Tíminn - 08.04.1973, Blaðsíða 32

Tíminn - 08.04.1973, Blaðsíða 32
32 TÍMINN Sunnudagur 8. april 1973. Liza Miivnelli i „Cabaret” Beztu aðalhlutverk: MARLON BRANDO 09 LIZA MINNELLI HIN ÁRLEGA Óskarsverð- launaafhending fór fram í fyrrinótt (á miðvikudags- nótt/ 28. marz). úrslitin komu ekki svo mjög á óvart. óskarinn fyrir bezta kvenhlutverkið hlaut Liza Minelli fyrir ieik sinn f myndinni ,/Cabaret". Marlon Brando fékk verð- launin fyrir bezta karl- mannshlutverkið, í Guð- faðirinn að sjálfsögðu. Guðfaðirinn var og kjörinn bezta myndin. Alls sópaði Cabarct að sér 8 Óskarsverölaunum. Auk Lizu Minellihlaut Bob Kosseverðlaun- in fyrir beztu leikstjórn og Jocl (ircy fyrir bezta aukahlutverk karla. Hin fimm verðlaunin, sem Cabaret hlaut voru fyrir: klipp- ingu, hljóðsetningu, tónlist, kvik- myndun og hönnun. Verðlaunin fyrir bezta aukahlutverk kvenna féllu i hlut Kileen Heckart i myndinni Butterflies are free. Guðfaðirinn (The Godfather) hlaut alls þrenn verðlaun. Aður er minnzt á Marlon Braneo fyrir bezta karlhlutverkið og myndina sjálfa, sem beztu mynd ársins. En þriðju verölaunin hlaut mynd- in fyrir bezta kvikmyndahandrit- ið.unnið upp úr skáldsögu Mario Pu/.o, en hún bar sama heiti og myndin. Bezta erlcnda myndinvar kjör- in Le Charmc discret des bour- goisies, sem gerð er af spænska snilldarleikstjóranum Luis Bunuel. Bezta kvikmyndalagið var kjörið ,,The morning after” ur myndinni The Poseidon Ad- venture. Bretinn Anthony Powells hlaut Óskarinn fyrir bezta búninga- „CABARET" FÉKK VERÐLAUN hönnun, i myndinni Travels with iny Aunt. Myndin Marjoe var kjörin bezta heimildarmyndin. Auk þessa fengu svo þau Kosalind Hussel, Edward G. Robinson og Charlie Chaplinsérstök verðlaun, Chaplin fyrir myndina Sviðsljós, sem gerð var fyrir einum 20 árum og var fyrst sýnd i Bandarikjun- um i fyrra. Þess gleymdist að geta áöan, að leikstjóri Godfather var Francis Ford Coppola. Kynnir á óskarsverðlaunaaf- hendingunni var hinn kunni leik- ari Charlton Heston, en Clint Eastwood hljóp þó i skarðið fyrir hann til að byrja með, þar sem Heston varö fyrir töfum. Marlon Brando mætti ekki við afhendinguna, en sendi i sinn stað unga Indiánastúlku. Kom hún með orðsendingu frá honum, er sagði, að með þessu væri hann að mótmæla meðferð Bandarikja- manna á Indiánum, sem hann sagði, að kvikmyndaiðnaðurinn hefði átt sinn þátt i. Einnig fylgdi með sú frétt, að Marlon hefði ver- ið á leið til „Wounded Knee” (þar sem Indiánaóeirðir hafa átt sér stað að undanförnu), er verð- launaafhendingin fór fram. Liv Ullmannátti að afhenda Brando verðlaunin. Hin 27 ára gamla Liza Minelli „Life is a cabaret, old chum. Come to the Cabaret....” Af hinum mikla sáttafundi Mafiuleiötoga U.S.A. Guðfaðirinn faðmar einn aðalkeppinaut sinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.