Tíminn - 08.04.1973, Side 15
Sunnudagur 8. april 1973.
TÍMINN
15
i Hveragerfti hefur Steinbjörn búið mestan hluta ævinnar.
smlða virkin. Gerir þú það sjálf-
ur?
— Þegar ég byrjaði að læra
þessa iðn, var hætt að smiða virk-
in. Þau voru flutt inn frá Eng-
landi. Þó vissi ég um einn mann,
sem smiðaði virki, en sjálfur
gerði ég það aldrei.
,,Hann var hinn
prýðilegasti maður.”
— Þú lézt þess getið, að þú
hefðir lengi búið norður á Vatns-
nesi. Ertu Húnvetningur að upp-
runa?
— Nei, ég er Borgfirðingur. Ég
fæddist að Gröf i Lundarreykja-
dal árið 1896. Tveggja ára að aldri
fluttist ég með foreldrum minum
upp i Hvitársiðu og ólst þar upp.
— Á hvaða bæ var það?
— Það var á Háafelli, og átti ég
þar heima fram yfir fermingar-
aldur. Á Háafelli höfðu margir
forfeður minir búið.
— Var ekki Stefán Jónsson, rit-
höfundur að alast þar upp um likt
leyti?
— Það var ekki fyrr en mörgum
árum seinna. Hann fæddist ekki
fyrr en árið 1905.
— Þú hefur samt kynnzt
honum?
— Já, ég þekkti bæði hann og
foreldra hans. Við áttum heima á
sömu bæjum tvisvar sinnum en
auk þess hafði ég kynni af þeim,
þótt lögheimilin væru ekki hin
sömu. Ég kynntist þvi Stefáni
sem unglingi og lika sem full-
orðnum manni. Hann var hinn
prýðilegasti maður, ungur sem
aldinn.
— En vikjum nú aftur að
sjálfum þér. Varstu alinn upp við
handiðn, eða tókstu þetta upp hjá
sjálfum þér?
— Ég þekkti ekkert til þess i
Hvitársiðunni. Það var að visu
söðlasmiður þar, Jón Sigurðsson,
alþingismaður frá Haukagili,
stundaði það starf um nokkurt
árabil, og faðir hans, Sigurður,
var ágætur söðlasmiður.
— Var ekki Hvitársiðan jafnan
hestmörg, eins og viðar hefur
verið I Borgarfirði?
— Hestmörg var hún nú ekki, en
það voru reiðhestar á hverjum
bæ, og vitanlega þurfti marga
hesta til heyflutnings á sumrin,
svo að það var alltaf talsvert
mikið til af tömdum hrossum
á bæjum.Lækni þurfti að sækja
um langvegu og menn urðu alltaf
að hafa hesta á járnum að vetrin-
um, þvi að alltaf þurfti meira og
minna til þeirra að gripa. í kaup
staðinn er á milli fjörutiu og fimm
tiu kilómetra vegalengd, og voru
þvi lestaferðirnar ekki erfiðis-
lausar mönnum né skepnum. Að
sjálfsögðu voru þá jafnan margir
hestar i för, þvi að ekki var alltaf
verið að fara i kaupstað.
Fyrstu haustgöngur stóðu yfir i
fjóra daga, ef ég man rétt, og eins
og nærri má geta, þurfti marga
hesta til þeirra.
Geiri mikið við
gamalt
— Nú ert þú nokkuð tekinn að
reskjast, kominn hátt á áttræðis
aldur. Smiðar þú enn af fullum
krafti?
— Maður dundar við þetta, þótt
það gerist ekki á sama hátt og
áður, þegar maður var yngri. Nú
er þetta fremur föndur gamals
manns en veruleg vinna.
— Hvað getur þú imyndað þér,
að þú smiðir marga hnakka á ári
núna?
— Þvi get ég ekki svarað,
hversu marga nýja hnakka ég
smiða, þvi að meira en helmingur
timans fer til þess að gera við
gamalt.
— Er mikið um það að menn
láti gera við slitin reiðver?
— Já, það er algengt, að menn
nýti reiðtýgi sin mjög. Stundum
eru hnakkarnir eins og krufin lik,
þegar þeir koma til min.
— Er það ekki afleitt verk, sem
ekkert er upp úr að hafa, að taka
útslitna ræfla og tjasla þeim
saman?
— Það er ákaflega timafrekt —
og ekki þarf maður að gera sér
von um rifleg daglaun fyrir þá
vinnu.
— Söðlasmið fylgir járnverk,
eins og allir vita. Hefur þú ekki
lagt stund á það jafnframt?
— Nei. Stengur og istöð fást
utanlands frá, og ég hef aldrei
smiðað þá hluti, en þó eru þeir
menn til hér sem það gera.
Hin virðulega hirzla
hestamannsins
— En hefurðu ekki smiðað
töskur, þennan virðulega hlut
allra góðra hestamanna?
— Það er alltaf nokkur eftir-
spurn eftir þverbakstöskunum,
sem spenntar eru á púða aftan við
hnakkinn, en klyftöskurnar eru
að mestu horfnar, þvi að nú er
orðið svo litið um langferðir á
hestum. Aður var mikið smlðað
af þeim, bæði fyrir landpóstana
og gangnamenn, og reyndar fyrir
alla, sem ferðuðust eitthvað að
ráði.
— Það eru nú enn farnar langar
haustgöngur, til dæmis hérna i
uppsveitum Arnessýslu.
— Já, að visu, en nú er ferðazt á
allt annan hátt en áður. Nú eru
bilar notaðir til þess að flytja
föggur manna, nesti og aðrar
nauðsynjar inn á afréttina. Þó
þekkist það enn, að menn noti
hesta til þess að flytja farangur i
göngum, og alltaf koma einhverj-
ir til min, þegar liða fer að
göngum og fá gert við töskur sin-
ar.
— Att þú hest til þess aö bera
hnakk, smiðaðan af sjálfum þér?
— Nei, ekki lengur. Ég lógaði
hestum minum, eins og öllum
öðrum gripum, þegar ég hætti
búskapnum.
— Þú sagðir áðan, að ungir
menn lærðu ekki söðlasmið.
Hefur þú aldrei kennt handverk
þitt?
— Jú, það hafa verið hjá mér
piltar, en það er skjótt frá þvi að
segja, að ekki einn einasti þeirra
hefur gert söðlasmið að ævistarfi
sinu.
Þeirhafa tekið aðra vinnu fram
yfir. —VS
VERÐTRYGGT
HAPPDRÆTTISLÁN RÍKJSSJÓÐS
SKULDABRÉFB
SAMGÖNGUBÓT
Suðurland og Austurland eru aðskilin
af stórfljótum.
Flutnings- og ferðakostnaður stór-
lækkar við tilkomu Skeiðarársands-
vegar.
ÖRYGGI
Allt öryggi, bæði á sjó og landi, verð-
ur með veginum bætt til muna, t. d.
varðandi björgun úr sjávarháska og
sjúkraflutninga á landi.
FERÐALÖG/NATTÚRUFEGURÐ
Jafnt innlendum sem erlendum ferða-
löngum opnast nýr heimur til ánægju
og fróðleiks.
Landsvæði mikillar fegurðar og sögu
verður nú aðgengilegra.
METNAÐARMÁL
Árum saman hefur það verið metnað-
ur íslendinga, að vegakerfi landsins
sé samtengt þannig að menn geti
ferðazt hringveg um landið.
SALA HEFST
ÞRIÐJUDAGINN
10. APRÍL
KR.1000 VERÐTRYGGT
HAPPDRÆTTISLÁN RlKISSJÓÐS 1973
SÖLUSTAÐIR:
BANKAR
BANKAÚTIBÚ OG
SPARISJÓÐIR
SEÐLABANKI ÍSLANDS