Fréttablaðið - 18.08.2004, Side 53

Fréttablaðið - 18.08.2004, Side 53
FÓTBOLTI Íslenska U-21 árs karla- landsliðið í knattspyrnu mætir Eistlendingum í dag í vináttulands- leik. Leikurinn fer fram í Eistlandi og er liður í undirbúningi fyrir undankeppni Evrópumótsins sem hefst í næsta mánuði. „Leikurinn leggst vel í mig. Þetta er fínn hópur og ég ætla að fara yfir nokkur atriði með hópn- um,“ sagði Eyjólfur Sverrisson, þjálfari liðsins, í samtali við Frétta- blaðið. „Við munum spila sama kerfi, 3-5-2, og A-landsliðið er að gera svo drengirnir verði tilbúnir að taka við þeim stöðum í framtíð- inni.“ Eyjólfur segist sjá nokkra fram- tíðarlandsliðsmenn í hópnum. „Það er einmitt á þessum árum sem þessir strákar eru að taka sín stærstu stökk. Það er síðan í þeirra höndum hvernig þeir spila úr því,“ segir Eyjólfur. Þrír leikmenn í íslenska hópn- um leika með erlendum liðum; þeir Hannes Sigurðsson með Víking í Stafangri, Ólafur Ingi Skúlason með Arsenal og Sölvi Geir Ottesen með Djurgaarden í Svíþjóð. Spurð- ur hvort það muni miklu að hafa hálfatvinnumenn með í hópnum sagði Eyjólfur: „Það skiptir engu máli um gæði leikmanna hverju sinni hvort þeir spili með liðum hér heima eða erlendis. Strákarnir sem spila hér heima eru í fínu formi og þeir eru alveg jafn mikilvægir lið- inu og hinir. Það eru allir jafn mik- ilvægir í svona leikjum,“ segir þjálfarinn. Íslenska U-21 árs liðið mætir Búlgörum í fyrsta leik undan- keppninnar 3. september. Eyjólfur segist lítið vita um verðandi and- stæðinga í riðlakeppninni. „Fyrst þurfum við að meta stöðuna og hvernig liðið er,“ segir Eyjólfur. Ætla má að andstæðingar Íslands séu mjög sterkir enda erfiður rið- ill. „Það er mikill efniviður hjá öll- um þessum liðum en við tökum bara einn leik fyrir í einu,“ segir Eyjólfur, sem sjálfur hefur úr miklum efnivið að moða. Íslenska U-21 árs liðinu gekk ekki sem skyldi í undankeppni heimsmeistaramótsins á síðasta ári en það náði ekki í stig í riðlakeppn- inni. Liðið hefur ekki komið saman í næstum heilt ár. „Þessir strákar hafa nóg að gera með sínum félags- liðum og það er varla hægt að bæta miklu meira á þá. Það er lítill tími til annars,“ segir Eyjólfur, sem væri þó vissulega til í að ná hópn- um oftar saman. „Aðstæður leyfa það því miður ekki alltaf en við ætlum að reyna að standa okkur í undankeppni Evrópumótsins.“ ■ Allir leikmenn jafn mikilvægir Íslenska U-21 árs liðið í knattspyrnu karla mætir Eistum í vináttulandsleik í dag. Liðið hefur ekki komið saman í ár. Þjálfarinn segir liðið ætla að standa sig í undankeppni Evrópumótsins. MIÐVIKUDAGUR 18. ágúst 2004 21 Í ELDLÍNUNNI Kjartan Henry Finnbogason úr KR og Sölvi Geir Ottesen eru báðir í U-21 árs liði Íslands sem mætir Eistum í dag. Sölvi Geir lék áður með Víkingi en er nú hjá Djurgaarden í Svíþjóð. Fréttablaðið/Stefán Fyrirliðinn ráðleggur: Becks varar Owen við FÓTBOLTI David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins og leikmaður Real Madrid, lét hafa eftir sér að það yrði allt annað en auðvelt fyrir hinn nýkomna Michael Owen að komast í byrjunarlið Real Madrid á komandi tímabili: „Hann þarf að hafa mikið fyrir því að vinna sér sæti í liðinu enda öllum ljóst að það er erfitt að komast í byrjunarliðið hjá liði eins Real Madrid. Það skiptir engu máli hvað þú heitir þegar svona lið er annars vegar,“ sagði Beckham og bætti við: „Hins veg- ar er Owen frábær framherji og hefur alla burði til að geta staðið sig í hvaða deild sem er.“ Flestir í knattspyrnuheiminum eru þó á því að Beckham þurfi ekki síður að sanna sig en Owen eftir ömur- lega frammistöðu á síðasta tíma- bili og á EM í sumar. ■ OWEN TIL MADRID Michael Owen á ekki víst sæti í byrjunar- liði Real Madrid að sögn Davids Beckham, landsliðsfyrirliða Englands. EYJÓLFUR SVERRIS- SON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.