Fréttablaðið - 16.12.2004, Blaðsíða 58
38 16. desember 2004 FIMMTUDAGUR
SUND Þrátt fyrir að vera ein
nýjasta og nýtískulegasta sund-
laug landsins er rekstrarkostnað-
ur Árbæjarlaugar mun hærri en
allra annarra á landinu. Rekstur
hennar á ársgrundvelli kostar
tæpar hundrað milljónir króna,
tæpan þriðjung af heildarkostnaði
Íþrótta- og tómstundaráðs vegna
sundlauga í höfuðborginni.
Árbæjarlaugin stingur í stúf
þegar skoðaður er rekstur sund-
lauga borgarinnar en hún er í sér-
flokki hvað varðar rekstarkostnað
lauganna í Reykjavík. Í fjárhags-
áætlun fyrir árið 2004 kemur í
ljós að áætlaður heildarrekstrar-
kostnaður vegna hennar er tæp-
lega 94 milljónir króna sé leigu-
kostnaður tekinn með. Ef aðeins
almennur rekstur er tekinn sam-
an er kostnaðurinn engu að síður
rúmar 42 milljónir, sem er tals-
vert hærra en í öðrum sundlaug-
um og sem dæmi fimmtán milljón
krónum dýrara en kostnaðurinn
við Laugardalslaug, sem þó er
mun stærri og mun fleiri gestir
sækja ár hvert.
Kemur Árbæjarlaug illa út
hvort sem miðað er við aðrar
laugar í Reykjavík eða litið er til
Akureyrar en sundlaug þeirra
norðanmanna er á við Árbæjar-
laug hvað varðar þjónustu og
aðbúnað og auk þess mun stærri.
Er kostnaður norðanmanna engu
að síður talsvert minni þrátt fyrir
að þar greiði menn hundrað krón-
ur fyrir tonn af heitu vatni en að-
eins 30 krónur í Árbæ.
Hjá Íþrótta- og tómstundaráði
er bent á mikla starfsmannaþörf í
Árbæjarlaug, og raunar öllum
nýrri laugum, þegar spurt er út í
ástæður þessa. Svokallaðir fata-
verðir taka á móti fólki í Árbæjar-
laug og geyma fatnað gesta í stað
þess að á eldri sundstöðum eru
þar til gerðir skápar til þess arna.
Er gjarnan talað um hærra
þjónustustig vegna þessa en sund-
gestir margir hverjir velta fyrir
sér hvernig það má vera þar sem
aðgöngumiðaverð hljóti eðlilega
að hækka til samræmis við fjölg-
un starfsmanna og komi þannig
við buddu sundlaugargesta.
Þrátt fyrir að fyrir komi að
fatnaði og munum sé stolið úr
skápum sundlauganna annað slag-
ið hefur ekki orðið vart sérstakrar
óánægju með fyrirkomulagið þá
tugi ára sem það hefur verið við
lýði.
albert@frettabladid.is
Árbæjarlaug dýrust
allra lauga á Íslandi
Rekstur sundlauga borgarinnar kostar Reykvíkinga rúmar 350 milljónir
króna árlega og mun hækka til muna þegar ný 50 metra innilaug verður opn-
uð í Laugardal í janúar. Árbæjarlaug er fjárfrekust.
NHL-deildin í íshokkí:
Leiktíðin
endanlega
fyrir bí
ÍSHOKKÍ Slitnað hefur upp úr endur-
nýjuðum samningaviðræðum
milli leikmanna í NHL-ís-
hokkídeildinni og eigenda þeirra
félaga sem þar spila. Hefur sem
kunnugt er ekkert verið spilað á
ísnum vestanhafs í vetur vegna
verkfalls leikmanna, sem sættu
sig ekki við kröfur eigendanna um
að tengja laun þeirra meira við
þær tekjur sem félögin hala inn.
Tilboð leikmannanna hljóðaði
upp á launaskerðingu upp á 25
prósent, sem verður að teljast um-
talsvert, en eigendur vilja ekki
ganga að samkomulagi nema
tryggt sé að einhvers konar launa-
þak sé í gildi, svipað því og gerist
í öðrum íþróttagreinum í Banda-
ríkjunum. Vilja þeir meina að fé-
lögin hafi tapað fé undanfarin ár
og heimta að laun leikmanna hald-
ist í hendur við vinsældir greinar-
innar en á það vilja leikmenn ekki
heyra minnst.
Má bóka það með nokkurri
vissu að úr þessu verður ekki spil-
að íshokkí í NHL-deildinni fyrr en
í fyrsta lagi í október á næsta ári
þegar næsta leiktíð á að hefjast,
enda hefði þurft að útkljá málin
fyrir janúar ef takast hefði átt að
bjarga leiktíðinni sem átti að vera
hafin. ■
Garðar Örn Hinriksson, dómari úrÞrótti, mun verða millríkjadómari
á komandi tímabili en hann kemur í
stað Gylfa Orrason-
ar sem varð að láta
af störfum vegna
aldurs nú á haust-
dögum. Sigurður
Þór Þórsson og
Guðmundur H.
Jónsson létu einnig
af störfum sem
milliríkjaðastoðar-
dómarar en í þeirra
stað koma þeir
Gunnar Sverrir Gunnarsson og Sig-
urður Óli Þorleifsson. Þrír aðrir
dómarar, Egill Már Markússon, Jó-
hannes Valgeirsson og Kristinn
Jakobsson eru á listanum yfir milli-
ríkjadómara.
Í gær var dregið í undanúrslitin í SS-bikars karla og kvenna í handknatt-
leik. Bikarmeistarar ÍBV í kvenna-
flokki mæta Gróttu/KR í Vestmanna-
eyjum og Stjarnan tekur á móti Val.
Leikirnir fara fram 8. og 9. febrúar. Í
karlaflokki sækja Eyjamenn ÍR-inga
heim í Austurberg og Grótta/KR tek-
ur á móti á HK á Seltjarnarnesi. Leik-
irnir fara fram 12. febrúar.
Allt virðist stefna í aðskoska félagið Celtic og
KR nái samkomulagi um
kaup skosku meistar-
anna á þeim Kjartani
Henry Finnbogasyni
og Theodóri
Elmari Bjarna-
syni en félögin hafa
sent hvort öðru tilboð
undanfarna daga.
Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er lítið
sem ber á milli hjá
félaginu en helsta
vandamál KR-inga er að norska
félagið Start vill fá vænan skerf af
kaupverði Theodórs Elmars þar sem
hann æfði með liðinu í tvö ár.
Forráðamenn enska úrvalsdeildar-liðsins Manchester City hafa sett
verðmiða á landsliðsmanninn Shaun
Wright-Phillips en mörg lið hafa
áhuga á því að fá hann í sínar raðir.
John Wardle, stjórnarformaður City,
sagði að félagið hefði engan áhuga á
því að selja Wright-Phillips
en ef einhver væri tilbúinn
til að borga 25 milljónir
punda fyrir kappann þá
myndi hann hlusta.
„Hann er hjartað og
sálin í félaginu, hefur
lagt hjartað og sálina í
félagið og yrði mjög
svekktur ef ég myndi
setja hann á sölulista.
Hann vill spila fyrir
Manchester City en það er víst allt til
sölu fyrir réttu upphæðina,“ sagði
Wardle.
Umboðsmaður ÚkraínumannsinsAndriys Shevchenko hefur látið
hafa það eftir sér að Chelsea, sem er
óumdeilanlega með mesta peninga
til leikmannakaupa af öllum liðum
Evrópu, hafi ekki efni á því að kaupa
kappann frá AC
Milan, hvað þá
að borga hon-
um þau laun
sem hann á skil-
ið. „Þeir eiga
ekki glætu.
Hann er einn af
fimm bestu leik-
mönnum heims
og fær borgað eftir því,“ sagði um-
boðsmaðurinn Oscar Damiano um
skjólstæðing sinn sem var kosinn
knattspyrnumaður ársins í Evrópu á
mánudagskvöldið.
Frank Arnesen, yfirmaður knatt-spyrnumála hjá Tottenham, fer
fögrum orðum um FH-inginn Emil
Hallfreðsson í viðtali við heimasíðu
BBC sem birtist í gær.
Arnesen segir að Emil hafi
verið með tilboð frá tveim-
ur félögum sem eru eins
og Íslendingar vita Ev-
erton og Feyenoord en
ákveðið að koma til
Tottenham. „Hann
leikur vinstra megin á
vellinum en það hefur
verið vandræðastaða
hjá okkur. Hann sýndi
hversu hæfileikarík-
ur hann er á meðan
hann dvaldi hjá okkur og því ákváð-
um við að fá hann. Þetta er það sem
við viljum gera. fá til okkar unga leik-
menn og vona að þeir blómstri,“
sagði Arnesen.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
LOFTLYKLASETTETT
JÓLATILBOÐ
4.900
JÓLATILBOÐ
7.900
Hinn gamalreyndi Einar Bollason
hefur marga fjöruna sopið í
körfuboltanum og var meira en klár í
slaginn þegar Fréttablaðið fór þess á
leit að hann spáði í spilin fyrir 11.
umferð Intersportdeildarinnar í körfu-
knattleik, síðustu umferðina fyrir jól,
sem fer fram í kvöld.
Haukar–UMFN
„Miðað við gengi þessara liða er
þetta ókleifur hamar fyrir Haukana.
Njarðvíkingarnir eru einfaldlega of
sterkir, er ég hræddur um. Liðið hefur
að vísu hikstað á móti Snæfelli og
Keflavík og það væri óskandi að Hauk-
arnir gætu strítt þeim. Menn þar á bæ
eru ekki ánægðir með sitt gengi í vet-
ur.“
KFÍ–Skallagrímur
„Það náttúrlega hlýtur að koma að
því að KFÍ vinni leik. Skallagrímsliðið er
búið að vera mjög sannfærandi í vetur
en þar sem ég á ættir að rekja til Ísa-
fjarðar ætla ég að fullyrða að nú
sékomið að leiknum sem Ísfirðingar
vinna. Skallagrímur rétt marði Ljónin úr
2. deild og því er aldrei að vita.“
Keflavík–Fjölnir
„Þetta verður stórleikur umferðar-
innar. Keflvíkingarnir eru náttúrlega
með bullandi sjálfstraust. Þeir eru
komnir áfram í bikarkeppni Evrópu og
unnu góðan sigur á Njarðvík í fyrra-
kvöld. Þetta verður geysilega erfiður
leikur fyrir þá. Fjölnismenn nánast gáfu
Njarðvíkingum leikinn í Ljónagryfjunni
á dögunum í framlengingu. Fjölnir er
tvímælalaust eitt af fjórum bestu liðum
deildarinnar ef ekki það besta en ég
ætla að spá því að Keflavík vinni eftir
framlengingu, rétt eins og nágrannarn-
ir.“
KR–UMFG
„Þarna mætast tvö lið sem hafa
valdið hvað mestum vonbrigðum í vet-
ur. Leikmenn beggja liða vilja ólmir
bæta stöðuna fyrir jólafrí því bæði
þessi lið mega muna sinn fífil fegri. En
auðvitað vona ég að mínir menn í
Vesturbænum vinni þennan leik. KR
stóð sig mjög vel gegn Snæfelli á úti-
velli þar sem liðið var óheppið að
missa leikinn í framlengingu. Ég er
bjartsýnn á að KR-ingar hysji upp um
sig sparibuxurnar og leggi Grindavík.“
Tindastóll–Snæfell
„Tindastóll hefur verið að koma upp
síðastliðnar vikur og er með efnilega
leikmenn innan sinna raða. Ég held
hins vegar að Snæfell hafi þetta af
enda með sterkari heild en Stólarnir.
Heimavöllur Tindastóls er þó alltaf erf-
iður heim að sækja og Hólmarar þurfa
að mæta einbeittir til leiks til að ná
fram sigri.“
ÍR–Hamar/Selfoss
„Þetta eru tvö lið sem hafa tekið
kipp upp á síðkastið. Grindavík og KR
eru í skammarkróknum, spútniklið fyrri
hluta móts voru Fjölnir og Skallagrímur
en spútniklið síðustu fimm umferða
eru ÍR og Hamar/Selfoss. Ég sá ÍR spila
gegn KR um daginn þar sem ÍR-ingar
unnu mjög sannfærandi. Mér finnst ÍR-
liðið líka búa yfir mjög skemmtilegum,
ungum leikmönnum sem sýndu frá-
bæra baráttu. Haldi ÍR vel um þá leik-
menn á
f é l a g i ð
b j a r t a
framtíð
f r a m
u n d a n
og liðið
v i n n u r
Hamar/Sel-
foss á sínum
heimavelli.“
Einar Bollason spáir í 11. umferðina í Intersportdeildinni:
SÆTTIR ÚR SÖGUNNI Leikmenn í NHL
og eigendur liðanna náðu ekki saman og
má því bóka að ekkert verður leikið í
deildinni fyrr en í fyrsta lagi næsta haust.
ÁRBÆJARLAUGIN Rekstur hennar á ársgrundvelli kostar 33 milljónum króna meira en rekstur Vesturbæjarlaugarinnar og meira en
allra annarra sundlauga á Íslandi. Fréttablaðið/Teitur
58-59 (38-39) Sport 2 15.12.2004 19:54 Page 2