Fréttablaðið - 18.08.2004, Page 54

Fréttablaðið - 18.08.2004, Page 54
ÓLYMPÍULEIKAR Ragnheiður Ragnars- dóttir er 19 ára Garðbæingur sem er kominn á sína fyrstu ólympíu- leika. Það leynir sér ekki þegar fylgst er með Ragnheiði á æfingu að hún nýtur þess í botn að vera komin til Aþenu. „Það er ekkert smá frábært að vera komin hingað. Þetta er ekk- ert smá stórt eitthvað og aðstaðan alveg stórkostleg og þetta er bara æðislegt,“ sagði Ragnheiður með glampa í augunum og nokkuð ljóst að hún meinti hvert orð. „Þetta er ekkert líkt því sem ég átti von á. Ég var búin að búast við einhverju stóru og flottu en þetta er enn stærra en ég gerði mér vonir um. Ég er mjög ánægð með allt hérna.“ Ragnheiður syndir fyrir Sund- félag Hafnarfjarðar en samhliða sundinu stundar hún nám á fata- hönnunarbraut í FG. Hún hefur haft góðan aðlögunartíma í Aþenu, æft oft í lauginni og fylgst með félögum sínum keppa. „Það er misjafnt hvernig ég finn mig í lauginni en mér finnst hún mjög góð. Mér finnst fínt að hafa hana úti. Maður er vanur því heima og því er þetta bara gott fyrir okkur,“ sagði Ragnheiður, sem keppir bæði í 50 og 100 metra skriðsundi. Lengra sundið er á undan. „Ég er mjög bjartsýn fyrir þessa leika. Ég verð að vera bjart- sýn og í góðu skapi því þá gengur mér alltaf mjög vel. Það er auðvit- að pínu stress en það er fyrst og fremst tilkomið út af því að þetta er svo gaman. Ég stefni að því að bæta Íslandsmetin í báðum grein- um,“ sagði Ragnheiður en hún á bæði metin sjálf. „Ég held að ég sé í formi til þess að slá metin. Ég er búin að æfa ansi lengi fyrir þessa leika. Hef lagt mikla áherslu á tækni og þol. Ég var að æfa tvisvar á dag og líka í þreki. Hef verið mjög dugleg við að fara í þrek og styrk- ja mig aðeins. Ég er í hörku- formi.“ Ragnheiður kemur fyrir sem ákaflega glaðlynd og skemmtileg stúlka og hún ætlar að fara í gegnum mótið á gleðinni. “Ég vona svo sannarlega að ég nái að njóta þess. Ég efa ekki að ég verði smá stressuð en það er ágætt. Þá fær maður smá adrena- lín og það hjálpar bara til. Þetta verður æðislegt,“ sagði Ragnheið- ur Ragnarsdóttir. henry@frettabladid.is KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson körfuknattleiksmaðurinn snjalli vinnur nú að því að losna undan samningi við bandaríska körfuknattleiksliðið Dallas Maver- icks. Jón Arnór hefur verið samn- ingsbundinn liðinu síðastliðið ár en hefur lítið fengið að spreyta sig í NBA-deildinni. „Ef ég fæ ekki að spila meira vil ég losna undan samningnum,“ sagði Jón Arnór í samtali við Fréttablaðið í gær. „Það segir sig sjálft að það er mikilvægt að fá að spila. Það hefur lengi blundað í mér að breyta til og ég hef rætt um það við forráðamenn Mavericks. Það ætti að skýrast nú í vikunni hvað verður,“ segir Jón Arnór en umboðsmenn hans vinna nú að því að fá hann lausan. Jón Arnór stóð sig vel með liði Mavericks í sumardeildinni og voru þjálfarar liðsins afar ánægðir með frammistöðu hans. Jón Arnór segir að eigendur og þjálfarar liðsins séu ekki sáttir við að missa hann en sýna aðstöðu hans mikinn skilning. Fær ekki að spila Það kann mörgum að finnast það undarlegt að ungir leikmenn vilji losna frá liði í NBA-deildinni enda dreymir marga um að leika meðal þeirra bestu. „Það er ekki spenn- andi að vera í NBA-deildinni og fá ekki að spila. Ég vil gera þetta fyrir mig sem körfuboltamann og fá að þroskast sem leikmaður,“ seg- ir Jón Arnór. „Mavericks hefur ver- ið í toppbaráttunni og vilja vinna titil. Það verður því erfitt fyrir mig sem ungan leikmann að fá tæki- færi. Þetta væri kannski öðruvísi ef um lakari lið væri að ræða.“ Jón Arnór segir að miklar breyt- ingar hafi orðið á leikmannahóp Mavericks frá síðasta tímabili og margir leikmenn komnir til liðsins. „Ég veit því ekki hvað verður en ég er ennþá í leikmannahópnum. Það væri gott að reyna fyrir sér annars staðar í eitt ár og herja svo aftur á NBA-deildina.“ Lið sýna honum áhuga Þó nokkur lið hafa sýnt Jóni Arn- óri áhuga, þar á meðal önnur NBA- lið sem og lið frá Ítalíu, Spáni og CSKA St. Pétursborg frá Rússlandi. Það tíðkast ekki hjá körfuknatt- leiksliðum í NBA að lána leikmenn eins og gerist í knattspyrnuheimin- um. Forráðamenn Mavericks eru fúsir til að sleppa Jóni til Evrópu en ekki til annarra liða í NBA-deild- inni. „Ég get ekki farið út í nein smá- atriði núna en það ætti að ráðast í vikunni hvað verður,“ segir Jón Arnór. „Mig hefur alltaf langað til að spila á Ítalíu og Spáni. Deildin í Rússlandi á einnig að vera sú sterkasta í ár og það væri gaman að spila þar þótt landið heilli ekki.“ Ef Jón Arnór fer til Ítalíu eða Spánar hittir hann fyrir systkini sín. Ólafur, elsti bróðir Jóns Arn- órs, leikur sem kunnugt er hand- bolta með Ciudad Real á Spáni og Stefanía systir hans býr í Mílanó. „Það væri frábært að búa ná- lægt þeim en Rússagullið heilar einnig,“ segir Jón Arnór hlæjandi að lokum. kristjan@frettabladid.is 22 18. ágúst 2004 MIÐVIKUDAGUR Jón Arnór frá Mavericks Körfuknattleiksmaðurinn Jón Arnór Stefánsson vinnur nú að því að losna undan samningi við Dallas Mavericks í NBA-deildinni. Hann vill fá að . Rússland heillar. JÓN ARNÓR STEFÁNSSON Hann vill reyna fyrir sér í Evópu. Ég er mjög bjartsýn Fatahönnunarneminn Ragnheiður Ragnarsdóttir stefnir á að slá tvö Ís- landsmet á Ólympíuleikunum í Aþenu. Hún hefur keppni í dag. LUKKUFIÐRILDIÐ Ragnheiður Ragnarsdóttir fann sér lítið lukkufiðrildi sem hún bar á öxlinni. Vonandi að fiðrildið færi henni gæfu í sundinu. ÓLYMPÍULEIKAR Það blæs ekki byr- lega fyrir bandaríska körfuknatt- leikslandsliðinu, draumaliðinu svokallaða, á Ólympíuleikunum í Aþenu. Draumurinn er að snúast upp í andhverfu sína því liðið fékk á baukinn í fyrsta leik gegn Púertó Ríkó, tapaði með tuttugu stiga mun. Og ekki batnar það. Allen Iverson, fyrirliði liðsins, er með brotinn þumalfingur og alls óvíst hvort hann geti leikið meira með á leikunum. Hann er þó sjálf- ur brattur og segist vonast til að geta verið með í þeim leikjum sem eftir eru. Iverson skoraði 15 stig í fyrsta leik liðsins. ■ Bandaríska draumaliðið: Óvíst með Iverson ALLEN IVERSON Óvíst er hvort hann geti leikið með „draumaliðinu“ þar sem hann er fingurbrotinn. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.