Tíminn - 08.04.1973, Page 23
Sunnudagur 8. april 1973.
TÍMINN
23
Hér er einn hestur á harðastökki, úr Lascaux, en þvl miöur varð rassinn
(örugglega ekki i Borgarfirði, fremur i Skagafirði).
Ævagömul
• •• X •
jorou niori
Eflaust muna margir eftir þeim
heimssöguiega atburði, er nokkr-
ir drengir i Frakklandi lentu af
tilviljun inni I helli, er þeir voru
að leita að hundinum sinum.
Þetta var um 1940. Og hvaö var
svo merkilegt við þennan helli?
Jú, hvorki meira né minna en
það, að hann hafði að geyma elztu
merki um mannavist á þessari
jörð, að þvi er taliö er. 1 þessum
helli, LASCAUX-HELLINUM,
eru myndir á veggjum, dýra-
myndir, sem taldar eru allt að 15
ÞÚSUND ARA GAMLAR. Sjálfur
er heliirinn eins og bátur i lögun
meö hárri hveifingu.
Dýramyndirnar á veggjunum
eru málaðar frisklegum, rauðum
og brúnum litum. Þær eru málað-
ar af mikilli snilld og öryggi, en
umfram allt eru þær lifandi.
Þarna blasa við myndir af æva-
fornum afbrigðum visunda, hesta
og hjarta. Þandar granir, spennt-
ir vöðvar og lifandi staða dýranna
lita út sem sláandi raunveruleiki.
Við sjáum visunda búast til árás-
ar og hesta á harðastökki, sem
minna mjög á þá villihesta, er i
dag þenja sig trylltir um sléttur
Mongóliu. A einni mynd má
glögglega skynja óttakrampa
fimm hjarta, sem eru að brjótast
yfir hvitfyssandi stórfljót. Að þvi
er visindamenn nútimans komast
næst, hafa menn aldrei búið i
þessum helli, heldur hefur hann
verið nokkurs konar tilbeiðslu-
staður. Telja þeir, að
skreytingarnar á veggjunum hafi
staðið i sambandi við athöfn til
hvatningar veiða.
Ef til vill tekst fornleifa-
fræðingum aldrei að segja til um
með vissu, hvers konar menn það
voru, er sköpuðu þessi listaverk.
Eitt geta menn þó fullyrt: þeim
svipaði næsta litt til steinaldar-
mannanna, sem við sjáum i sjón-
varpinu.
Frakka gæta hans eins
og sjáaldurs augna sinna
Frakkar gæta fyllsta öryggis i
sambandi við hellinn, og það ekki
aö ófyrirsynju. Þeir, sem vilja
skoða hellinn, verða fyrst aö fá til
þess sérstakt leyfi hjá franska
menntamálaráðuneytinu, og það
er alls ekki svo auðvelt að fá þetta
leyfi. Og þótt leyfiö sé fengið, er
ekki þar með öll sagan sögð. Þeg-
ar gestir koma að hellinum, mæt-
ir þeim varðmaður, er stendur
sperrtur og virðulegur við læstar
járndyrnar aö hellinum. Þegar
loks er komiö inn i hellinn, veröa
gestirnir aö þvo sér vandlega með
sótthreinsunarefnum til að koma
i veg fyrir, að sýklar og gerlar
hvers konar og hvaðanæva að úr
heiminum berist inn i helgidóm-
inn.
Ferðamönnum var fyrst hleypt
inn i Lascaux árið 1944. Upp úr
1960 komu alls um 120 þúsund
manns i hellinn árlega. Suma
daga streymdu 2 þúsund manns
út og inn um hellinn. Snarlega
voru sett ströng höft á þennan
fólksstraum, er kom i ljós, að
grænleit mygla einhvers konar og
hvitleitt kalklag var farið að
myndast á hinum dýrmætu
myndum.
á honum eftir einhvers staðar
list í
Myglan haföi borizt meö mis-
þrifnu fólki inn i hellinn, og þar
náöi myglusveppurinn að þrifast
og það vel i þungu, innibyrgðu
loftinu og við skin skærs raf-
magnsljóssins. Hellirinn var
lokaður venjulegum ferðamönn-
um 1963, en engu aö siður breidd-
ist myglan enn út. Loks tókst að
vinna bug á sveppnum með þvi að
sprauta sóttvarnarefni á veggina.
Einnig tókst að ná af kalklaginu.
1 dag er engin hætta á ferðum
lengur meö hellinn. Og við hljót-
um að eiga auðvelt með að skilja,
að Frakkar kappkosti að varð-
veita þetta minnismerki, er með
svo lifandi táknum veitir okkur
sýn inn i fjarska fortiöarinnar,
þegarmaöurinn hafði eygt og öðl-
azt glætu siðmenningar.
—Stp
0 Pele
1 Sviþjóð 1958 og Chile 1962, og
vinur Pele, lét I sér heyra. Hann
gagnrýndi knattspyrnuforustuna
og sagði, að þaö þyrfti hæfan
þjálfara til að bera ábyrgð á
landsliöinu, en ekki „leikmann”
eins og Saldanha.
Elíefu vikum fyrir heims-
meistarakeppnina i Mexikó þurfti
Saldanha að vikja. „Saldanha féll
fyrir Pele” hljóðuöu fyrirsagnir
dagblaðanna i Rio de Jameiro.
Zagalo var skipaður þjálfari
brasiliska landsliðsins, sem hann
byggði upp á Pele. Töframaður-
inn Pele náði sér svo sannarlega á
strik i HM-keppninni i Mexikó og
sýndi listir sinar i hverjum stór-
leik brasiliska liðsins i keppninni.
Hann var potturinn og pannan i
hverju meistaraupphlaupi liðsins
i leikjum þess. Brasilia kórónaði
svo góða sigurgöngu með
snilldarleik gegn Italiu i úrslitum
4:1 og endurheimti þar með
heimsmeistaratitilinn og tryggði
sér hina frægu Jules Rimet-styttu
til eignar. Þetta var stærsti dagur
i lifi Peles. Hann hafði tekið þátt I
fjórum heiihsmeistarakeppnum
og lið hans sigraði nú i þriðja
skiptið. Það er met, sem erfitt<
verður að hnekkja.
„Hætti 1973” —
sagði Pele
Eftir heimsmeistarakeppnina I
Mexikó sagði Pele, að hann
mundi leggja skóna á hilluna eftir
keppnistimabilið 1973. En það
verður 1972, sem ég leik minn sið-
asta landsleik fyrir Brasiliu.
Astæðuna til þessa kvað hann þá,
að hann vildi gjarnan, aö vinir
hans ættu aðeins góðar
endurminningar um veru sina á
vellinum. Mótmælabréf
streymdu til hans i þúsundatali
eftir þessa tilkynningu. Menn
voru ekki ánægðir, sérstaklega út
af þvi, að Pele er aðeins 32 ára i
dag og á enn framtiðina fyrir sér.
Grátklökkur klæddi
hann sig úr brasilisku
landsliðspeysunni
Hinir tryggu áhorfendur Peles
grétu, þegar þeir kvöddu
átrúnaðargoðið Pele 18. júli 1971 á
Maracana-leikvanginum i Rio i
siðasta landsleik hans gegn Júgó-
slaviu. Þeir hrópuðu: „Ekki
hætta, ekki hætta”, þegar Pele,
EINÁVAKT..?
Ej til vill ein fárra úr hópi námssystra,
sem iní stundar hjúkrunarstörj.
Knýjandi þörj er fyrir hjúkrunarkonur
um jiessar rnundir við Grensásdeild
Borgarspitalans og aðrar deildir hans.
Getið ÞÉR lagt málinu lið?
Hálfs dags starf er einnig þegið
með þöhkurn.
Vinsarnlega gefið yður fram við
forstöðukonu
Borgarsþitalans i sima 81200.
sem lék aðeins fyrri hálfleikinn,
hljóp einn hring. Ahorfendur
grétu, og sjálfur var Pele grát-
klökkur, þegar hann klæddi sig úr
landsliðspeysunni meö töluna 10 á
bakinu. Hann afhenti hana litlum
dreng, sem átti að vera tákn til
brasiliskra æskumanna um að
láta ekki merkið niður falla. Þeg-
ar forseti Brasiliu, Emilio
Garrastazu Medici, þakkaði hon-
um fyrir hönd brasilisku þjóöar-
innar, stóð Pele ber að ofan með
tárvot augu. Það skein á gylltan
krossinn á bringu hans, verndar-
gripinn, sem hann lék alltaf meö,
þegar hann klæddist blá-gula
brasiliska landsliösbúningnum.
Eftir ræðu forsetans heiöraöi
júgóslavneski ambassadorinn
Pele með þvi að færa honum
heiðursfána lands sins. Siðasta
landsleik Peles lauk meö jafntefli
2:2.
Verður Pele með i
HM-keppninni i Vest-
ur-Þýzkalandi 1974?
/ „Svarta perlan” er ekki af baki
Adottin sem knattspyrnumaður.
Hann leikur stöðugt fyrir Santos
og sýnir hvern snilldarleikinn á
' fætur öðrum. Pele hefur ákveðið
aö leika með félagi sinu I nokkur
ár I viöbót og nú er byrjað aö tala
um, að hann verði einnig með
brasiliska landsliöinu i
HM-keppninni i V-Þýzkalandi
1974. Þegar Pele var spuröur um
þetta um daginn, sagði hann:
„Það er kominn timi til aö yngri
menn taki viö af mér i landsliðinu
— það þarf að byggja upp nýtt
landslið með yngri mönnum.” Þá
kemur spurning. Var ekki brasi-
liska landsliðið byggt upp á Pele
og yngri mönnum 1970? Þvi er
það ekki hægt aftur 1974? Allir
vita um eiginleika „svörtu perl-
unnar” — hún fellur inn I hvaða
lið sem er, með mönnum á öllum
aldri.
-SOS.
London
Óskum eftir að bæta við
nokkrum fuliorðnum I ddýra
hópferö til London 23. april.
Farið heim 4. mai.
Upplýsingar i slma 7-10-73.