Tíminn - 08.04.1973, Qupperneq 27
Sunnudagur K. april 1973.
l'ÍMINN
27
Tvöaf fórnarlömbunum, — vinkona Somchais, Somwang, og dóttir hans Sonthaya.
Bandarisku flugmennirnir i
S-Vietnam höfðu að visu fengið
ströng fyrirmæli um að halda sig
utan flug leiðarinnar „Grænn 67”,
sem var eingöngu ætluð borgara-
legri flugumferð. Eftir henni fóru
tugir flugvéla daglega yfir S-Viet-
nam, flugvélar hvaðanæva að.
Er björgunarmennirnir fundu
beiglaðan flugmannshjálm innan
um flakleifarnar, þótti ekki leika
vafa á því, að árekstur hefði átt
sér stað milli farþegaþotunnar og
bandariskrar orustuþotu. Það
leið þó ekki á löngu, unz hið
sanna um þennan hjálm kom i
ljós. Það fannst bandarlskt her-
mannamerki rétt hjá hjálminum,
og þetta merki var skráð fyrir
einn mann á farþegalista flugvél-
arinnar. Einn af farþegunum
hafði þvi verið bandarlskur her-
maður, er hafði haft hjálminn
með sér i farangri sínum.
Þar með var möguleikinn á
Sam-eldflauginni þyngri á met-
unum. Er tætlur flaksins höfðu
verið rannsakaðar allnáið, þótt-
ust sérfræðingar finna einhver
merki á flugvélarskrokknum, er
bentu til þess, að eldflaug hefði
lent þar á. Þetta virtist ótrúlegt,
en flugfélagið vildi taka allt með i
reikninginn. Eftir að þetta
vitnaðist, breytti það flugleiðum
sinum i Austurlöndum fjær. Lét
það nú vélar sínar fara I boga I
kringum hið stríðsherjaða S-Viet-
nam, en það þýddi 500 km flug-
leiðarlengingu, sem var flug-
félaginu dýrt.
En um sama leyti var alveg
nýtt atriði komið á daginn hjá
sérfræðingunum á slysstaðnum.
Eftir að likin höfðu verið rann-
sökuð náið benti nú allt til þess, að
sprengju hefði verið komið fyrir i
sjálfu farþegarýminu. Og hægt
var að ákvarða sprengjustaðinn
með mikilli nákvæmni. Hann var
á vinstri hlið farþegarýmisins á
hæð við burðarflötinn. Og sér-
fræðingarnir töldu, að hann hlyti
að hafa verið undir sæti nr. 10 A.
Mikilvægustu sannanirnar fyrir
þessari ályktun voru, að brot úr
sprengjunni fundust i 10 llkum.
Og timenningarnir höfðu allir
setið I grennd við sæti nr. 10 A.
Verst hafði sprengjan farið með
konuna, er sat i sæti nr. 10 A.
Báðir fætur hennar höfðu tætzt af,
og að sögn læknanna hafði hún
látizt samstundis af sprengjunni,
áður en flugvélin hrapaði til
jarðar.
Þessi kona hafði vérið tvitug að
aldri og hét Somwang. 1 för með
henni hafði verið sjö ára gömul
stúlka. Litla stúlkan hafði setið
við hliðina á Somwang i sæti nr.
10 B. Hún ar dóttir lögregluþjóns I
Bangkok að nafni Somchai.
Ótti i Bangkok
Alllangur timi leið, unz
lögreglan komst á slóð fjölda-
morðingjans. Ekkert benti til, að
hermdarverkamenn hefðu staðið
á bak við þetta, og CPA hafði
heldur ekki móttekið neina oð-
sendingu um fjárkúgun.
Mikil skelfing greip um sig i
Bangkok. Þaðan hafði slysflug-
vélin lagt upp I sina síðustu ferð,
og daginn áður en það slys varð,
hafði önnur farþegaþota, sem var
á leið frá Bangkok til Evrópu,
hrapað af óvenjulegum ástæðum.
Þetta var DC-þota i eigu Japan
Airlines, sem átti að millilenda i
Nýju Delhi. Allt virtist i full-
komnu lagi, er vélin fór frá Bang
kok, en hún magalenti 12 kíló-
metra frá lengindabraut flug-
vallarins i Nýju Delhi. Hún lenti á
opnu svæði og 85 farþegar um
borð fórust og 3 Indverjar, sem
höfðu verið við vinnu á akrinum,
þarsem flugvélin hrapaði. Aðeins
fjórum farþ. tókst að bjarga sér
út úr flugvélarflakinu, áður en
kviknaði i þvi. Við rannsókn kom i
ljós, að flugstjórinn hafði verið
undir áhrifum áfengis.
En þessi staðreynd var
mönnum ekki kunn I Bangkok, og
nú fór að skjóta upp spurningum
eins og: „Var á ferðinni einhver
brjálæðingur, sem kom íyrn
sprengjum I flugvélunum á
Don Muang-flugvellinum? — Eða
var þetta aðeins röð óhappatil-
feiia? Ef ti! vill var um að ræða
lið i pólitiskri aðgerð?”
Blöðin I Bangkok, höfuðborg
Thailands, ásökuðu yfirvöld fyrir
slysið. Héldu þau þvi fram, að
öryggiseftirlitið á flugvellinum i
Bangkok hefði verið vanrækt,
þrátt fyrir fjölda flugrána og of-
beldisaðgerða i sambandi við flug
um allan heim. En brátt sljákkaði
I blöðunum. Það var ekki
hægt að ásaka neinn sérstakan.
Engu að siður var komið fyrir
elektrónísku tæki I flughöfninni i
Bangkok, sem gat úrskurðar,
hvort farþegar hefðu málmhluti i
fórum sinum. Ennfremur var
likamsleit hert, til mikillar
gremju mörgum ferðamönnum,
em tóku þá áhættu að smygla
ævafornum Búddha-styttum með
sér heim.
...á slóðinni i næturlifi
Bangkok.
Glæpadeild lögreglunnar i
Thailandi („Crime Suppression
Division” eða CSD) tók rann-
sóknina I Bangkok i sinar hendur.
CSD er nokkurs konar thailenzk
FBI (U.S.A.). Lögreglu-
foringjanum Charuk Mekavichai
i deild 1 i CSD var falið að stjórna
rannsókninni. Charuk er fastur
lesandi „Playboy” og á skrifstofu
sinni hefur hann mynd af sjálfum
sér, þar sem hann tekur I hendina
á Richard Nixon forseta Banda-
rikjanna. Og Charuk þessi hafði
mjög góð sambönd i næturlífi
Bangkok.
Og það var einmitt á þeim slóð-
um, að Charuk komst á hin fyrstu
eiginlegu spor morðingjans. Spor,
sem eftir 11 vikna erfiða rann-
sókn, leiddu síðan til þess, að upp-
lýstur var „mesti glæpur, er við
höfum komizt i kast við til
þessa.”
Framhald á bls 34
/
Fyrri kona Somchais, Alice, brestur i grát. Dóttir hennar fórst i flugslysinu
Lögregluforinginn Charuk, er stjórnaði liigreglurannsókn fjöldamorfts-
ins / flugslyssins. Ilér er hann aft rannsaka snyrtitöskuna, seni kom
m jög vift siigu.
bcdid
að skoða nýja DAS-húsið að Espilundi 3, Garðahreppi
Hósið verður til sýnis daglega frá kl. 6—10
laugardaga og sunnudaga frá kl. 2—10
frá 7. apríl til 2. mai
Húsið er sýnt með öllum húsbúnaði
dae