Fréttablaðið - 18.08.2004, Blaðsíða 31
Á bekknum: Birkir
Kristinsson (ÍBV),
Arnar Grétarsson
(Lokeren), Helgi Sig-
urðsson (AGF),
Brynjar Björn
Gunnarsson
(Watford), Arnar
Þór Viðarsson
(Lokeren),
Jóhannes Karl
Guðjónsson
(Leicester),
Veigar Páll
Gunnarsson
(Stabæk),
Kristján
Sigurðsson
(KR) og
Gunnar
Þorvaldsson
(ÍBV).
Á bekknum: Christian
Abbiati (AC Milan),
Alessandro Birindelli
(Juventus), Giuseppi
Favalli (Inter), Nicola
Legrottaglie
(Juventus), Simone
Barone (Palermo),
Aimo Stefano Diana
(Sampdoria),
Sergio Vopli
(Sampdoria),
Francesco Flachi
(Sampdoria),
Fabrizio Miccoli
(Juventus) og
Luca Toni
(Palermo).
Hundrað fjölmiðlamenn
Ítalskir fjölmiðlar sýna leik Íslands og
Ítalíu mikinn áhuga en um hundrað
fjölmiðlamenn munu koma til lands-
ins í tilefni hans. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem fjölmiðlafólk flykkist til
landsins en á annað hundrað fjöl-
miðlamenn komu til landsins þegar
Íslendingar mættu Skotum og síðar
Þjóðverjum í undankeppni HM. Þetta
er hinsvegar mesti fjöldi sem mætt
hefur til að fylgjast með vináttuleik.
Flestir frá Juve
Aðeins tíu leikmenn sem léku með
Ítölum á Evrópumótinu í sumar eru í
landsliðshópnum sem kominn er
hingað til lands. Þó nokkrir leikmenn
eru meiddir þar á meðal Francesco
Totti, Christian Vieiri, Fabio Cannavaro
og Antonio Cassano. Ítölsku leik-
mennirnir eru margir hverjir ungir en
eru taldir framtíðarleikmenn lands-
liðsins. Flestir leikmannanna koma frá
Juventus, sex talsins, AC Milan og
Sampdoria eiga þrjá leikmenn, Inter,
Valencia og Palermo tvo og Lazio og
Roma einn. Mikla athygli velur valið á
leikmönnunum frá Sampdoria og
Palermo en því er spáð að þau geti
orðið spútnikliðin í Serie A í vetur.
Del Piero í kuldann
Ítalskir fjölmiðlar hafa mikið fjallað
um að Alessandro Del Piero hafi ekki
verið valinn í landsliðshópinn.
Marcello Lippi, þjálfari Ítala, hefur
margoft lýst því yfir að Del Piero sé
einn besti leikmaður heims. Hann
ákvað hins vegar að skilja Del Piero
eftir heima þar sem hann telur hann
ekki í nógu góðu formi. Ýmsir telja að
önnur ástæða sé sú að Lippi vilji slá á
þær raddir sem uppi voru um að gull-
drengurinn hans fengi áfram
endalaus tækifæri með landsliðinu en
Lippi hélt oft hlífiskildi yfir Del Piero
hjá Juventus.
Spennandi verður að sjá hvort
Francesco Flachi, leikmaður Samp-
doria, fái tækifæri í dag en hann þykir
einn skemmtilegasti framherji Ítala.
Flachi þessi skoraði meðal annars tvö
mörk með hjólhestaspyrnu á síðustu
leiktíð og lagði upp tvö – með hjól-
hestaspyrnu.
Háleit markmið
Marcello Lippi, þjálfari ítalska lands-
liðsins, stefnir að því að ná heims-
meistaratitlinum í Þýskalandi árið
2006. Lippi hefur sagt að leikurinn
gegn Íslendingum sé mikilvægur und-
irbúningur til að ná því markmiði en
Ítalir mæta Norðmönnum í fyrsta leik
undankeppninnar. Lippi er enginn ný-
græðingur í boltanum en hann hefur
meðal annars þjálfað Juventus, Samp-
doria, Inter og Napólí.
Eignast „sína“ menn
Lippi hefur lagt mikla áherslu á að
skapa anda hjá landsliðinu sem líkist
því sem gerist hjá félagsliðum. Af
þeim sökum hefur hann valið leik-
menn sem þekktir eru fyrir mikla
baráttu og einnig gefið minni
spámönnum tækifæri í þeirri von að
þeir leggi allt í sölurnar með land-
sliðinu, nokkuð sem ofurstjörnurnar
hafa verið ásakaðar um að gera ekki.
Sagt er að hann sé með valinu á
framherjunum Fabrizio Miccoli og
Francesco Flachi að leita sér að nú-
tímaútgáfu af „Toto“ Schilacchi,
Sikileyingnum smávaxna sem sló
óvænt á gegn á HM 1990. Með valinu
á Fabio Bazzani og Luca Toni er hann
eflaust að skoða hvort þeir gætu leyst
af Bernardo Corradi eða Christian
Vieri sem stærri maðurinn í fram-
línunni en Lippi kýs eins og margir
ítalskir þjálfarar að spila með stóran
mann fremst, studdan af öðrum
minni og hreyfanlegri framherja og
með framliggjandi miðjumann að
baki þeirra.
[ Ítalír mæta í Dalinn ]
Þórður Guðjónsson til vinstri og Heiðar
Helguson fyrir neðan.
Hermann Hreiðarsson fyrir ofan, Eiður
Smári Guðjohsen til hægri og Rúnar
Kristinsson á litlu myndinni að ofan til
hægri.
Alessandro Nesta verður fyrirliði ítalska
liðsins í leiknum gegn Íslandi.
Gianlugi Buffon fyrir ofan og Gennaro
Gattuso er á myndinni fyrir neðan.
3MIÐVIKUDAGUR 18. ágúst 2004
Árni Gautur Arason
29 ára – Valerenga – 37 leikir
Ívar Ingimarsson
27 ára – Reading – 16 leikir
Pétur Marteinsson
31 árs – Hammarby – 31 leikur/1 mark Hermann Hreiðarsson
30 ára – Charlton – 55 leikir/3 mörk
Ólafur Örn Bjarnason
29 ára – Brann – 17 leikir
Rúnar Kristinsson
35 ára – Lokeren – 103 leikir/3 mörk
Gylfi Einarsson
26 ára – Lilleström – 11 leikir
Eiður Smári Guðjohnsen
26 ára – Chelsea – 29 leikir/9 mörk
Heiðar Helguson
27 ára – Watford – 28 leikir/5 mörk
Þórður Guðjónsson
31 árs – Bochum – 53 leikir/13 mörk
Indriði Sigurðsson
23 ára – Genk – 17 leikir
Fabio Bazzani
28 ára – Sampdoria
Marco Di Vaio
29 ára – Valencia
Gianluigi Buffon
26 ára – Juventus
Marco Materazzi
31 árs – Internazionale
Gianluca Zambrotta
27 ára – Juventus
Alessandro Nesta
28 ára – AC Milan
Massimo Oddo
28 ára – Lazio
Stefano Fiore
29 ára – Valencia
Manuele Blasi
24 ára – Juventus
Gennaro Gattuso
26 ára – AC Milan
Simone Perrotta
27 ára – Roma
Líklegt lið Íslands
Líklegt lið Ítalíu
Hverjir byrja leikinn í kvöld?
Fréttablaðið telur að Gylfi Einarsson fái tækifærið og Rúnar Kristinsson komi aftur inn í byrjunarliðið í leiknum gegn Ítölum í kvöld. Samkvæmt
því liði munu þrír menn sem byrjuðu í 1–6 tapinu gegn Englandi missa stöðu sína í liðinu.