Tíminn - 08.04.1973, Síða 9
Sunnudagur 8. april 1973.
TÍMINN
9
í ÞRJÚ þúsund metra hæð yfir
sjó, i mög þurrviðrasömu fjall-
lendi, vex elzta tré veraldar,
broddfuran (Pinus aristata).
Hún hefur átt heima þarna i
þúsundir ára, og eru hin gömlu
tré næsta veðurbarin og ellileg,
en þó lifandi, a.m.k. einhver
hluti þeirra. Stofnar sumra eru
æði gildir, allt að 4 m i þvermál,
en hæðin er aðeins 8-9 m. Mikið
af barrnálum hefur smámsam-
an fallið af, svo oft er aðeins
neðsti hluti greinanna barri
klæddur. Efri hluti greinanna er
ber fyrir löngu og þýtur undar-
lega i þeim i stormi. Nakinn
viðurinn er marglitur, fægður
og rispaður af foksandi og snjó-
éljum. Börkur situr aðeins hlé-
megin á gömlu trjánum, en
áveðurs hefur hann veðrast
burt. Árhringarnir eru flestir
mjög þunnir, þvi að lifskjörin
eru hörð og vöxtur hægur þarna
uppi i háfjöllum. Skógfræðingar
ákvarða aldur þessara trjáa
með þvi að bora blýantsgildar
holur inn i stofnana og rannsaka
borkjarnana. Holan er strax
fyllt með viðarkvoðu (harpix),
til að komast hjá skemmdum.
Elzta lifandi broddfura sem
fundizt hefur, óx i Wheelerfjalli
i Nevada i Bandarikjunum. Hún
var felld i rannsóknarskyni árið
1964 og reyndist nærri fimm
þúsund ára. Næstelzta brodd-
furan vex i Hvitufjöllum i Kali-
forniu og er talin 4600 ára, eða
meira en helmingi eldri en okk-
ar timatal! Lengi voru risa-
fururnari Kalifornlu talin elztu
tré i heimi, en sú elzta þeirra er
ekki nema 3225 ára! Margar
borddfurur hafa verið orðnar
vöxtuleg tré, þegar veldi Aþen-
inga var sem mest, og þær voru
komnar á virðulegan aldur á
dögum Rómverja. Það er þurr-
viðrasamt, stutt sumar og svalt
uppi i háfjallahliðunum, þar
sem broddfuran vex. úrkoman
þar ræður mestu um vöxtinn og
sést þetta greinilega á árhring-
unum. Teir verða mjög þunnir
i þurkkasumrum, en miklu
þykkri eftir votviðrasumur. Það
má i raun og veru lesa veðurfar
i þúsundir ára af árhringum
trjánna. Einnig gefa þeir bend-
ingu um kuldatimabil. Vissar
skemmdir i vökvaleiðandi
frumum sýna tilkomu kaldra
loftstrauma á sumrin, þ.e.
kaldrar sumarveðráttu árin
1453,1601,1884, 1902,1941 og 1965
þarna i fjöllunum og þá senni-
lega viðar. Veðráttan virðist og
hafa mikil áhrif á aldur trjánna,
þannig að þau tré, sem ná hæst-
um aldri, vaxa einkum þar sem
lifskjörin eru hörð, þ.e. i há-
fjallahliðum hátt yfir sjó!
Það virðist fara saman hægur
Myndin sýmr mörg þúsund
ára gamla broddfuru, veður-
barða mjög og barkslitna, við
skógarmörkin i 3500 m hæð yfir
sjó i „Hvitufjöllum ” i
Kalifornfu.
vöxtur og langt lif. Allar brodd
furur, sem eru eldri en 1500 ára,
hafa misst börkinn að miklu
leyti. Það eru aðeins eftir bark-
ræmur á stofnum og greinum.
Þetta dregur úr vexti, frumurn-
ar verða þéttar og mikið um
harpixgöng i viðnum. Dauð tré
standa stundum afar lengi,
jafnvel eitt til tvö þúsund ár og
fundizt hefur afar gamall viður.
Broddfurur sem vaxa við betri
kjör, vaxa hraðar, en deyja lika
og rotna miklu fyrr. Hugsið
ykkur broddfurur, sem vaxið
hafa úr grasi á dögum Abra-
hams og Mósesar!. Broddfurur
eru ræktaðar á Hallormsstað,
vaxa þar hægt en örugglega og
hafa aldrei kalið. Hve gamlar
skyldu þær geta orðið? Einhver
elzta broddfuran vestra hefur
verið skirð Metusalem, en hin
stærsta er kölluð Patriarken,
þ.e. ættfaðirinn. Stofn hans er
11,3 m að ummáli! Sú, sem fyrst
reyndist vera yfir fjögur þúsund
ára, nefnis Alpha. Það hefur
erfiðara að ákvarða aldur
risafurunnar (Sequoa) en
broddfurunnar nákvæmlega.
Menn rannsaka nú mikið aldur
barrtrjáa, sem vaxa við erfið
kjör, t.d. i útjaðri eyðimarka. í
árhringum þeirra, og i gömlum
viði, sem fundizt hefur, sést
m.a. greinilegur vottur þurrka-
timabila á 13. og 16. öld. í
Washingtonfjöllum i Nevada i
3400-3500 metra hæö yfir sjó,
finnast leifar af broddfuruskóg-
um. Af árhringunum og með
kolefnis 14 aðferðinni, hafa
menn ráðið að skógarnir dóu
út fyrir 2700-2000 árum — og eins
var þvi farið með aöra fjalla-
skóga i mörg hundruö kilómetra
fjarlægð. Skógarmörkin hafa
greinilega lækkað — og hafa
jafnvel enn verið að lækka á
dögum Platons og Aristotelesar.
I kolum þar sem börkur hefur
vaxið yfir gömul sár á bol
broddfuru, hafa menn fundið
frjókorn frá þvi um 1300 árum
fyrir Krists fæðingu! Fimm
þúsund ára Droddfura er eitt af
undrum veraldar. Hún hefur
verið orðin ævagamalt tré, þeg-
ar Ingólfur og Hallveig stigu á
land i Reykjavik.
— býður ávallt beztu kaupin
Nú nýjar gerðir
Meiri afköst og styrkleiki
Meiri tæknibúnaður
og fylgihlutir
Sífellt aukin þjónusta
Lægstu verðin
ZETOR 4712—47 Hö.
Nýjasta vélin frá Zetor. Millistærð, sem sameinar
kosti minni og stærri véla. Frábærlega vel hönnuð og
tæknilega búin. Lipur og afkastamikil alhliða dráttarvél.
Meiri vél á minna verði.
ZETOR 2511—30 Hö.
Létt og lipur heimilisvél. Sterkbyggð og með mikið
dráttarafl miðað við stærð. Ómissandi á hverju búi.
Ódýrasta fáanlega dráttarvélin á markaðinum.
ZETOR 5718—60 flö. OG 6718—70 Hö.
Kraftmiklar og sterkar vélar gerðar til mikilla átaka.
Með meiri tæknibúnað og fylgihluti en venja er til,
s. s. húsi, miðstöð, vökvastýri, lyftudráttarkrók o. fl.
Dráttarvélar í sérflokki á hagstæðum verðum:
„ZETORMATIC" fjölvirka vökvakerfið er í öllum vélunum.
Fullnýtir dráttaraflið og knýr öll vökvaknúin tæki.
Zetor eru nú mest seldu dráttarvélarnar á íslandi. Það eru ánægðir
Zetor eigendur, sem mæla með þeim.
Zetor kostar allt frá kr. 100 þús. minna en margar aðrar sambærilegar
tegundir dráttarvéla — það munar um minna.
Hafið samband við okkur og fáið nánari upplýsingar um Zetor.
ISTEKK"
Lágmúla 5 Sími 84525
Ingólfur
Davíðsson:
Öld-
ungur
öldung
anna