Fréttablaðið - 16.12.2004, Blaðsíða 67
47FIMMTUDAGUR 16. desember 2004
IMBAKASSINN
■ FÓLK
■ FÓLK
Hundurinn fær
rándýran mat
Britney Spears lætur ekki Chihu-
ahua-hundinn sinn borða hvað
sem er og gaf honum nýlega rán-
dýra steik upp á 180 dollara.
Stjarnan ákvað að gefa Bitbit
klassamat þegar hún gisti á hótel-
inu Bellagio í Las Vegas. Spears
pantaði bestu sneið af kjötinu frá
veitingastaðnum Picasso þar sem
meistarakokkurinn Julian Serra-
no útbýr mat einungis fyrir hina
ríku og frægu. „Talandi um móðg-
un, Julian er einn frægasti kokk-
urinn í Bandaríkjunum. Tilhugs-
unin um að hann hafi eldað fyrir
lítinn Chihuahua er fáránleg. Sem
betur fer sagði enginn honum
hvar maturinn endaði. Þvílík van-
virðing við hæfileika hans,“ sagði
heimildarmaður. ■
Chris Martin
lætur í sér heyra
Chris Martin, söngvari hljóm-
sveitarinnar Coldplay, er ekki
sáttur við þær gagnrýnisraddir
sem heyrast í garð Band Aid 20
lagsins. Hann segir að fólk ætti að
kaupa plötuna sama hvort því líki
lagið eður ei. „Ég hef heyrt nei-
kvæðar raddir um lagið og mér
finnst það algjört rugl. Að mínu
mati snýst þetta ekki um lagið eða
orðin heldur um myndirnar sem
sjást í myndbandinu. Það myndi
ekki skipta neinu máli ef hópur af
poppstjörnum myndi standa og
berja á potta ef þau væru að segja
að þau hafi áhuga á þessu málefni
og því hvað er að gerast í Afríku,“
sagði Martin.
Martin sagði í sjónvarpsviðtali
á mánudaginn: „Þið sem gagnrýn-
ið lagið og líkar það ekki, þetta er
eins og þið mynduð ganga fram-
hjá betlara án þess að gefa honum
pening aðeins af því að ykkur lík-
aði ekki lagið sem hann söng.“
Söngvarinn hefur einnig lýst
yfir áhyggjum sínum af fátækt í
heiminum. „Annaðhvort geturðu
hunsað vandann og látið sem hann
sé ekki til staðar eða eins og í
mínu tilfelli að þér finnst þú hafa
átt það svo gott að þú einfaldlega
verður að láta þig málefnið
varða.“ ■
Vatn fossa inn í
töfralæknisins tjald!
Koma þurfa
röraleggjamaðurinn!
Röraleggjamaðurinn
þrjár vikur koma!
CHRIS MARTIN er óánægður með neikvæð orð sem fólk lætur falla í garð Band Aid 20
lagsins.
BRITNEY SPEARS splæsti nýlega í steik fyrir 180 dollara handa Chihuahua-hundinum
sínum.
66-67 (46-47) Fólk 15.12.2004 17.41 Page 3