heimur ljóssins er svona dásamlega nærri okkur. Gefi það guð, að allir mættu finna það öryggi sem fylgir þvi að lifa lifinu i trúnni á föður ljósanna.” Með þessum orðum lýkur bréfi Guðrúnar Jónsdóttur á Birnustöðum. © Fjöldamorð Svo farið sé nákvæmlega i hlutina, var það i „Café de Paris” sem Charuk komst á fyrstu sporin. „Café de Paris” var dæmigerður thaienzkur bar, þar sem menn gátu gengið inn og „húkkað” sér kvenmann, ef þeir óskuðu þess ( þar til nýlega, að barnum var lokað) Óttaðist hvita þræla- verzlun. Það var barþjónustan Sathinee, sem gaf Sharuk hinar dýrmætu upplýsingar. Hún hafði þann starfa að vera lagskona karl- manna fyrir um 1500 kr. (isl.) á klukkutima. Hún skýrði frá þvi, aðeinn af viðskiptavinum hennar hefði beðið hana um mög svo sér- stakan greiða tveim vikum áður en flugslysið varð. Henni voru boðnar um 100 þúsund krónur, ef hún vildi taka að sér að ferðast með sjö ára gamalli dóttur „kúnnans” til Hong Kong. Hún átti aðeins að vera ferðafélagi stúlkurnar, en snúa siðan sjálf rakleiðis aftur til Bangkok. En Sathinee hafði svarað þvi til, að það kæmi ekki til greina, þar sem viðskiptavinurinn vildi ekki einu sinni borga henni helminginn fyrirfram. Hana grunaði einnig, að ekkert yrði af borgun yfirleitt. Og auk þess hafði vinkona hennar ein varað hana við hvitri þrælaverzlun. Henni fannst þetta augljós leið til að lokka hana á hóruhús i Hong Kong. Iliu 23 ára gamla Sathinee skýrði einnig frá nafni „kúnnans”, og þaö var Somchai lögregluþjónn. Þar með lá allt máliö Ijóst fyrir Charuk lögregluforingja. En hann haföi enn scm komið var ekki nægar sannanir til þess aö af handtöku gæti oröið. Leynileg rannsókn um lög- regluþjóninn Somachai leiddi eftirfarandi i ljós: Hinn þritugi Somachai var sonur virts lögfræðings i Bangkok. Hann hafði verið við nám á Filipps- eyjum, og að loknu námi gekk hann i thailenzku lögregluna, sem byggingaverkfræðingur. Hann hafði verið giftur stúlku frá Filippseyjum, er hét Alice. Og með henni átti hann dótturina 7 ára er fórst i flugslysinu. En hjónaband Somchai og Alice hafði leystst upp, skömmu eftir að telpan fæddist. Dóttirin, Sonthaya, ólst upp hjá móður sinni og hafði litið samband við föðurinn. Um það bil tveim árum áður en slysið varð, hafði Somchai sagt skilið við byggingadeildina og fariðyfir i flugdeild lögreglunnar. Þar hafði hann liðsforingjagráðu. Félagar hans lýstu honum sem gamansömum náunga,er heldi sig mest út af fyrir sig. Hann gumaði af þvi að vera liðsforingi og titt skeði það, að hann tók mellu með sér inn á lögreglustöðina á næturnar, en það var strangiega bannað. Sochai hlaut þjálfun sem flug- maður á litlum flugvélum i búð- um I suðurhluta Thailands. Og skömmu siðar var hann settur i fluglögregludeildina I Bangkok. Þar i borg hitti hann fyrrnefnda Sathinee, og þegar sá kunnings- skapur leiddi ekki til neins árangurs fann hann sér brátt nytt fórnarlamb, sem féll inn i hinar grimmilegu áætlanir. Hann komst sem sé i kynni við n m ti K K 1fi KSFOEYKK þjónusta - sala - hleðsla - viðgerðir I I Alhliða rafgeymaviðgerðir og hleðsla Notum eingöngu og seijum járninnihaldslaust kemiskt hreinsað rafgeymavatn Næg bílastæði — Fljót og örugg þjónusta Tækniuer AFREIDSLA Laugavegi 168 Simi 33-1-55 RÆSIÐ BÍLINN MEÐI SÖNNAK \ þjónustustúlku að nafni Somwang i veitingahúsi I grennd við Hotel Siam Inter Continental. Hún var af þvi tagi, sem maður kallar gjarna „saklausa stúlku ofan úr sveit” og var ekki með þvilikar „imyndanir” og Sathinee. Somchai bauð súlk- unni að flytja heim til sin, og sak- laus stúlkan varð brátt ástfangin af liðsforingjanum. Eftir nokkurn tima bað Somchai hana um að gera sér vinargreiða. Og sak- lausa stúlkan hún Somwang flaug beint i dauðann (i eiginlegri merkingu) ásamt dóttur Somchais, Somthaya. Fórnarlömbin voru tryggð upp á 30 milljónir króna. Brátt fundust fleiri sannanir er studdu „gruninn” um sekt Somchais. Þegar rannsakaðar voru tryggingar farþeganna, sem fórustmeð flugvélinni kom i ljós, að þjonustustúlkan Somwang var liftryggð upp á 1 milljón „bath” (um 5,5 milljónir isl. króna) og hin sjö ára gamla Sonthaya var liftryggð upp á 300 þúsund „batn” (um 1,6 milljónir) í báðum til- vikum var tekið fram á tryggingarskirteinunum, að upp- hæðirnar skyldu borgaðar herra Somchai Chaiyasut, ef slys yrði. Auk þessa hafði Somchai tekið sérstaka flugtryggingu fyrir þær báðar, áður en flugvélin fór frá Bangkok. Og á þessum sama tima var Somchai I miklum fjár- hagsörðugleikum. Eftir slysið fékk hann greiddar a.m.k. 5,5 milljón „bath” eða rúmar 30 milljónir islenzkra króna. Við yfirheyrslu tveggja starfs- stúlkna á vegum flugfélagsins „Cathay Pacific Airways” kom fleira I ljós, er stuðlaði að þvi að fullkomna „púsluspil” Charuks lögregluforingja. Stúlkurnar kváðust muna eftir manni I lög- reglubúningi, er hefði fylgt Somwang og sjö ára telpunni að afgreiðsluborðinu, þegar þær sóttu farmiðana til Hong Kong. Somwang haft gefið upp farangurinn, tvær ferðatöskur, önnur 12 kiló að þyngd og hin 6 kiló. Lögreglumaðurinn hafði haldið á snyrtitösku af gerðinni „Jacob”. Stúlkurnar kváðust muna glöggt eftir þessu, þar sem hann hefði orðið skritinn á svip, þegar þær vildu skoða i töskuna, og sagt: „Það eru bara snyrti- vörur konunnar minnar I þessari tösku”. Charuk lögregluforingi og hans fólk fundu brátt fleiri sannanir: verzlunina, þar sem Somchai hafði keypt snyrtitöskuna, verk- stæði, þar sem Somchai hafði verið með töskuna. Samkvæmt heimildum hafði hann borað á hana tvö göt, flugvélavirki skýrði frá þvi, að Somchai hefði fengið lánaða hjá honum handbók um Convair 88 —flug- vélar og hafði hann sagt, að hann þyrfti á henni að halda vegna starfs sins, annar flugvélvirki skýrði frá þvi, að Somchai hefði rættviðhann um „veiku punkta” Convair-flugvélanna við hann. Þannig gekk hann i gildruna 1 hvaða máli ööru, sem væri, hefði sökudólgurinn fyrir iöngu verið handtekinn, upplýsti yfir- m-r'öur CSÐ, Wichian Sangkaeo heishöfðingi. En þetta mál hafði rérstöðu. Slysið hafði orðið utan landamæra Thailands, og það liösforingi i lögreglunni, sem stóð á bak við fjöldamorðin. Sá seki gekk þvi enn laus, en CSD — mennirn r sáu um, að hann hefði engau möguleika til flóttaúrlandi.Ogeinnig varm.a. séð um, að hann kæmi ekki nálægtTlugi framar. Að lokum útbjó Charuk lög- regluforingi gildru. Hann lét halda þjónustustúlkunni Sathinee undir stöðugri lögregluvernd og lét það siast út, þannig að hann var öruggur um, að Somchai frétti af þvi, að lögreglan hefði komizt að þvi, að sprengjunni hefði verið komið fyrir i snyrti- tösku. Og nú beið Charuk bara eftir þvi, að Somchai gengi i gildruna. Það leið ekki langur timi. Somchai keypti aftur snyrtitösku, auðsjáanlega I þeim tilgangi að geta haldið þvi fram, að hann hefði aldrei sent slíka tösku með stúlkunum I flugvélinni. Töskukaupin voru það siðasta, er Somchai gerði sem frjáls maður. Skömmu siðar brutust CSD-menn inn I Ibúð hans og handtóku hann. Við húsleit fannst nýja taskan. Einnig höfðu verið boruð tvö göt á hana, en I þetta sinn hafði Somchai sjálfur gert það. Somchai neitaði öllu, og sagði, að hann hefði sett þessi göt á i þeim tilgangi, að festa siðar ferðaútvarpstæki i töskuna. Og til blaðaljósmy ndaranna, sem hópuðust um hann, er farið var með hann I fangelsið, hrópaði hann örvæntingarfullur: „Þið verðið að trúa mér! Það getur enginn myrt sina eigin dóttur!” En Charuk var fyllilega reiðu- búinn að flytja málið fyrir rétti með þær sannanir, sem hann hafði komizt yfir. Auk annars vissi hann vel, hvernig tima- sprengjan hafði verið útbúin og hvar Somchai hafði komizt yfir sprengiefnið. Tímasprengjan innihélt um fjögur pund af plastsprengiefninu C 4. Somchai hafði komizt yfir það, sem hann þarfnaðist við sprengjugerðina er hann var i Hua Hin. Það eru þjálfunarbúðir, þar sem thailenzka lögreglan er m.a. þjálfuð til baráttu gegn skæruliðum. Sprakk sprengjan of snemma? Ekki er ljóst, hvort Somchai hafi einnig kynnt sér gerð gang- verks I timasprengjum. Alla vega fór engin slík kennsla fram i búðunum I Hua Hin. En hitt gátu menn fullyrt, að ef sprengjan i snyrtitöskunni hefði sprungið stundarfjórðungi seinna, hefði sérfræðingunum aldrei tekizt að komast fyrir orsakir slyssins. Þá hefði flugvélin nefnilega hrapað niður I suðurhluta Klnahafs. Mögulegt er, að Somchai hafi því ætlað sprengjunni að springa nokkru seinna, en raun varð á. Somchai hefur setið I fangelsi, siðan hann var handtekinn. Situr hann I eins manns klefa I höfuð- stöðvun lögreglunnar I Bangkok. Honum eru bönnuð öll bréfaskipti og heimsóknir til hans eru og bannaðar. Ekki hefur hann heldur fengið verjanda, þar sem enn er ekki ljóst, hvort málið fer fyrir borgaralegan dómstól og herrétt. t 'slðara tilfellinu fá menn ekki að hafa verjanda. Engu að slður þykjast menn geta spáð fyrir um úrslit málsins með nokkurri vissu. t Thailandi „Landi brossins” hljóta menn dauðadóma fyrir minni glæpi. Og ef af dauðadómi verður, getur öll thailenzka þjóðin fylgzt með af- tökunni I sjónvarpinu. Aftakan hsfur verið hugsuð á þann veg,.að óhætt sé að sýna hana i sjónv. Sá dæmdi verður leiddur inn I tjald og bundipn upp að einum tjaldveggnum með bindi fyrir augunum. Utan á tjaldvegginn á móts við hjarta hans verður af- markaður hringur, svo að af- tökusveitin þarf ekki annað en að miða á biettinn og hleypa af sam mest hún má. —þýtt/endursagt — Stp) Hjólbarða- sólun Sala r a sóluðum hjólbörðum BARÐINN, rmula 7 • Reykjavík • Sími 3050 Verkstæðið opið alla daga kl. 7,30-22,00 nema sunnudaga Snjómunstur fyrir 1000X20 1100X20 Auglýsing varðandi pólskan Fiat ó íslondi Samkvæmt samkomulagi, sem gert hefur verið milli POLMOT, Varsjá, og Fíat, Torino, um að setja á eina hendi sölu allra Fiat-- bifreiða, hefur verið ákveðið að einkaumboð pólska Fiat færist til Daviðs Sigurðssonar hf., frá 1. april 1973 að telja. Skuldbindingar þær, sem Þ. Jónsson og Co, hefur gengizt undir vegna ábyrgða á þeim bilum, sem þeir hafa selt, eru i gildi þar til þær renna út. Þ. Jónsson & Co., Davið Sigurðsson HF, POLMOT, Varsjá.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.