Fréttablaðið - 18.08.2004, Blaðsíða 52
FÓTBOLTI Marcello Lippi hitti blaða-
menn fyrir æfingu ítalska lands-
liðsins í Laugardal í gær.
„Mitt meginmarkmið er að
skapa félagsanda hjá landsliðinu
og ég vil sjá liðsheild sem berst
saman í þessu. Þess vegna ætlast
ég til þess frá fyrstu mínútu í
leiknum gegn Íslendingum að
menn taki hlutverk sitt alvarlega
og af ástríðu. Þetta á að svara því
fullnægjandi hvort ég taki þennan
leik alvarlega, sagði Marcello
Lippi, þjálfari Ítala, í gær.
„Íslenska liðið er mjög erfitt
viðureignar, ég hef horft á þrjá
leiki þeirra á myndbandi, gegn
Þjóðverjum, Færeyingum og
Lettum, og þetta er ekki lið sem
gefur neitt eftir. Íslendingar eiga
marga góða leikmenn, ég horfði á
Guðjohnsen í sjónvarpinu um
helgina gegn Manchester United
og það vita allir hvað hann getur.
Einnig þekki ég til annarra leik-
manna Íslands, sérstaklega þeirra
sem leika við góðan orðstír í
Englandi og Belgíu.“
Lippi sagðist ekkert vera
sérstaklega spenntur fyrir leikn-
um á morgun, þetta væri byrjunin
á löngu ferli og hann vissi það að
róðurinn ætti töluvert eftir að
þyngjast og álagið á hann aukast
þegar undankeppni HM hefst.
„Ég get ekki kvartað yfir álag-
inu, mér finnst forréttindi að fá að
vinna við það sem mér finnst
skemmtilegast af öllu og það er
mikill heiður að stýra landsliði
Ítala.“
Ítalskur blaðamaður sem
spurði Lippi um hvort það yrði
ekki ný tilfinning og spennandi að
heyra þjóðsönginn á undan
leiknum í dag, fékk smá
sögukennslu frá þjálfaranum.
„Þið eruð sennilega búnin að
gleyma því en ég lék 3 landsleiki
með undir 23 ára landsliðinu á
sínum tíma og þjóðsöngurinn var
líka leikinn í þá daga!“
einarlogi@frettabladid.is
06.55 Ólympíuleikarnir í Aþenu
á RÚV. Bein útsending frá keppni í
sundi þar sem Ragnheiður Ragn-
arsdóttir er á meðal keppenda.
08.20 Ólympíuleikarnir í Aþenu
á RÚV. Bein útsending frá leik Ís-
lendinga og Slóvena í handbolta.
10.10 Ólympíuleikarnir í Aþenu
á RÚV. Beint frá keppni í 200
metra fjórsundi.
12.50 Ólympíuleikarnir í Aþenu
á RÚV. Bein útsending frá úrslita-
keppni í kúluvarpi kvenna.
15.40 Ólympíuleikarnir í Aþenu
á RÚV. Bein útsending frá strand-
blaki kvenna.
16.25 Ólympíuleikarnir í Aþenu
á RÚV. Bein útsending frá úrslita-
keppni í sundi.
19.15 Landsleikur í fótbolta á
RÚV. Bein útsending frá leik Ís-
lands og Ítalíu sem fram fer á
Laugardalsvelli.
19.30 Körfubolti á Sýn. Banda-
ríkin og Grikkland mætast í körfu
á Ólympíuleikunum.
21.00 Landsleikur í knattspyrnu
á Sýn. England og Úkraína.
22.30 Ólympíukvöld á RÚV. Í
þættinum er fjallað um helstu við-
burði á Ólympíuleikunum í Aþenu.
22.40 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima og
erlendis.
23.00 Ólympíuleikarnir í Aþenu
á RÚV. Endursýndur leikur Íslend-
inga og Slóvena í handbolta frá því
um morguninn.
23.55 US PGA Tour á Sýn.
FÓTBOLTI Það verður stórhátíð á
Laugardalsvelli í kvöld þegar ís-
lenska knattspyrnulandsliðið tekur
á móti því ítalska klukkan 19.15 og
er þetta án efa stærsti vináttu-
landsleikur sem fram hefur farið á
Laugardalsvellinum hingað til.
Knattspyrnusamband Íslands hef-
ur verið með markvissa herferð í
þeim tilgangi að slá 36 ára gamalt
aðsóknarmet á Laugardalsvellin-
um en til þess að það takist þurfa
að koma fleiri en 18.200 áhorfend-
ur á leikinn.
Fyrir utan leikinn sjálfan verð-
ur heljarinnar dagskrá í boði fyrr
um daginn og þar ættu flestir að
finna eitthvað við sitt hæfi.
Fréttablaðið sló á þráðinn til Ás-
geirs Sigurvinssonar, annars af
þjálfurum íslenska landsliðsins, og
spurði hann út í leikinn.
„Þetta lítur allt vel út og þeir
leikmenn sem hafa átt að stríða við
smávægileg meiðsli, eins og Arnar
Grétarsson og Arnar Þór Viðars-
son, eru búnir að ná sér og það virð-
ist sem allir leikmenn verði klárir í
slaginn.“
Aðspurður segir Ásgeir að góð
stemning ríki í hópnum og almennt
hlakki menn til þessa stóra verk-
efnis:
„Ég er að vona að þetta verði
einfaldlega söguleg stund, bæði
hvað varðar áhorfendafjöldann og
leikinn sjálfan en það er ekki á
hverjum degi sem íslenska lands-
liðið mætir svo stórri og sterkri
knattspyrnuþjóð. Mér finnst alveg
frábært hvað KSÍ hefur gert mikið
úr þessum leik og það er alveg full
ástæða til þess. Við finnum vel
fyrir stemningunni úti í þjóðfélag-
inu sem verið hefur að myndast frá
því að stefnan var sett á að slá að-
sóknarmetið og ætlum að gera allt
sem við getum til að vera landi og
þjóð til sóma.
Það er spenna í leikmönnum en
fæstir af þeim hafa upplifað það að
spila fyrir fleiri en 7 þúsund manns
á Laugardalsvellinum. Hér áður
fyrr var ekki óalgengt að landsliðið
spilaði fyrir 14-15 þúsund manns
og þá myndaðist oft geysileg
stemning. Þessi leikur nú verður
því ný upplifun fyrir marga leik-
menn okkar og ég vona innilega að
það náist að slá aðsóknarmetið.“
Aðspurður um leikinn sjálfan
sagðist Ásgeir búast við því að Ítal-
ir myndu pressa stíft frá byrjun:
„Marcello Lippi er þekktur fyrir að
vilja láta pressa manninn með bolt-
ann afar stíft og það hefur alltaf
þótt erfitt að leika gegn liðum und-
ir hans stjórn. Við verðum að taka
fast á þeim en um leið vera mjög
þolinmóðir og snöggir að sækja
þegar færi gefst. Við ætlum að
sýna þennan rétta karakter sem
einkennt hefur íslenska landsliðið í
gegnum árin – að menn séu tilbún-
ir að berjast í 90 mínútur og gefa
sig allan í þetta,“ sagði Ásgeir og
bætti við:
„Það verður virkilega gaman að
takast á við þetta verkefni því
þetta ítalska lið sem kemur hingað
er samansafn af toppfótboltamönn-
um og við vitum alveg að þeir
verða á fullu. Þeir þurfa að sýna sig
og sanna fyrir nýjum landsliðs-
þjálfara og það er engin hætta á að
Ítalarnir mæti í leikinn með hálf-
um hug.“ sms@frettabladid.is
20 18. ágúst 2004 MIÐVIKUDAGUR
Við hrósum
...Valsstelpunum fyrir frábæra knattspyrnu og lifandi og
skemmtileg fögn í Landsbankadeild kvenna í sumar.
Valsstelpurnar hafa fimm stiga forystu í deildinni þegar tveir
leikir eru eftir. Þær hafa einnig sýnt góð tilþrif í fögnunum
sem nú eru farin að verða djarfari en oft áður.
„Ég nenni ekki að lemja mig í
hausinn yfir þessu.“
Lára Hrund Bjargardóttir eftir að hún kom upp úr
lauginni í Aþenu eftir 200 metra fjórsund. sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
15 16 17 18 19 20 21
Miðvikudagur
ÁGÚST
Vissir þú...
...að Rúnar Kristinsson sem var kallaður
inn í landsliðshópinn fyrir leikinn gegn
Ítölum mun leika sinn 104. leik fyrir
Íslands hönd.
Aðeins í nokkra daga!
20% - 50%
afsláttur af ákveðnum vörum
F a x a f e n i 8 • 1 0 8 R e y k j a v í k • s í m i 5 3 4 2 7 2 7
Nýtt
kortatímabil
Láttu sjá þig
Tilboðsv
erð
5.995.-
Flís windstopper
með rennilás undir ermum.
Fáanlegar í XS til XXXL.
ÚTSALA
Okkar rétta andlit
Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari segir leikinn gegn Ítölum á Laug-
ardalsvelli í kvöld vera sögulega stund. Allir leikmenn klárir í slaginn.
Marcello Lippi, þjálfari ítalska landsliðsins, fyrir leikinn gegn Íslandi í kvöld:
Tökum leikinn alvarlega
LIPPI Í LAUGARDALNUM Marcello Lippi, landsliðsþjálfari Ítala, sést hér stjórna æfingu
liðsins í Laugardalnum í gærkvöld. Fréttablaðið/E.Ól.
ÁSGEIR OG LOGI NJÓSNA Landsliðsþjálfarnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson fylgjast með æfingu ítalska landsliðsins í Laugar-
dalnum í gærkvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.15 í kvöld. Fréttablaðið/E.Ól.