Fréttablaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
FER‹ALEIKURINN ER
Á VISIR.IS – TAKTU fiÁTT!
Þú gætir unnið ferð til
Kaupmannahafnar eða London!
Guðrún Helgadóttir
„Öðruvísi dagar er spaugileg og fyndin saga ... hlý bók; frá henni
stafar góðmennsku og velvild. Lesandi fyllist skilningi og
umburðarlyndi að loknum lestrinum og veitir svo sannarlega ekki af. “
- Katrín Jakobsdóttir, DV
Sjálfstætt framhald af hinni
geysivinsælu bók Öðruvísi
dagar sem kom út 2002.
Karen Karlotta sem er níu ára,
bráðum tíu, er aðalsöguhetjan
sem fyrr. Sagan er full af
húmor, skemmtilegum
atburðum og litríkum
persónum.
Bók sem enginn
aðdáandi Guðrúnar má
láta framhjá sér fara.
edda.is
Leiftrar af fjöri
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
3. – 11. nóv.
6.
Börn og unglingar
Stór-Norræna
Konungdæmið
Nýjustu fréttir úr viðskiptalífinueru þær að eftir að hafa slegið
sér á hið fornfræga Magasín Norð-
ursins í Kaupmannahöfn hyggi
feðgarnir Litli Bónus og Stóri Bónus
á að ná undirtökunum á þeirri grein
sem danskt efnahagslíf byggist á. Í
ráði er fjandsamleg yfirtaka á allri
pylsusölu í Danaveldi og er síðan
ætlunin að ná einokunaraðstöðu í
danskri verslun. Ekki mun þetta
vera gert fyrst og fremst í hagnað-
arskyni heldur til að gjalda Dönum
rauðan belg fyrir gráan og leyfa
þeim að smakka á sams konar versl-
unarháttum og þeir iðkuðu á Íslandi
öldum saman.
ÆTLUNIN er síðan að flytja til
Danmerkur og selja þar á hæsta
verði allar vörur sem komnar eru
fram yfir síðasta neysludag í Bón-
usverslunum, sömuleiðis ávexti sem
liggja undir skemmdum, maðkað
mjöl og nóg af íslensku brennivíni.
REYNDAR stendur hugur Bónus-
feðga til þess að eignast Kaup-
mannahöfn eins og hún leggur sig,
enda telja margir að hún sé byggð
fyrir íslenskan verslunargróða sem
tímabært sé nú að endurheimta. Ein-
ungis konungsfjölskyldan verður
undanskilin, henni geta Danir haldið
eftir; einkum er lítill áhugi á að fá
hingað hinn hraðskreiða prins
Jóakim sem svæfir börn með því að
fara með þau út að aka síðla nætur
og kitlar þá gjarna pinnann.
FLEIRI ÍSLENSKIR AÐILAR eru
nú að búa um sig í efnahagslífi hinna
Norðurlandanna, enda tími til kom-
inn að Íslendingar taki að sér for-
ystuhlutverk í norrænu samstarfi og
steypi hinum norrænu ríkjum saman
í eina heild og stofni nýtt konungs-
ríki með um 25 milljónir íbúa, Ís-
lendingi verði falið konungsembætt-
ið og er talið að Bónusfeðgar beini
sjónum sínum nú að Davíð Oddssyni
sem konungsefni til að launa honum
marga vinsemd. Utanríkismál hins
nýja ríkis verða í höndum íslensku
utanríkisþjónustunnar sem með
þrautsegju og sparsemi hefur komið
sér upp bæði her og nægum fjölda
sendiráða í útlöndum til að full-
nægja þörfum Stór-Norræna Kon-
ungdæmisins, auk þess sem 14 ís-
lenskir sendiherrar sitja nú og naga
blýanta í utanríkisráðuneytinu og
bíða þess að fá á nýjan leik að lyfta
glasi. ■
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR
64 Bak 18.11.2004 18.53 Page 2