Tíminn - 08.04.1973, Síða 7
Sunnudagur 8. april 1973
TÍMINN
7
iiiT / ..iill
linuveiðarann Hugin með Þor-
steini Sigurðssyni i Lindinni, sem
var kallaður og siðar með Gisla
Jónssyni, alþingismanni og vél-
stjóra. Hann varð stórútflytjandi
af nýjum laxi. Laxinn isaði hann I
kassa og sendi með skipum til
Norðurlanda og Englands. Mest
af laxinum keypti hann frá ölfus-
ársvæðinu og ofan úr Borgarfirði.
Þannig brauzt Tómas Jónsson i
mörgu. Hafði mörg járn i eldin-
um, þótt'fyrst og fremst væri
hann kaupmaður.
A þeim tima, er Tómas Jóns-
son rak verzlunina, einkum þó
fyrstu árin, var mjög erfitt að
reka kjötverzlun i Reykjavik.
Kjötiðnaður var á frumstigi og
aðdrættirnir voru erfiðir. Kinda-
kjöt var að visu oftast fyrirliggj
andi i frystihúsi Sláturfélags
Suðurlands, en aðrir aðdrættir til
verzlunarinnar voru gegnum per-
sónuleg sambönd kaupmannsins i
sveitum landsins. Stórgripakjöt
var fram á siðustu ár mest keypt
beint af framleiðendum og sama
var að segja um egg, rjúpur, fugl
og annað, sem hafa varð á boð-
stólnum i stórri, myndarlegri
verzlun. Vinnudagurinn varð þvi
oft langur hjá Tómasi Jónssyni og
á kvöldin eftir lokun sat hann i
stofu sinni og færði verzlunar-
bækurnar.
Tómas lézt árið 1949, 64 ára að
aldri og næstu árin ráku erfingjar
hans verzlunina, en árið 1959 var
hún seld.
1 64 ár hefur kjötverzlun
Tómasar Jónssonar starfað.
Fyrst i Bankastræti, en siðan að
Laugavegi 2. Búðin er full af
varningi og öllu þvi nýjasta, sem
nútima iðnaður hefur á boðstóln-
um, en samt varðveitir hún það
gamla og þjóðlega með einhverj-
um, óskýrðum hætti.
Aðalheiður Guðmundsdóttir hellirupp á könnuna í vinnsiusalnum.
Vöruvalið hjá Tómasi er ótrúlegt.
Myndin er tekin I verzluninni að
Laugavegi 2.
Páll Guðjónsson, verzlunarstjóri hjá Tómasi,
Hrefna Hilmisdóttir við kassann. Hrefna er „flóttakona” frá Vestmannaeyjum og hefur reynzt mjög
góður starfskraftur f verzlun Tómasar.
Hilmar H. Svavarsson, hinn þekkti afgreiöslumaður hjá Tómasi. Hilmar teiknar auglýsingarnar, sem
settar eru upp daglega til að vekja athygli á nýjum vörum.