Tíminn - 08.04.1973, Side 5
Sunnudagur 8. april 1973.
TÍMINN
5
Hafsj
blóm
borg
Íór af A
lum í mið- I \
Hamborgar *-y
Tíminn
líéur
Carroll Baker vakti fyrst veru-
lega athygli á sjötta áratugnum,
þegar hún hafði leikið i kvik-
myndinni Baby Doll. Nú eru lið-
in um tuttugu ár frá þvi það
gerðist. Hún hefur ekki getað
gleymt þeirri frægð, og falleg er
hún enn, þótt árin hafi liðið hjá
henni ekki siður en öðrum.
Stökktæki fyrir
þotuflugmenn
Bandariski herinn gerir nú til-
raunir með stökkstól, sem nota
á ef flugvélar lenda i vandræð-
um, og er hann knúinn þrýsti-
lofti. Likist þetta tæki nokkuð
þvi, sem James Bond notar i
myndinni Thunderball. Þarna
er um að ræða turbó spaðavél,
og er hún spennt á bak flug-
mannsins likt og útbúnaður kaf-
ara. Flugmaðurinn getur siðan
stjórnað þvi með sérstökum
útbúnaði, hvert hann vill falla
eða fljúga. Þetta nýja tæki er á
stærð við mótorhjólamótor, en
heldur hávaðasamt. Telja þó
þeir, sem gera tilraunir með
þennan útbúnað, að þegar þeir
hafi lokið við hann til fulls, verði
hann svo 'einfaldur i fram-
leiðslu, og ódýr, að hægt verði
að setja hann á almennan
markað.
Haggis ekki
skozkur réttur
Haggis var upprunalega enskur
réttur, en hann hætti að vera
vinsæll þar i landi á 18. öld. Hins
vegar héldu Skotar áfram að
borða Haggis með góðri lyst.
Astæðan fyrir þvi, að Englend-
ingar foru að skipta um matar-
æði var sú, að fólk fór að hafa
meiri peningaráð, og gat veitt
sér meira i mat, en áður hafði
verið. Nafnið á þessum rétti er
upprunnið úr engilsaxneska
orðinu haggen, sem þýðir að
kjúfa höggva og hakka siðan
kjötið en það er einmitt þannig,
sem rétturinn er búinn til. Lifur,
hjörtu og eitthvað fleira úr
sauðkindinni er riotað i tilbún-
ing réttarins, og siðan er m.a.
haframjöli og lauk bætt út i, og
allt er kryddað með pipar og
sitrónum.
Þetta veggspjald, eða plakatt,
eins og flestir kalla það vist hér-
lendis sem erlendis, á að draga
þúsundir gesta að blómasýn-
ingu, sem efna á til i Hamborg.
Þetta er alþjóðleg garðyrkju-
sýning ársins 1973. Myndin á að
sýna Blóm hershöfðingja, þar
sem hann er að aka i gegn um
hafsjó af blómum, af öllum
gerðum og litum þótt við fáum
vist ekki að sjá litina á þessari
mynd. Veggspjaldið vann þriðju
verðlaun i keppni, sem efnt var
til um veggspjöld, og haldin var
i Toronto i Kanada. 300 þúsund
runnar, 500 þúsund túlípanar og
15 þúsund rósir verða i blóma á
timabilinu frá april og fram i
október i Hamborg. Sýningin
verður haldin i garðinum Plant-
en und Blomen, og einnig i
Grasgarðinum i miðri Ham-
borg.
Sakleysis. A-1
svipur og \
eiturlyf ^
Poppstjörnurnar i Rolling
Stones, trúa þvi statt og stöðugt,
að enn viti ekki nokkur maður,
að þeir noti eiturlyf. Þeir eru
svona blindir, enda þótt þeir
hafi verið handteknir fyrir að
smygla eiturlyfjum að minnsta
kosti tólf sinnum. Sá siðasti úr
hópnum sem lent hefur i
vandræðum vegna eiturlyfj-
anna er Keith Richards. Það er
ekki nóg með, að hann hafi
smyglað töluverðu magni af
eiturlyfjum, heldur hefur hann
meira að segja efnt til sam-
kvæma, þar sem hann hefur séð
veizlugestum fyrir nógu af þess-
um kræsingum. Hann varð
furðu lostinn, þegar lögreglan
birtist svo allt i einu i veizlunni,
og tók hann fastan, og rak alla á
burt. En honum tekst áreiðan-
lega, að losa sig úr klóm yfir-
valdanna að þessu sinni, það
tekst þeim oft, sem eiga pen-
inga.
Umhverfis jörðina
í strætisvagni
Andrew Stewart stökk upp i
strætisvagn og fórhálfa leið i
kringum jöröina i honum,
reyndar ekki i sama vagninum,
heldur skipti hann oft um á leið-
inni. Ferðin byrjaði i Sydney i
Astraliu fyrir fjórum árum. Þá
fór Andrew, sem er28áragam-
all og ættaður frá Bishops Stort-
ford i Hertfordshire, upp i
strætisvagn auk 12 annarra.
Ætlaði þetta fólk að fara i vagn-
inum yfir þvera Astraliu, Ind-
land, Pakistan, Tyrkland og
Evrópu. Eitt aðalvandamálið á
leiðinni, að sögn Andrews voru
hinar lágu brýr i Indlandi.
Vagninn okkar var 14 fet og 4
þumlungar á hæð, og við urðum
að hleypa öllu lofti út úr dekkj-
unum til þess að vagninn kæm-
ist yfir brýrnar, sem’ flestar
voru yfirbyggðar, og ekki nóg
með það, við urðum að fylla
hann af Indverjum að auki, til
þess að þyngja hann sem mest
og þrýsta honum niður. 1
Þýzkalandi urðu þeir að keyra
afturábak eftir einni harðbraut-
inni vegna þess af> girinn hafði
festst i afturábak-stöðu.