Tíminn - 08.04.1973, Page 40
r
MERKIÐ.SEM GLEÐUR
HHtumst i kaupfélaginu
v.
Gistió á góóum kjörum
<r?
_GOÐI
L Jk Jyi'ir f/óöan mtti
$ KJÖTIÐNADARSTÖÐ SAMBANDSINS
Steingrímur
J. Þorsteins-
son látinn
Steingrimur J. Þorsteinsson,
prófessor, lézt á Borgarspitalan-
um rétt fyrir miðnætti á föstu-
dagskvöld. Kvöldið áður varð
Steingrimur fyrir bil á Suðurgötu
og höfuðkúpubrotnaði.
Steingrimur var 62 ára gamall.
Hann var fæddur á Akureyri og
lauk þaðan stúdentsprófi 1932.
Tjarnargata 10. Undir þessu liúsi er Skothúsbrunnurinn, sem orðinn er á annað hundraö ára ganiall
Timamyndir: Róbert
Framhald á bls. 3 7.
SKOTHÚSBRUNNURINN VEL VARÐ-
VEITTUR UNDIR TJARNARGÖTU 40
VARÐVEIZLA gamalla menn-
ingarvcrðinæta er rnjög á dag-
skrá um þessar mundir og verða
jafnvel að hitamáli og fólk
skiptist i andstæðar fylkingar
með eða móti niöurrifi gamalla
húsasamstæðna, halda útifundi
og fara blysfarir til að vekja at-
hygli á skoðunum sinum og stykja
málstaðinn. Skoðanaskipti, um,
hvort rifa eigi Bernhöftstorfuna
eða láta han óáreitta hafa farið
fram i öllum fjölmiðlum og
virðist ekkertlát á þeim einstæða
áhuga á skipulagi þessara ein-
staka borgarhluta. þótt allir láti
sér i léltu rúmi liggja, hvernig
aðrir hlutar borgarinnar eru
rifnir niður eða byggðir upp.
Nóg um það. Viðar eru menn-
ingarsöguleg verðmæti en við
Lækjargöt’. og betur varðveitt. t
kjallar hússins nr. 40 við Tjarnar-
götu, sem löngum var nefndt
Krabbehúsið, er djúpur brunnur
sem i er hiö ágætasta neyzluvatn,
og að þvi er næst verður komizt er
þarna Skothúsbrunnurinn gamli,
og var húsið byggt yfir hann á
sinum tima, eða árið 1908, en
brunnurinn er miklu eldri, þvi
Skotfélagið var i fullum blóma
árið 1860, og var brunnurinn
grafinn fvrir skotglaða heldri-
menn Reykjavikur, þvi sjálfsagt
hafa þeir stundum verið kverka-
þurrir og eins hafa þeir þurft að
skoia af sér púðurreykinn eftir
vei heppnað skytteri.
En fleiri höfðu not af brunn-
inum, og þá kannski fyrst og
fremst Melshús, sem stóðu i
brekkunni svolitið norðar. Er þá
rómantikin komin heldur betur i
spilið, þvi Magnús i Melshúsum,
og hans fólk, er fyrirmyndin að
grásleppukariinum i Brekkukoti
& Co, að þvi er sagt er.
Engin hætta er á að brunnurinn
góði verði ásetningarefni borgar-
skipuleggjara og þeirra sem
þekkja hin einu sönnu verðmæti.
Þinglýstir eigendur Tjarnargötu
40 og þar með brunnsins hyggjast
hvorki fylla hann né láta flytja
upp i Árbæ. Brunnurinn verður á
sinum stað áfram og er liklega
hinn eini sinnar tegundar i
Reykjavikurborg. Eigendur
hússins eru þeir Magnús G. Jóns-
son, menntaskólakennari sem
býr á efri hæð hússins, og Flosi
ólafsson, leikari m.m.
Er Timinn hafði tal af hinum
siðarnefnda til að fræðast um
þetta einstæða mannvirki i
ibúðarhúsinu, sagðist hann vera
nýbúinn að kaupa sinn hluta húss-
ins og ekki vita gjörla um upp-
runa brunnsins, en húsið hafi
Thorvald Krabbe, vitamálastjóri,
byggt 1908, og var þar fyrsta
vitamálaskrifstofan hér á landi
og er hún enn óbreytt með viða-
miklum harðviðarþiljum,
skápum og útskurði, sem er hæfi-
leg umgerð þeirra andlegu starfa
sem nú eru iðkuð i stofunni. Um
brunninn sagði Flosi, að hann hafi
strax vakið athygli sina og sinna
er hann flutti i húsið og hafi
Ólafur sonur sinn mælt hann. Er
brunnurinn kringlóttur, meter i
þvermál. Hann er hlaðinn úr
grjóti en efst er hann múr-
húðaður. Dýpt er 3 metrar frá
gólfi, en kjallarinn er töluvert
niðurgrafinn. Hæð frá gólfi að
vatnsborði er 1,27 m. Tré-
hlemmur á hjörum er yfir brunn-
inum. Hlemmurinn er ekki alveg
kringlóttur þvi veggur nær yfir
hluta opsins, sem sýnir að brunn-
urinn var þarna fyrir er húsið var
byggt, en hann ekki grafinn i
gólfið. Vatnið er kalt, tært og
gott, nema það er þægilegra að
skrúfa frá krana uppi i eldhúsinu
og fá þar rennandi Gvendar-
brunnavatn en paufast niður i
kjallara eftir eigin brunnvatni.
Brunnurinn er beint undir eld-
húsi neðri hæðar hússins. Er
gengið úr eldhúsi niður að brunn-
inum og hafa verið mikilþægingi
fyrir vinnukonur þáverandi vita-
málastjóra að þurfa ekki að fara
út fyrir hússins dyr eftir vatni.
Byrjað var að leggja vatnsveitu
i Reykjavik árið 1907 og var hún
tekin i notkun 1909. Var vatn þá
leitt i meginhluta byggðarinnar,
sem þá var.
Lárus Sigurbjörnsson er manna
kunnastur háttum og venjum
Reykvikinga á fyrri tið. Timinn
bar undir hann hvort það hafi
verið algent að brunnar hafi
verið grafnir innanhúss áður en
vatnsveitan var lögð. Kvað hann
Framhald á 37. siðu.
Séð ofani brunninn, sem er þriggja metra djúpur. Niður að vatnsborði
eru 127 sentimetrar.
Flosi ólafsson leikari við brunninn og er hann annar eiganda þessa
menningarverömætis.