Fréttablaðið - 18.08.2004, Blaðsíða 24
18. ágúst 2004 MIÐVIKUDAGUR4
!
! "
#
$%&
!
' # ( )!*++%,&&
Innritun
fyrir haustönn 2004 stendur yfir
dagana 19. - 21. ágúst þ.m.
Innritun í Öldungadeild MH fyrir haustönn 2004 stendur
yfir fimmtudaginn 19. ágúst kl. 13.00 - 18.00,
föstudaginn 20. ágúst kl. 13.00 - 18.00
og laugardaginn 21. ágúst kl. 10.00 - 14.00.
Mögulegt er að innrita í gegnum síma eða vefinn.
Sjá nánar á heimasíðu MH.
Greitt er sérstaklega fyrir mat á fyrra námi.
Skólagjöld ber að greiða við innritun.
Fjölbreytt nám í boði
Fjöldi námsáfanga í boði m.a. í dreifnámi í raungrein-
um, tungumálum og samfélagsgreinum undir leiðsögn
reyndra og vel menntaðra kennara.
Öldungadeild
Menntaskólans við Hamrahlíð
Öldungadeild www.mh.is
Verkmenntaskóli Austurlands í Fjarðabyggð
getur bætt við nemendum næsta skólaár
m.a.í grunndeild rafiðna, málmiðnanám
(þ.á.m. framleiðslutækninám í samvinnu
við ALCOA/Fjarðarál), sjúkraliðanám og á
bóknámsbrautir (náttúrufræðabraut og
félagsfræðabraut).
Við skólann er starfrækt heimavist og
mötuneyti.
Áhugasamir eru beðnir að hafa samband
við skrifstofu skólans í síma 477-1620 eða
með tölvupósti va@va.is
Frekari upplýsingar eru að finna á
heimasíðu skólans va.is
Eftirlætiskennarinn:
Elsku drengurinn, slappaðu
af og syngdu eins og maður
„Það liggur alveg ljóst fyrir hver
er uppáhaldskennarinn minn fyrr
og síðar, það er meistari Guð-
mundur Jónsson,“ segir Ólafur
Kjartan Sigurðarson óperusöngv-
ari, sem hefur getið sér gott orð
bæði hér heima og erlendis.
„Guðmundur er einn af fáum
kennurum sem ég hef kynnst sem
bera takmarkalausa virðingu
fyrir þeirri þekkingu sem þeir
eru að miðla. Ekki spillti svo nef-
tóbakið fyrir sem hann kenndi
mér snemma að það er hverjum
söngvara bráðnauðsynlegt. Ólíkt
sumum kennurum sem ég hef
verið hjá hefur Guðmundur haft
það að leiðarljósi að söng, sem
hann kennir manna best, sé ekki
hægt að kenna heldur bara læra.
Hann sagði við mig í fyrsta tím-
anum að regla númer eitt í söng-
námi væri að trúa aldrei kennar-
anum sínum. Þetta er held ég eitt
besta sjónarmið sem kennari get-
ur haft. Til að læra söng og
stunda verður söngvarinn að vera
efasemdarmaður, hlusta á allt en
taka svo bara það sem hentar.
Fimm kennarar geta haft fimm
mismunandi skoðanir og þú verð-
ur að velja. Kennara verðum við
hins vegar að hafa því söngvarinn
getur ekki verið eigin gagnrýn-
andi. Við verðum því að hafa eyru
nálægt okkur sem við getum
treyst og eyrun á Guðmundi Jóns-
syni eru einmitt þess háttar eyru.
Maðurinn er kominn á níræðis-
aldur, er enn að kenna og syngur
eins og engill. Guðmundur er svo
hógvær og ber svo mikla virðingu
fyrir faginu að hann hefur vísað
efnilegu fólki frá sér sem hann
telur að myndi græða meira á því
að fara annað. Í mínu tilfelli rak
hann mig til útlanda þar sem ég
hafði ekki tíma til að stunda söng-
inn almennilega hérna heima
vegna vinnu. Þegar ég fékk sím-
tal frá Royal Academy í London
þar sem spurt var hvort ég væri
tilbúinn til að koma í skólann
sagði hann „nei, þú ert ekkert til-
búinn en drífðu þig út því annars
gerist ekki neitt“. Guðmundur er
líka boðberi hóflegs kæruleysis
og ég held því fram að hann hafi
ekki síður kennt mér um lífið,
tilveruna og barnauppeldi en
söng. Þessi lífsspeki rúmast í
setningunni: „Elsku drengurinn
minn, slappaðu af og syngdu
eins og maður.“ Ég minnist þess
ekki að hafa stigið á svið án þess
að þessi setning hafi flogið um
hugann,“ segir Ólafur Kjartan
en eins og alþjóð veit hefur hann
verið tíður gestur á óperusvið-
inu með nestið frá Guðmundi
Jónssyni í farteskinu. ■
Neftóbak er allra söngmeina bót.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Yddari
Strokleður
Reglustika
Tússlitir
BlýanturTrélitir
Penni
Ómissandi í pennaveskið