Tíminn - 08.04.1973, Síða 33
Sunnudagur 8. april 1973
TÍMINN
33
Don Corleone ásamt sonum sinum þrem.
fékk hin eftirsóttu verðlaun, sem
móður hennar Judy Garland,
tókst aldrei að fá, enda þótt hún
væri eitt sinn útnefnd. Faðir Lizu
er hinn kunni Hollywood-kvik-
myndaleikstjóri Vincent Minelli.
Judy Garland lézt i London árið
1969, eftir að hún hafði tekið inn
of mikið af eiturlyfjum, af slysni.
Hún sagði eitt sinn um dóttur
sina, Lizu: ,,Ég held, að hún hafi
ákveðið þegar i móðurkviði, að
gerast mikil kvikmyndaleikkona.
Hún sparkaði svo mikið”.
Liza Minelli kom fyrst fram i
einni af myndum móður sinnar,
er hún var aðeins 2 1/2 árs gömul.
Sautján ára fór hún með aðalhlut-
verkið i söngleik i New York.
Fyrsta hlutverk hennar i kvik-
myndum var árið 1968, er hún lék
ástsjúku unglingsstelpuna Pookie
i samnefndri mynd. Fyrir það
hlutverk var hún einnig tilnefnd
til Óskarsverðlauna (1969), en
fékk þau þó ekki. Og nú fær hún
sem sagt Óskarsverðlaunin fyrir
túlkun sina á kabaretsöngkonunni
Sally Bowles i Cabaret. Þessi
mynd hefur gert geysilega lukku
um allan heim siðustu mánuðina,
og innan skamms verður hún
sýnd hér i Hafnarbiói.
Norska kvikmyndaleikkonan
Liv Ullmann (hefur leikið i mörg-
um myndum Ingimars Bergman)
var útnefnd til verðlauna fyrir
bezta kvenhlutverkið, fyrir túlk-
un hennar i myndinni Ctflytjend-
urnir (i islenzkri þýðingu
„Vesturfararnir”), sem er sú
fyrri af tveim myndum, sem
gerðar hafa verið eftir skáldsögu
Vilhelms Bobergs um búflutninga
Svia til N-Ameriku á siðustu öld.
En Liza „rændi” sem sagt verð-
laununum af Liv, og má ætla, að
margir Norðurlandabúar og fleiri
séu ekkert alltof hýrir yfir.
Þetta er i annað sinn, sem
Marlon Brando fær Óskarsverð-
laun fyrir bezta karlmannshlut-
verk ársins. í fyrra skiptið var
það fyrir túlkun hans i myndinni
On The Waterfront.fyrir 19 árum.
Það bjuggust flestir við, að
Brando fengi verðlaunin i þetta
sinn fyrir túlkun sina i Godfather,
en sú mynd hefur á aðeins einu
ári slegið öll sýningamet. Hann er
i dag 48 ára gamall og virðist ört
hækkandi stjarna ,,á himni kvik-
myndanna”. Nú siöast hefur hann
slegið i gegn fyrir túlkun sina á
ameriska, miðaldra eklinum i
hinni geysidjörfu mynd Siðasti
tangó i Paris (Last Tango in
Paris),þar er hann leikur á móti
kroppfagurri stúlku, Maria
Schneider. (Stp. tók saraan.)
Cr beztu mynd ársins 1972 (aö dómi Óskarsverðlaunanefndar), „The
Godfalher”. Og hér sjást feðgar i þungum þönkuin, sjálfur Guð-
faðirinn, Don Corleone og sonur hans og eftirlæti Michael. Fyrir hlut-
verk sitt sem Guðfaðirinn fckk Marlon Brando Óskarsverölaunin 1972
sem bezti karlleikarinn I aðalhlutverki. (En liann hafnaði þeim)
Michael lék ungur leikari, Al Pacino, aldcilis snilldarlega, svo að
skugga brá á sjálfan Brando á köflum. V'akti það furðu margra, að
Pacino skyldi ekki fá Óskarinn fyrir aukahlutverk. Hann var þó út-
nefndur til þess.
Guðföðurfjölskyldan að snæðingi
mmrnmmmmmmmm
Páskaegg fyrir
fjölskylduna:
Skióaferó meó
Flugfélagi Islands
tíl Akureyrar
og ísafjaróar
Bjóðum hjónum, fjölskyldum, námsmönnum og hópum sérstök vildarkjör.
Kynnið yður sérfargjöld Flugfélagsins.
Allar upplýsingar veita ferðaskrifstofurnar og Flugfélagið.
^WFLUGFÉLAG ÍSLANDS
'Sm' b.lÓNIIRTA - HRAFll - bZPrtlKini