Fréttablaðið - 19.11.2004, Blaðsíða 62
50 19. nóvember 2004 FÖSTUDAGUR
Sjónvarpsþættirnir Reykjavíkur-
nætur hefja göngu sína á Stöð 2 í
byrjun febrúar. Um sex þætti er
að ræða sem byggðir eru á leik-
ritinu Lykill um hálsinn sem var
sýnt í Vesturporti á sínum tíma.
Leikstjóri þess var Agnar Jón
Egilsson, sem einmitt er leik-
stjóri og handritshöfundur sjón-
varpsþáttanna nýju. Hann hefur
einnig verið annar leikstjóri
Rómeó og Júlíu sem var sýnt í
Borgarleikhúsinu við góðar
undirtektir.
Að sögn Baltasars Kormáks,
framleiðanda Reykjavíkurnótta,
hafa þættirnir verið í tvö ár í
undirbúningi. „Það voru sex þætt-
ir framleiddir í fyrstu atrennu.
Síðan kemur í ljós hvort ástæða
verður til að halda áfram með
þættina, sem ég tel nú vera,“ seg-
ir Baltasar. Bætir hann því að það
hafi verið hálfspaugilegt hvernig
þættirnir urðu til. „Það var eigin-
lega tilviljun. Þórunn Clausen
fékk mig til að koma á síðustu
sýninguna á leikritinu og upp úr
því spratt heil sjónvarpssería.
Síðan fékk hún hlutverkið í Þetta
er allt að koma og í Dís,“ segir
hann og hlær.
Baltasar segir að andrúmsloft
þáttanna sé ekki ósvipað því sem
er í mynd sinni 101 Reykjavík.
„Þeir fjalla um það að búa á
Laugaveginum í Reykjavík eigin-
lega,“ segir hann. „Þetta er um
krakka á milli tvítugs og þrítugs
sem eru að skemmta sér og lifa
af. Það er svolítill „borderline“-
húmor í þessu.“
101 Reykjavík var bönnuð
börnum en þessir þættir hafa
ekki fengið rauðan stimpil enn
sem komið er. „Við reynum nú að
halda þessu innan einhverra
marka. En við verðum náttúrlega
að hafa þetta svolítið kryddað,“
segir Baltasar að lokum.
Með helstu hlutverk í þáttun-
um fara auk Þórunnar Clausen
þau Björn Hlynur Haraldsson,
Víkingur Kristjánsson og Inga
María Valdimarsdóttir.
freyr@frettabladid.is
Fókus fylgir DV
í
dag
Nr. 262
9 óvember 2
004
01 18.11.2004
17:04 Page
3
Kristján
fer fyrir
vinsælustu
hljómsveit
Danmerkur
Heimildarmyndin Blindsker sem
þræðir ár og ævi Bubba Morthens
hefur nú slegið öll fyrri aðsóknar-
met heimildarmynda hérlendis.
Kvikmyndafélagið Poppoli Pictur-
es framleiðir myndina og leik-
stjóri er Ólafur Jóhannesson.
Fyrra metið átti heimildarmyndin
um Lalla Johns og þótti hún hljóta
ótrúlegar vinsældir. Þetta er því
ansi gott hjá Ragnari Santos og fé-
lögum í Poppoli Pictures en mynd-
in er stærsta verkefni þeirra til
þessa. „Við erum alveg himinlif-
andi með þennan frábæra árang-
ur og þetta er mikill heiður fyrir
okkur. Samkvæmt opinberum töl-
um frá Skífunni erum við bæði
búnir að slá metið í hausatölu og
innkomu fyrir heimildarmyndir.
Við höfum áður unnið eitthvað við
heimildarmyndagerð en þetta er
stærsta verkefnið okkar og við
megum vera ansi ánægðir með að
myndin fái svona góðar viðtökur,“
segir Ragnar Santos sem sá um
kvikmyndatöku myndarinnar. ■
Blindsker slær aðsóknarmet
REYKJAVÍKURNÆTUR Þættirnir Reykjavíkurnætur verða sex talsins til að byrja með.
Baltasar Kormákur: Framleiðir nýjan sjónvarpsþátt fyrir Stöð 2. Byggðir á handriti Agnars Jóns Egilssonar.
Kryddaðar Reykjavíkurnætur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
...fá kennarar og launanefnd
sveitarfélaganna sem náðu loks
saman eftir langar og strangar
samningaviðræður.
HRÓSIÐ
Lárétt: 2 rúst, 6 hest, 8 haf, 9 trjátegund, 11
ensk skammstöfun, 12 ræðir, 14 sverð, 16 utan,
17 lofttegund, 18 hrein, 2o í röð, 21 ástarguð.
Lóðrétt: 1 hold, 3 ármynni, 4 vogs, 5 auð, 7
ekki sek, 10 arabasamtök, 13 ónæði, 15 kven-
fugl, 16 sjávardýr, 19 dá ñ t.
Lausn
Lárétt: 2 tóft, 6jó, 8sjó, 9ösp, 11am, 12talar,
14korða, 16án, 17gas, 18tær, 20rs, 21amor.
Lóðrétt: 1kjöt, 3ós, 4fjarðar, 5tóm, 7ósak-
næm, 10plo, 13arg, 15assa, 16áta, 19ro.
BUBBI MORTHENS á greinilega stað í hjarta landsmanna sem hafa flykkst á heimildar-
myndina um hann.
-
Gammosíur eru ekki bara fyrir lúðana. Ó nei. Það er mjögkúl að taka áhættuna á að fá lúðastimpilinn með því að
klæðast gammosíum í kuldanum sem nú herjar á land-
ann. Það er ekki lúðalegt að vera hlýtt. Frekar er hallæris-
legt að vera kalt bara af hræðslu við að vera talinn hall-
ærislegur vegna þessarar fallegu flíkur. Klæðist gammos-
íum og verið stolt af því!
Kuldaskór eru alger nauðsyn á tímumkulda og snjós. Nú er tími til að splæsa
í massa kuldaskó, helst fóðraða og ösla í
gegnum skaflana og slabbið. Nú eða grafa
þá gömlu upp úr geymslunni og spreyja
þá með sílikoni.
Stórir vettlingar, góðar skíðalúffur sem láta þig líta útfyrir að vera að búa þig undir að kýla næsta mann kald-
an eru einnig afar móðins í kuldanum, því verður ekki neit-
að. Bláir puttar eru ekki fallegir.
Hver veit hvaðan þessir furðulegubaunapokar komu?Þeir slógu í gegn á níunda áratugnum og flestir sem
festu kaup á þeim þá áttuðu sig fljótt á því að þetta var
algert rugl. Miklu betra að kúra sig niður í sófanum held-
ur en að sitja í einhverri aflagaðri baunahrúgu. Svo er
þetta auðvitað með verri sjónmengun sem til er.
Strákar í of þröngum bolum eru ekki kyn-þokkafullir. Þetta er ekkert nema hrylling-
ur sem verður ekki liðinn. Henda þessum
bolum núna. Þetta lítur líka út eins og mann-
eskjan hafi allt í einu blásið út í bolinn sem
var alveg passlegur þegar hún fór í hann.
Hræðilegt.
Galakjólar sem ná niður á hæla, alsettir semelíusteinum ogúr hrikalegu flauelsefni eru ekki flottir. Ekki einu sinni þó
maður sé ljóshærður keppandi í Ungfrú Ísland. Þetta er ein af
þeim flíkum sem konur virðast aldrei ætla að hætta að klæð-
ast því hún er svo „klassísk“, þó svo að hún hafi í rauninni
aldrei verið í tísku. Litlar kórónur við galakjóla á árshátíðum
eru heldur ekki góðar.
INNI ÚTI
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1
3
2
Um einum milljarði króna.
25 prósent hækkun.
Amazing Race.
62-63 aftasta (50-51) 18.11.2004 20.38 Page 2