Tíminn - 08.04.1973, Side 17
TÍMINN
17
Suniiudafíur X. april 1973.
Við hittum Olaf að máli fyrir
stuttu á skrifstofu Loftleiða við
Frithjof Nansensplass númer 9. Á
þessum stað hafa Loftleiðir
haft skrifstofu, síðan 17. júni 1971,
en fram til þess tima hafði
Braathen S.A.F.E. verið aðalum-
boðsmaður Loftleiða í Noregi.
Ólafur segir fyrst, að hann hafi
tekið við sölustjórastarfinu um
leið og skrifstofan var opnuð þann
17. júní 1971 og muni hann ekki
eftir öðrum eins áhuga fyrir
Islandi i Noregi. Það sé spurt og
spurt, og með sanni megi segja,
að um allan Noreg sé nú upphafin
vakning fyrir Islandi — Norsku
blöðin, útvarp og sjónvarp eiga
lika sinn þátt i þessu segir hann
og nýafstaðin söfnun, sem Erik
Bye sá um og stjórnaði i gegnum
norska sjónvarpið sýnir hvað við
eigum i Noregi. Ég hef aldrei
kynnzt neinu i likingu við þetta
áður.
Nú ert þú formaður Islendinga-
félagsins. Hvernig er starfi
félagsins háttað?
— Starf Islendingafélagsins er
orðið ærið umsvifamikið, þó svo
að það hafi kannski ekki alltaf
verið mikið fyrstu árin Nú orðið
höldum við alltaf hausthátið,
þorrablót, og einnig göngumst við
fyrir ferðum heim. Og ekki má
gleyma húsinu, sem tslendinga-
félagið á . við Norefjell. Þetta
hús er alveg stórkostlegt og það
sama er að segja um staðinn. Það
er sama hvort maður er þarna
yfir vetrartimann eða að sumar-
lagi, þarna er alltaf jafn gott að
dvelja.
— Nú hafið þið þurft að endur-
nýju húsið að mestu, hvaða utan-
aðkomandi aðstoð hefur félagið
fengið til þess?
— Félagið hefur tvisvar 1970 og
1971 fengið 50 þúsund króna styrk
frá islenzka rikinu, til að endur-
nýja húsið. En tilfellið er að að-
stoð. sem þessi, er ekki mikil,
þegar búið er að umreikna þessa
upphæð yfir i norskar krónur,
miðað við núverandi gengi. Allar
Skapið yður eigin
umgjörð með
GeQunar
gluggatjöldum
Heimilið er hluti af manni sjálfum,
hlýleg búslóð skapar vellíðan og öryggi.
Gluggatjöldin eru rammi þessa umhverfis,
skapa því lit og ljós.
Gefjunar gluggatjöld úr úrvals trefjaefni
í fjölbreyttu litavali
eru hverju heimili vegleg umgjörð.
GEFJUN AKUREYRI
dralon
, BAYER
Úrvals trefjaefni
ÁHUGINN A ISLANDI HEF-
UR ALDREIVERIÐEINSMIKILL
Rætt við Ólaf Friðfinnsson, sölustjóra Loftleiða í Noregi
ISLENDINGAR, sem
búsettir eru erlendis,
hafa ekki siður látið
gosið i Vestmanna-
eyjum til sin taka, en við
hin, sem búum heima á
Fróni. Fjölmargir
landar i útlandinu hafa
þurft að þeysast á milli
borga og flytja fyrir-
lestra, sýna kvik- eða
skuggamyndir um
ísland eða Vestmanna-
eyjar, og þetta fólk
hefur ekki tekið eyri
fyrir, heldur aðeins
unnið af alhug að söfnun
handa Vestmanna-
eyingum. Einn þessara
manna, er Ólafur Frið-
finnsson, sölustjóri Loft-
leiða i Noregi. Það má
segja, að hvern dag,
þegar ólafur hefur lokið
vinnu á skrifstofunni,
þá sé hann annað hvort
kominn á fund vegna
Vestmannaeyjamálsins
eða hann er þá að vinna
að einhverju sérverkefni
vegna ástandsins i
Eyjum.
Ólafur er einnig for-
maður Islendinga-
félagsins i Noregi, og
það er meðal annars af
þeirri ástæðu,sem mikið
hefur borið á honum i
söfnuninni, sem staðið
hefur yfir i Noregi og
nefnist „Hándslag til
Island”, eða „vinarhönd
til íslands”.
ölaftir Friöfiniissoii
breytingar, sem gerðar hafa
verið á húsinu, hafa verið unnar i
sjálfboðavinnu. Við höfum alla tið
lagt áherzlu á að nota islenzkt
efni i húsið. Við höfum keypt teppi
frá Islandi og ýmislegt annað, og
einnig höfum við hug á að kaupa
húsgögn að heiman, hvort það
borgar sig, er samt ekki vist, en
alla vega kaupum við meira af
teppum að heiman. Nú er
ákveðið aðsetja upp nýja eldhús-
innréttingu, og verður þvi verki
flýtt vegna dvalar Vestmanna-
eyjabarnanna i húsinu i sumar.
Þetta verður kostnaðarsamt fyrir
félagið, enda félagið ekki það fjöl-
mennt. Félagatalan er nú ein-
hversstaðar á milli 200 og 250. A
meðan við tölum um endurbætur
á húsinu, þá má ekki gleyma
tveim Islendingum, sem hafa
mikil viðskipti við Noreg, en það
eru þeir Friðrik A. Jónsson og
Jóhann Rönning, Þessir tveir
menn hafa látið mikið fé af hendi
rakna til hússjóðsins og hafa
einnig útvegað vörur hjá
norskum fyrirtækjum á mjög
hagstæðu verði.
Við stjérnendur i tslendinga-
félaginu höldum þvi fram, að
okkur beri réttur á meiri styrk frá
islenzka rikinu. Það er hægt að
benda á Islendingahúsið i Kaup-
mannahöfn, sem fær mjög háan
styrk frá rikinu á ári hverju, fyrir
utan það, að rikið kostaði allar
breytingar á þvi. Við hér verðum
að reka okkar hús af þvi, sem inn
kemur. Og það er af húsgjaldinu,
sem mjög er stillt i hóf og af
ágóða sem hlýzt af skemmtunum
Islendingafélagsins.
— Ekki er húsið aðeins fyrir þá
Islendinga, sem búa i Noregi?
— Nei, það er öllum opið, og nú
orðið koma Islendingar hvaðan-
æva að og dvelja þar um hrið.
Fólk er til dæmis farið að koma i
nokkuð rikum mæli að heiman
yfir vetrartimann og stundar
þar skiðaferðir i nágrenni húss-
ins, en skammt frá húsinu eru
einhverjar vinsælustu skiða-
brekkur Noregs.
— Hefur félagið ekki tekið
mikinn þátt i Vestmannaeyja-
söfnuninni i Noregi.
— Jú, félagið hefur stutt þessa
söfnun margvislega. Meðal
annars hefur það útbuið margar
fréttatilkynningar fyrir viðkom-
andi aðila i Noregi. Að auki ákvað
stjórn félagsins að styrkja dvöl
Vestmannaeyjabarna með þvi,
að lána hús félagsins i allt sumar
handa börnunum. Þá söfnuðust
niu þúsund norskar krónur til
þessa starfs á mjög skömmum
tima.
Nú berst talið aftur að Loft-
leiðum og Ólafur segir, að þeirra
sölukerfi sé mikið byggt á ferða-
skrifstofunum og hafa Loftleiðir
nú 84 umboðsmenn viðs vegar i
Noregi. Þá má ekki gleyma
Braathen, en farseðlar með
Loftleiðum eru seldir á öllum
skrifstofum þess félags i Noregi.
Oslóarskrifstofa Loftleiða er
siðan miðstöð fyrir allar þessar
söluskrifstofur.
Ahuginn fyrir Islandi er alveg
feikilegur um þessar mundir og
mjög margar fyrirspurnir, sem
berast eru um „Island
eventyrlandet”, einnig hafa
margar fyrirspurnir borizt ný-
lega um svokallaðar menningar-
ferðir til Islands sem nýlega voru
teknar upp, en þær byggjast
mikið á þvi að fólk fari i leikhús,
sæki tónleika og annað,sem er til
menningarlegs auka. Þessar
ferðir, sem eru hugmynd Gisla
Sigurbjörnssonar, forstjóra, ætla
að verða vinsælar.
Þegar Loftleiðir opnuðu skrif-
stofuna i Osló 1971 störfuðu þar
tveir menn, en nú tveim árum
siðar starfa þar sjö manns, og er
það til marks um aukin umsvif
Loftleiða i Noregi. —ÞÓ
Okkar vinsæla — ítalska
PIZZA
slær í gegn — Margar tegundir
Opiö trá
kl. 08-21.30.
Laugavegi 178
Sími 3-47-80
TWYFORDS
hreinlætistæki fyrirliggjandi
BYGGINGAVORUVERZLUN
TRYGGVA HANNESSONAR
Suðurlandsbraut 20 — Sími 8-32-90