Tíminn - 08.04.1973, Side 3
Sunnudagur 8. april 1973.
TÍMINN
3
sem vert var að skrifa um sögðu
þeir báðir og þeir skrifuðu m.a.:
Það fyrsta sem við heyrðum á
járnbrautarstöðinni var þetta. —
Sumir eru múhameðstrúar aðrir
eru kristnir — en við erum
Manchester United! — það er
okkar trú! Aðeins þetta, og þetta
sagði okkur nær allt, en þó skild-
um við ekki tilganginn. En hvern-
ig á annars að útskýra framkomu
hundruð manna og kvenna á nær
öllum aldri, þó flestir séu þó á
milli 15 og 25 ára, sem með sér-
stökum járnbrautarlestum eltir
liðið sitt um allt England, þvi er
ekki stjórnað af neinum og hefur
ekki með sér neinn félagsskap.
Útgjöldin eru oft æði mikil en þau
koma samt ekki i veg fyrir að far-
ið sé aftur og aftur i ferðalög á
eftir meistara sinum og al-
máttugi — Manchester United.
Lögreglan fylgir hópnum
eftir hvert sem hann fer
Brezku járnbrautirnar vita
hvað er að gerast þegar United á
útileik og þær hugsa um sitt eins
og aðrir. Vagnarnir sem eru
sendir til að flytja fólkið frá
Manchester til London eru úr
flokki hinna mest útslitnu og
verst meðförnu i öllu Englandi.
Jafnvel I Afriku væru þeir taldir
rusl. En United trúflokkurinn læt-
ur það ekki aftra sér frá ferðinni.
Okkur var tjáð að það sé ekki
ráðlegt að fara með „United
aukalestinni” það sé nær að fara
með almenningslestinni ef við
viljum halda lifi og heilsu. En
þegar við stöndum fastir á þvi að
fara með þessari lest, fáum við
eina ráðleggingu i veganesti.
Tönglist á þessari setningu alla
leiðina „United is great”, þá má
vera að þið sleppið lifandi.
Við fórum að kaupa farseðlana
á föstudagakvöldið fyrir leikinn.
Klukkan var yfir ellefu, en samt
voru á járnbrautastöðinni tugir
unglinga, sem allir báru liti
félagsins, rautt og hvitt. Annað,
sem þeir áttu sameiginlegt var að
þeir voru flestir að betla fyrir far-
seðlinum, sem kostaði um 3 ster-
lingspund fram og til baka. Þegar
við töluðum við þá, kom i ljóst að
þeir voru flestir úr úthverfum
Manchester og höfðu margir farið
að heiman snemma um daginn til
að geta betlað fyrir farinu i ró og
næði.
Hvað segja foreldrar þinir við
þessu? spurðum við einn 14 ára
pilt. Ekkert, þetta er jú fyrir
Manchester United! var eina
svarið sem við fengum.
Ferðin hófst klukkan tiu
morguninn eftir. Við mættum
timalega, en þegar við komum á
stöðina voru þar samt fyrir
hundruð ungmenna og heil her-
deild af lögregluþjónum, sem
unnu kappsamlega að þvi að leita
á hverjum þeim, sem ætlaði i
lestina.
Þegar allir voru komnir um
borð, stigu á milli 15 og 20 lög-
regluþjónar upp i vagnana, sem
voru 10 talsins, og tóku sér sæti
meðal farþeganna eða stóðu og
fylgdust vel með öllu sem fram
fór. Augu þeirra hvildu mest á
þeim yngri, en skiptu sér minna
af þeim eldri, sem voru nokkuð út
af fyrir sig. Það var hópur þeirra
sem átti aura og sást það bezt á
þvi óhemju magni ai' bjór og vini,
sem þeir höfðu með sér, og byrj-
uðu þegar að belgja i sig.
A tilsetttum tima hófu hjól
lestarvagnanna að snúast með
hávaða miklum. Samstundis
kvað við úr barka hinna fjöl-
mörgu farþega „JOOO-NAAJ-
TIIIID ” — -
JOOO—NAAJ—TIIIID”. Þegar
kuldahrollinn, sem leggur eftir
bökum okkar við þessi hroðalegu
en þó taktföstu öskur, hefur runn-
iðalla leið niður i tær, skiljum við
hvað um er að vera. Trúflokkur-
inn er að ákalla guö sinn Man-
chester United.
Þau eru tilbúin að deyja
fyrir hugsjón sína
Á leiðinni er drukkið og sungið,
sungið og drukkið og aftur sungið
og drukkið. Sumir taka upp spil,
aðrir fara að tala um leikinn eða
einstaka leikmenn. En þeir sem
tala, tala ekkert um annað en það
sem viðkemur Manchester Unit-
ed.
Við sláum okkur niður hjá ein-
um lögregluþjónanna og spyrjum
hann, hvers vegna hann hafi leit-
að á farþegunum og hvað hann
hafi fundið. Hann brosir og segir:
Að vopnum. Og hann bætir við. I
þetta sinn tókum við aðeins 15
hnifa, nokkra rörbúta, yfir 30
greiður með sérstökum oddum,
sem hafa verið slipaðir til, nokkra
metra af keðjum, smávegis af
hnúajárnum og um 50 stálkúlur,
sem þeir nota til að kasta i leik-
menn úr hópi andstæðinganna.
Eftir þessa upptalningu hættir
hann að brosa og segir. Við ger-
um þetta fyrir þau. Þegar United
leikur gilda engin lög lengur i
þeirra augum. Þau eru tilbúin að
deyja fyrir félagið og svifast
einskis ef einhver mælir eða gerir
eitthvað gegn þvi. Þess vegna
tökum við frá þeim allt sem getur
verið hættulegt i höndunum á
þeim. En um næstu helgi hafa þau
keypt sér eða útbúið nýja hnifa,
járnbúta, hnúarjárn eða stálkúl-
ur. Við eigum orðið safn, sem
gæti sómt sér vel i hvaða striði
sem væri, sem við höfum tekið af
þeim. Og þannig mun það vera
um flestar aðrar lögreglustöðvar
á Englandi.
Við tökum einn úr hópnum tali.
Hann hefur þegar lokið við góðan
skammt úr vodkaflösku og er
bæði óstöðugur á fótunum og ekki
sem bezt stöðugur i tali. Við
spyrjum hann hvort hann hafi lát-
ið sér detta i hug að skipta um
„trú”. Hann starir á okkur i
fyrstu, og við þorum ekki annað
en að þylja „United is great”.
Tony, kallar hann. Tony! — Inn
kemur stór og mikill rumur. Þeir
tala saman og sá fyrri bendir á
okkur. Rumurinn fer úr jakkan-
um og skyrtunni, og ný lýst okkur
ekki á blikuna.
En hann gerir ekkert, sýnir
okkur aðeins handleggina á sér,
sem allir eru úttattóveraðir.
Myndirnar eiga það allar sam-
eiginlegt, að vera tengdar United.
Skiljið þið nú af hverju viö yfir-
gefum aldrei United, s§gir hann.
Við erum United og United er við.
Siðan rekur hann upp striðsöskrið
mikla og nú eru enn hærra en áð-
ur og allir taka undir
...„JOOOOO—NAAAAJ—I-
IIIIIID”.
16 fluttir á sjúkrahús— og
það þykir lítið
Lestin kemur til Victoria Stadi-
on og þaðan á að halda með ann-
arri lest til Selhurst Park, leikvöll
Chrystal Palace. Á brautarstöð-
inni er heil móttökusveit. Lög-
regluþjónar með kylfur á lofti og
þeir nota þær óspart til að koma
hópnum á réttan stað. Með bar-
smiðum og látum er hópnum
haldið i skefjum og honum komið
i rétta lest. Sumir hafa fengið
slæm högg, en þeir láta það ekki á
sig fá, bölva bara þessum lög-
regluþjónum i London og siðan
öllu er viðkemur Chrystal Palace.
Frá brautarstöðinni i Selhurst
og til Selhurst Park eru fiOO metr-
ar. A leiðinni er bjórstofa og
þangáð inn fer stór hluti af hópn-
um. Kráareigandinn fórnar hönd-
um og með hræðslublik i augun-
um byrjar hann að afgreiða Man-
chester-búana. Hann hendist á
milli með bjór og vin og hann
þakkar sinum sæla þegar allir
halda út aftur. Hann veit hvað
getur gerzt, ef eitthvað fer úr-
skeiðis hjá honum. Hann er úr
hópi stuðningsmanna Chrystal
Palace, og svona hópur getur
jafnað krá eins og hans við jörðu
á nokkrum minútum.
Selhurst Park tekur um 46.000
manns. 1 þetta sinn eru áhorfend-
urnir 37.000. Lögregluþjónarnir
hamast við að reyna að koma
United-áhangendunum á einn og
sama stað. Þá er minni hætta á
ólátum. Þeir nota óspart kylfurn-
ar og margir verða fyrir höggum
eða troðast hálfpartinn undir.
Sumir slasast illa þegar þeir
reyna að svara á móti með þeim
vopnum, sem ekki fundust á þeim
við leitina. Ungir stuðningsmenn
Chyrstal Palace „hjálpa” lög-
reglunni við að koma aðkomu-
mönnunum á réttan bás og það er
ekki til að bæta andrúmsloftið.
Slagsmál brjótast út og þeir sem
meiðast eru teknir og fluttir á
„The St. John Ambulance
Brigade. Við tölum um það við
lækninn, sem segir okkur að hann
hafi flest fengið 86 slasaða i sam-
bandi við einn leik, þar af suma
mjög illa slasaða. Hann spáir þvi,
að i þetta sinn fái hann ekki nema
milli 10 og 20. Þetta ætti ekki að
verða sem verstur leikur. Það sé
verra þegar lið frá London mæt-
ast innbyrðis. Hann fer nálægt
spánni sinni. Hann fær 16 slasaða
i hendurnar. Flestir eru með
skurði á höfði eftir högg með ein-
hverju járni eöa öðrum álika hlut.
Þetta gerist á hverjum
laugardegi og vekur enga
athygli.
Leikurinn hefst kiukkan þrjú.
Hávaðinn er ærandi, en þó fylgir
þessu eitthvað sérstakt andrúms-
loft, sem maður getur ekki annað
en dáðst að. Við heyrum hávað-
ann og sönginn i samferðarmönn-
um okkar, en þeir eru auðveld-
lega kveðnir i kútinn af hinum.
Þeir eru lika fleiri, en þrátt fyrir
það gefast okkar menn ekki upp.
Aftur og aftur reisa þeir rödd sina
og ákalla guðinn, sem á fulltrúa i
rauðum peysum og hvitum bux-
um á vellinum. Fram.á bls,39
H 8®k | BPTl Hinn fullkomni
PlUl^tOl hljómur
© KARNABÆR
Laugavegi 66
Vinsælustu plöturnar:
Ný plata með
lcecross
Led Zeppelin
House of the Hyle
Slade
Slayed
Slade
Alive
Moody Blues
Seventh Sojourn
Free
Heart breaker
The Sensotional
Alex Harvey Band
Litlar vinsælar plötur:
Lobo
I 'd love you to want me
Carly Simon
You are so vain
David Bowie
Ziggy Stardus
Wihgs
Hi-Hi-Hi-
Manana
Because I love you
Roxy Mucik
Pyjamarama
Slade
Cum on fell the hoize
Focus
Sylvia