Fréttablaðið - 16.12.2004, Qupperneq 18
18 16. desember 2004 FIMMTUDAGUR
JÓL Í KÍNA
Þó fæstir Kínverjar haldi jólin hátíðleg fær-
ist í vöxt að verslunarmenn nýti sér jóla-
vertíðina til að auka sölu hjá sér í lok árs-
ins. Langflestir Kínverjar eru taóistar, á bil-
inu 3 til 4 prósent eru kristinnar trúar og
tæplega 2 prósent múslimar.
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra um stöðu fiskútflutnings:
Samkeppnishæfnin getur breyst hratt
SJÁVARÚTVEGUR „Samkeppnishæfni
getur breyst mjög hratt ef stjórn-
völd vinna ekki stöðugt að því að
vera í fremstu röð,“ sagði Árni M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra á
kynningarfundi vegna nýs verk-
efnis á vegum ráðuneytisins á
Hótel KEA á Akureyri í fyrradag.
Verkefnið ber yfirskriftina Sam-
keppnishæfni í sjávarútvegi. Árni
sagði verkefnið í fyrstu miðast við
að glöggva sig á stöðunni, finna
veikleika og styrk sjávarútvegsins
með tilliti til samkeppnishæfni.
Hann sagði rekstur sjávarútvegs-
fyrirtækja sífellt verða flóknari og
í raun væri heimsmarkaðurinn
okkar heimamarkaður.
Þá benti Árni á að samkvæmt
niðurstöðu rannsóknar sem World
Economic Forum (WEF) birti í
október væru Íslendingar í 10.
sæti af 104 löndum sem rannsókn-
in náði til. „Hlýtur það að teljast
mjög góð niðurstaða,“ sagði hann.
Árni fór einnig inn á öryggi út-
flutningstekna og sagði það eitt
þeirra nýju verkefna sem sjávar-
útvegsráðuneytið legði sérstaka
áherslu á. Hann sagði hrun blasa
við í útflutningstekjum ef ekki
væri hægt að selja fisk úr landi og
því mikilvægt að horfa til þess
hvernig hægt væri að komast hjá
slíkum áföllum.
- kk
Sjá tækifæri til að sérsníða forvarnaráð
Hægt er að sérsníða forvarnir gegn vímuefnaneyslu unglinga í landinu eftir því sem við á í hverju byggð-
arlagi. Gæta þarf að rekjanleika upplýsinganna. Forvarnir hérlendis hafa skilað góðum árangri.
KÖNNUN Greina má niðurstöður í
rannsókn um vímuefnaneyslu
skólanema í Evrópu eftir skólum.
Sjá rannsakendur það sem gott
tækifæri til að bregðast við vanda-
málum á réttan hátt í hverju bæjar-
félagi.
Þóroddur Bjarnason, prófessor
við Háskólans á Akureyri, segir að
til þess að hægt verði að vinna nán-
ar úr gögnunum eins og áhugi sé
fyrir þurfi að huga sérstaklega að
því að ekki verði hægt að rekja
niðurstöður rannsóknanna til ein-
staklinga. Til þess að hægt sé að
gæta nafnleyndar þátttakenda þurfi
fjöldi nemenda í skólum að vera
fjörutíu til fimmtíu. Komi í ljós að
heill árgangur hafi til dæmis neytt
eiturlyfja sé ekki upplýst um niður-
stöðurnar vegna rekjanleika þeirra.
Fimmtán til sextán ára unglingar
hérlendis komu vel út úr rannsókn
sem gerð var í 35 Evrópulöndum og
kynnt var á þriðjudag. Þeir eru í 31.
sæti yfir þá unglinga sem reykt
hafa 40 sinnum eða oftar og 30. sæti
yfir þá sem hafa drukkið áfengi 40
sinnum eða oftar. Tólf prósent ís-
lensku ungmennanna höfðu notað
sniffefni, sem olli áhyggjum. Taka
þurfi sérstaklega á því vandamáli.
Þórólfur Þórlindsson, prófessor
við Háskóla Íslands, sagði við kynn-
ingu niðurstaðnanna að samvinna
rannsóknarmanna og þeirra sem
ynnu að forvörnum fælist í því að
rannsóknarmennirnir kæmu
nýjustu upplýsingum á framfæri.
Það fólk sem ynni að forvörnum
kynni greinilega til verka. Það sýndi
árangur síðustu ára.
Þóroddur segir að þátttakend-
um rannsóknarinnar hafi verið
lofað nafnleynd og hennar verði
gætt: „Ef krakkarnir treysta okkur
ekki fáum við aldrei framar réttar
niðurstöður.“ - gag
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
BRUNI Í KABYSSU Eldur kviknaði
í kabyssu í smábát í Ísafjarðar-
höfn á ellefta tímanum í fyrra-
kvöld. Slökkvilið var kallað út en
eigandi hafði að mestu náð að
slökkva eldinn með slökkvitæki
þegar það kom á staðinn.
Skemmdir voru óverulegar.
ÓK FULLUR HEIM AF BARNUM
Maður á fertugsaldri var tekinn
fyrir að aka undir áhrifum áfeng-
is á Ísafirði á níunda tímanum í
fyrrakvöld. Hann var að koma af
skemmtistað og var tekinn við
reglubundið eftirlit lögreglu.
BLOTNUÐU Í FÆTURNA Bíll hafn-
aði úti í tjörn á Skeiðarársandi
skammt frá Skeiðarárbrú um
klukkan fjögur í fyrradag. Ungt
par og lítið barn sem voru í bíln-
um sluppu án meiðsla en þau
blotnuðu í fæturna á leið út úr
bílnum. Hálka var á veginum auk
þess sem skyggni var lélegt
vegna snjókomu. Bíllinn var
óökufær.
KEFLAVÍK
GÆÐAVARA Á BETRA VERÐI!
BORGARNES
MOSFELLSBÆR
AKUREYRI
HÖFN
SELFOSS
HVOLSVÖLLUR
REYKJAVÍK
Smiðjuvegur 6
200 Kópavogi
Skeifunni 3c
108 Reykjavík
Viðarhöfða 6
110 Reykjavík
Flugumýri 16
270 Mosfellsbæ
Víkurbraut 4
780 Höfn
Miðási 23
700 Egilsstöðum
Sólbakka 8
310 Borgarnesi
Iðavöllum 8
230 Keflavík
Melabraut 24
220 Hafnarfirði
EGILSSTAÐIR
KEFLAVÍK
Njarðarnesi 1
603 Akureyri
HAFNARFJÖRÐUR
KÓPAVOGUR
...einfaldlega betri!
Gagnheiði 13
800 Selfossi
Hlíðarvegi 2-4
860 Hvolsvelli
Á TALI AÐ LOKNUM FUNDI
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra og Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja,
sem spurði spurninga á kynningarfundi ráðherra á Akureyri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K
NIÐURSTÖÐUR KYNNTAR Í HINU HÚSINU
Þóroddur, til vinstri, segir að til þess að hægt sé að gæta nafnleyndar þátttakenda þurfi
fjöldi nemenda í skólum að vera fjörutíu til fimmtíu. Komi í ljós að heill árgangur hafi til
dæmis neytt eiturlyfja sé ekki upplýst um niðurstöðurnar vegna rekjanleika þeirra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
18-19 15.12.2004 19:49 Page 2