Fréttablaðið - 16.12.2004, Page 63
Rappdúettinn Outkast hefur lokið
við kvikmynd sína, My Life in
Idlewild, sem fær dreifingu á
næsta ári. Þeir Big Boi og Andre
3000 hafa eytt mestum tíma þessa
árs í hljóðverinu og verða því gefn-
ar út tvær Outkast plötur á næsta
ári. Fyrri platan fylgir myndinni,
og inniheldur þá tónlist sem þar
verður að finna. Seinni platan er
gjörsamlega ótengd myndinni og
inniheldur 10 splunkuný lög. Sú
kemur til með að heita The Hard
10 og vinna þeir félagar saman á
öllum lögum plötunnar.
Kvikmyndin kostaði um 10
milljónir dollara í framleiðslu og
er henni leikstýrt af Bryan
Barber sem skrifaði einnig hand-
ritið. Hann hefur einnig gert flest
myndbönd Outkast nýverið, þar á
meðal Hey Ya og Roses.
„Það eru tvær sögur í mynd-
inni,“ sagði Big Boi í viðtali við
NME. „Hluti Andre er ástarsaga
en mín er örlítið ruglaðri. Þetta
verður mjög góð mynd.“
Andre 3000 virðist ætla að ein-
beita sér meira að kvikmyndaleik.
Hann er þegar kominn með hlut-
verk í myndinni Be Cool, sem F.
Gary Gray leikstýrir. Sú mynd er
gerð eftir sögu Elmore Leonard er
óbeint framhald Get Carter og
skartar John Travolta og Umu
Thurman í aðalhlutverkum. ■
FIMMTUDAGUR 16. desember 2004 43
Umsjón: BIRGIR ÖRN STEINARSSON.
biggi@frettabladid.is
Ballettvörur
í miklu úrvali
Tilvalin jólagjöf
Háaleitisbraut 68,
sími 568 4240
Ballett
Dizzee Rascal: Showtime
„Dizzee Rascal er breskari en te, djúpsteiktur fiskur
og franskar kartöflur í pappír. Hann er líka alinn
upp í gettóinu í London. Flugbeittur og gallharður.
Frábært afrek, ein af áhugaverðari plötum frá Bret-
landi í ár.“
BÖS
Nancy Sinatra: Nancy Sinatra
„Nancy Sinatra heldur kúlinu og gerir plötu með
Bono, The Edge, Jarvis Cocker, Morrissey, Calexico
og Thurston Moore. Frábær plata, þó að Geir Ólafs
eigi ekki eftir að samþykkja þetta.“
BÖS
Hot Chip: Coming On Strong
„Ein áhugaverðasta raftónlistarplata ársins, aðallega
vegna stórkostlegra lagasmíða og sálarfullra söngv-
ara.Tónlistarárið þitt verður ekki fullkomnað fyrr en
þú hefur tékkað á þessari plötu Hot Chip.“
BÖS
Destiny's Child: Destiny
Fullfilled
„Fjórða eiginlega plata Destinyís Child er allt og
ekkert. Mettir aðdáendur, en bætir líklegast ekki
nýjum í hópinn. Tími fyrir Beyoncé að einbeita sér
alfarið að sólóferlinum?“
BÖS
Manhattan – Manhattan
„Þessi þröngskífa er eingöngu smá blóðbragð af
steikinni sem verður í boði þegar Manhattan stígur
næsta skref og býr til sína fyrstu breiðskífu.“
SJ
U2: How to Dismantle an
Atomic Bomb
„Besta plata U2 í háa herrans tíð. Mörg prýðileg
lög þar sem The Edge fer á kostum.“
FB
Bizzart – Ear Drung
„Á Ear Drung heyrist glögglega að það er hægt að
gera fullt af spennandi hlutum í hiphop-tónlistinni
þó svo að yfirborðið sé jafn ónýtt og raun ber vitni.
Bizzart er kjörinn listamaður fyrir unnendur
hiphops sem vilja heyra eitthvað öðruvísi.“
SJ
Johnny Hiland
– Johnny Hiland
„Gítarleikur kappans er ansi smekklegur á köflum
og er hratt plokk (“chicken-picking“) hans aðall. En
Steve Vai hefði mátt sleppa því að vera með og
skilja líka hinn drepleiðinlega frænda sinn Billy
Sheehan eftir heima. Þökk sé þeim þá er þessi
plata nánast ónýt.“
SJ
[ SMS ]
UM NÝJUSTU PLÖTURNAR
Tenderfoot: Without Gravity
„Ótrúlega þægileg og góð plata frá Tenderfoot.
Þessir drengir gætu svo sannarlega orðið næsta
„hittið“.“
FB
PLATA VIKUNNAR
ANDRE 3000 Það hefur verið nóg að gera hjá sveitinni hans síðustu daga enda var hún
að ljúka við kvikmynd og hefur eytt drjúgum tíma í hljóðveri.
Tvær plötur og
bíómynd frá Outkast
62-63 (42-43) Tónlist 15.12.2004 20:59 Page 3